Fréttablaðið - 02.06.2014, Side 46
2. júní 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30
➜ Frisbígolf, eða folf, er leikið á svipaðan
hátt og venjulegt golf. Í stað golfkylfa og golf-
bolta nota leikmenn frisbídiska. Þessi íþrótt var
mótuð á áttunda áratug síðustu aldar og á það
sameiginlegt með venjulegu golfi að reynt er að
klára hverja holu í sem fæstum köstum.
Ertu að flytja
til Noregs, Danmerkur
eða Svíþjóðar?
Halló Norðurlönd og EURES standa fyrir upplýsinga-
fundum vegna flutninga til Noregs, Svíþjóðar og
Danmerkur. Fundirnir eru ætlaðir öllum þeim sem hyggja
á vinnu eða nám í þessum löndum og eru ókeypis og
öllum opnir. Farið verður yfir hagnýt atriði varðandi
flutning og atvinnuleit auk þess sem fulltrúi frá
Ríkisskat tstjóra kynnir skat tamál.
• Fimmtudaginn 5. júní kl. 17:30 – 19:00
Að flytja til Noregs.
• Fimmtudaginn 5. júní kl. 19:30 - 21:00
Að flytja til Svíþjóðar og Danmerkur.
Námskeiðin fara fram í húsnæði Vinnumálastofnunar,
Kringlunni 1, í sal á 1. hæð. Fjöldi þát t takenda er
takmarkaður og því er nauðsynlegt að skrá sig á
námskeiðin með því að senda tölvupóst á
hallo@norden.is eða hringja í síma 511-1808.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Ég byrja alla morgna á að rífa mig
í gang með rótsterkum kaffibolla
og set Wake me up með Avici í
spilarann. Þetta er skotheld byrjun
á góðri viku.
Einar Mikael töframaður
MÁNUDAGSLAGIÐ
„Þetta er vinsælt sport og sívaxandi og hefur gefist
vel á Klambratúni. Hugmyndin kom inn á Betri Hafn-
arfjörður og við tókum strax vel í hana,“ segir Mar-
grét Gauja Magnúsdóttir, formaður fjölskylduráðs
og umhverfis- og framkvæmdaráðs í Hafnarfirði.
Framkvæmdir við frisbígolfvöll hefjast á Víðistaða-
túni í vikunni. Nokkrir frisbígolfvellir eru á Íslandi
en sá fyrsti var opnaður á Úlfljótsvatni árið 2000. Þá
er hægt að spila frisbígolf í Mosfellsbæ, í Gufunesi, á
Klambratúni, á Akureyri, við Laugavatn, á Akranesi
og á Flateyri.
„Við ætlum að byrja með sex holu völl í sumar og ef
þetta gengur vel verður hann stækkaður í níu holur á
næsta ári,“ bætir Margrét við.
Ekki er aðeins fyrirhugað að búa til frisbígolfvöll
í Hafnarfirði í sumar en vellir í Vatnaskógi, við Apa-
vatn, í Miðhúsaskógi, á Flúðum, á Húsavík, á Hrísey
ásamt nýjum völlum í Reykjavík bætast við frísbí-
golfvallaflóruna í sumar. Í lok sumars er því áætlað
að frisbígolfvellir á Íslandi verði sautján talsins.
Margrét Gauja segist ekki hafa prófað íþróttina.
„Nei, ég hef verið glötuð í öllum íþróttum sem
krefjast þess að ég hitti en ég mun pottþétt draga fjöl-
skylduna á Víðistaðatúnið að leika. Krakkarnir munu
bursta mig en það er í lagi. Ég get alveg kyngt keppn-
isskapinu einstaka sinnum.“ - lkg
Kyngir stoltinu í frisbígolfi
Framkvæmdir við frisbígolfvöll hefj ast á Víðistaðatúni í vikunni.
MJÖG SPENNT Margrét Gauja er ánægð með þessar nýju
framkvæmdir. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
„Þessi öryggismyndbönd eru oft og
tíðum frekar einsleit og tíðindalítil.
Við vildum reyna að nálgast þetta
á ferskan hátt,“ segir leikstjórinn
Rúnar Ingi Einarsson sem fenginn
var til að leikstýra nýju myndbandi
um öryggi flugfarþega fyrir Ice-
landair. Myndbandið verður sýnt
fyrir allar ferðir flugfélagsins og
því má reikna með að um 2,4 millj-
ónir manna sjái það árlega. Rúnar
segir myndbandið gert í anda kvik-
myndarinnar Into The Wild.
„Myndbandið sýnir erlendan
ferðamann ferðast um íslenska
náttúru og öryggisatriðin birtast
svo á frumlegan hátt í náttúrunni.
Norðurljósin við Fjallsárlón teikna
til að mynda neyðarljós þegar
ferðamaðurinn er að tjalda tjaldi
sínu,“ segir Rúnar og bætir við að
helstu náttúruperlur Suðurlands-
ins fái að njóta sín í myndbandinu.
Rúnar hefur starfað sem leikstjóri
hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus
frá árinu 2011 en nýverið hóf hann
störf fyrir eitt fremsta framleiðslu-
fyrirtæki á Norðurlöndum, Camp
David í Stokkhólmi. „Ég flutti út
með unnustu minni sem er að læra
lögfræði hér í Stokkhólmi og fékk
í kjölfarið tilboð frá helstu kvik-
myndaframleiðslufyrirtækjum Svía
en það var ekki aftur snúið eftir að
Camp David opnaði dyrnar enda eru
þar á mála bestu auglýsingaleik-
stjórar Skandinavíu og víðar.“
Rúnar hefur leikstýrt fjölda
auglýsinga hér á landi, meðal ann-
ars fyrir Nike, Prince Polo, Arion
banka og Egils Gull. Auglýsing
sem hann gerði fyrir Lottó í desem-
ber vakti töluverða athygli og fékk
meðal annars umfjöllun hjá virtum
fagtímaritum ytra. „Sú auglýsing
opnaði nýjar dyr fyrir mér vestan
hafs og í kjölfarið hélt ég utan til
að skoða þau tilboð sem mér bár-
ust. Ég fór meðal annars á fund hjá
framleiðslufyrirtæki í Bandaríkj-
unum sem heitir Green Dot Films
og skrifaði svo undir samning þar
um daginn. Samningurinn veitir
mér atvinnuleyfi í Bandaríkjun-
um og gerir mér því kleift að leik-
stýra auglýsingum þar í landi. Það
er virkilega gaman. Svo er ég líka
fæddur 4. júlí,“ segir Rúnar hress
að lokum. kristjana@frettabladid.is
Öryggismyndband
í anda Into The Wild
Leikstjórinn Rúnar Ingi Einarsson leikstýrir nýju myndbandi um öryggi fl ug-
farþega fyrir Icelandair. Myndbandið verður sýnt fyrir öll fl ug en það sýnir er-
lendan ferðamann á fl akki um Ísland og eru öryggisatriðin teiknuð í náttúruna.
EFTIRSÓTTUR Rúnar Ingi hefur nóg að
gera þessa dagana en hann fékk nýverið
atvinnuleyfi í Bandaríkjunum og getur
því leikstýrt bandarískum auglýsingum.
ÍSLAND Í AÐALHLUTVERKI Helstu náttúruperlur Suðurlands fá að njóta sín í öryg-
gismyndbandi Icelandair.
„Ég er geðveikt spennt, þetta á
eftir að verða svo tryllt,“ segir
söngkonan Ásdís María Viðars-
dóttir, en hún kemur fram með
Dj Margeiri á Parklife-hátíðinni
í Manchester í júní. „Við förum
út 7. júní og verðum þarna í tvo
daga.“ Um er að ræða stærð-
arinnar tónlistarhátíð sem um
70–80.000 manns sækja árlega en
á hátíðinni í ár koma fram ásamt
Ásdísi Maríu og Margeiri þekkt
nöfn á borð við Snoop Dogg,
London Grammar, Rudimental
og Bastiller, auk fjölda annarra
listamanna. „Ég hef ekki spilað
live áður með Margeiri en er að
farast úr spennu,“ segir Ásdís
María. Hún segir jafnframt að
þau muni aðallega leika tökulög
á hátíðinni. „Við erum byrjuð að
semja tónlist saman en ég veit
ekki hversu mikið af efni verður
tilbúið fyrir hátíðina.“ Þau hafa
í hyggju að koma saman fram á
tónleikum í sumar. „Við stefnum
á að spila meira saman í sumar og
spilum til dæmis sama í Bláa lón-
inu á næstunni. Við ætlum svo að
sjá hvernig þetta gengur,“ bætir
hún við. Ásdís María hefur vakið
mikla athygli að undanförnu enda
bráðefnileg söngkona. Hún sigr-
aði í Söngvakeppni framhalds-
skólanna árið 2013 og þá komst
hún í úrslit í undankeppni Euro-
vision hér á landi þegar hún flutti
lagið Amor fyrr á árinu.
- glp
Ásdís skemmtir með Snoop Dogg
Eurovision-stjarnan Ásdís María Viðarsdóttir kemur fram á stórri tónlistarhátíð í
Manchester með DJ Margeiri í júní. Heimsþekkt nöfn koma fram á hátíðinni.
SYNGJANDI SÆL Söngkonan Ásdís
María Viðarsdóttir hlakkar til sumarsins
enda mikið í vændum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL