Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 1

Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 1
FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 24 BRÚÐUBÍLLINN Í ÁRBÆJARSAFNI Brúðubíllinn heimsækir Árbæjarsafn í dag kl. 14 og sýnir leikrit júnímánaðar, Ys og þys í brúðubílnum. Söngur, sögur og leikrit. Í heimsókn koma hvorki meira né minna en sjö kiðlingar ásamt mömmu sinni, fjórir boltar og svo auðvitað hann Krummi sem heimtar að syngja með krökkunum. M jög margir finna fyrir óþægindum og verkjum þegar liðfletirnir núast saman, sérstaklega í liðamótum í mjöðmum, hrygg og hnjám. Áralöng reynsla og rannsóknir á Nutrilenk gefa til kynna að það hjálpi til við að auka heilbrigði lið-anna, minnki verki og stirðleika og auki þar með hreyfigetu og færni. Margir læknar mæla með Nutr-ilenk og sjúkraþjálfarar, kíróprakt-orar og einkaþjálfarar hafa góða reynslu frá sínum skjólstæðingum. GETUR MINNKAÐ LIÐVERKINutrilenk Gold er frábært bygg-ingarefni fyrir brjóskvef og getur minnkað liðverki, brak í liðum og stirðleika. Það er gert úr sér-völdum fiskibeinagrindum sem samkvæmt rannsóknum eru ríkar af virku og nýtanlegu kondritíni, kollagenum, mangani og kalki og hjálpar til við uppbyggingu brjósks og getur komið í veg fyrir frekari liðskemmdir. EKKI LÁTA STIRÐLEIKA EÐA VERKI STOPPA ÞIGGENGUR VEL KYNNIR Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir getur brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna. Nutrilenk Gold hefur hjálpað fjölmörgum Íslendingum sem þjást af verkjum og stirðleika í liðum. Það hjálpar til við uppbyggingu brjósks og getur komið í veg fyrir frekari liðskemmdir. HÁKON HRAFN SIGURÐSSON ÞRÍÞRAUTARMAÐUR:Nutrilenk Gold hjálpar mér að geta stundað þríþraut af kappi. Ýmsar rannsóknir í ritrýndum al-þjóðlegum tímaritum hafa sýnt fram á jákvæða virkni innihaldsefna í Nutrilenk án þess að þau séu skráð sem lyf. RAGNHEIÐUR GARÐARSDÓTTIRLEIKSKÓLAKENNARI:Ég er greind með slitgigt í mjöðm og verkirnir voru orðnir hreint h l ít FRÁBÆR REYNSLA! SÖLUSTAÐIRNutrilenk Gold fæst í flestum apótek-um, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaða og verslana. Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is ÚTSKRIFTARGJAFIR Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 www.tk.is - mikið af frábærum tilboðum 10% afsláttur Sumarlegar blússur og slæður í úrvali Hausverkur Ekki þjást MigreLiefMígreni.isMigreLief fyrirbyggjandi fæðubótarefni fyrir fullorðna og börn Kynningarblað Hjólaferð um Jakobsstíginn, hjólað í tvídi, hjólreiðamót, hjálmurinn á réttum stað. REIÐHJÓL FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 &ÖRYGGI Á vormánuðum 2011 hélt Haukur Egg-ertsson í 4.000 kílómetra langan hjól-reiðatúr sem hófst í Kaupmannahöfn og endaði í Santiago de Compostela á Spáni. Haukur hjólaði frá Danmörku til Þýskalands og þaðan til Frakklands þar sem hann hjólaði hina frægu pílagrímagönguleið Jakobsstíg-inn, alla leið til Santiago. Ferðin tók 50 daga með tveimur stuttum stoppum hjá systrum Hauks og reyndist eftirminnileg. „Á þessum tímapunkti í lífi mínu stóð ég á krossgötum í tengslum við starfsferil minn og hafði þess vegna tíma til að fara í svo langa ferð. Segja má að hugmyndin hafi kviknað á fyrirlestri fáeinum árum fyrr hjá Íslenska fjallahjóla- klúbbnum þar sem Jón Björnsson fjallaði um hjólreiðaferð sína eftir Jakobsstígnum. Fyrir-lesturinn kveikti í mér og nokkrum árum síðar hélt ég í stóru ferðina.“ Flestir sem labba eða hjóla Jakobsstíg hefja för sína í Frakklandi eða á Spáni en Haukur flaug til Kaupmannahafnar og hóf ferðal ið sem er vinsæll byrjunarstaður þeirra píla- gríma sem ætla að ganga eða hjóla Jakobs- stíginn. Ég hjólaði þaðan á misvel merktum leiðum uns ég kom til Saint Jean Pied de Port, sem er Frakklandsmegin við Pýreneafjöllin en þar hefja líka margir gönguna til Santiago. Þaðan fylgdi ég að mestu gönguleiðinni á leiðarenda.“ Þegar Haukur var kominn til Santiago var hann þremur dögum á undan áætlun. „Þegar maður leggur í svona ferð gerir maður ráð fyrir veikindum, meiðslum eða bilun- um. Allt gekk þó eins og í sögu þannig að ég hjólaði aðeins lengra til sjávar, til Finisterre, og þaðan aftur til Santiago þar sem ferðinni lauk loks eftir 50 hjóladaga.“ Á þeim rúmlega einum og hálfa mán- uði sem Haukur hjólaði gegnum fjögur lönd gisti hann ýmist í tjaldi eða á einföldum gistiheimilum. „Ég var nánast einn á ferð- inni hjólandi frá Danmörku til Frakklands þ Ferðin sjálf skipti estu máli Fyrir þremur árum fór Haukur Eggertsson í 50 daga hjólaferð um fjögur lönd. Aðalmarkmið hennar var að hjóla pílagrímagönguleiðin frægu um Jakobsstíginn í Frakklandi og á Spáni. Ferðin hófst í Danmörku og þaðan hjólaði Haukur suður í gegnum Þýskaland. 2 SÉRBLÖÐ Reiðhjól | Fólk Sími: 512 5000 5. júní 2014 131. tölublað 14. árgangur SKOÐUN Orri Vigfússon skrifar um ímynd íslenskra matvæla og fiskeldi. 30 MENNING Ragnheiður Harpa Leifsdóttir samdi lokaverk Listahátíðar. 38 LÍFIÐ Ljósmyndarinn Saga Sig í samsýningu á vegum ljós- myndafyrirtækisins Leica. 62 SPORT Íslendingar mörðu sigur gegn Eistum í Laugar- dalnum í gær. 56 Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Sjá tilboð á bls. 13-17 RÝMINGARÆFING Í STJÓRNARRÁÐINU Lögreglan, slökkviliðið, fj arskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra og sérsveitin tóku þátt í æfi ngu til að tryggja öryggi æðstu stjórnar ríkisins í gærmorgun. Fæstir starfsmenn ráðuneytisins vissu af æfi ngunni en allir björguðust, þar með talinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÓTBOLTI Formaður knattspyrnu- deildar Dalvíkur/Reynis stað- festir að leikmaður félagsins hafi í vetur veðjað á að lið hans myndi tapa með meira en þriggja marka mun gegn Þór í leik liðanna í jan- úar. „Hann var reyndar ekki í leik- mannahópi okkar í þessum leik en viðurkenndi þetta. Þeir leik- menn sem tóku þátt í leiknum sóru þetta hins vegar allir af sér,“ segir Stefán Garðar Níelsson. Þegar ásakanir um veðmála- brask í tengslum við leikinn komu upp á sínum tíma hafnaði Dalvík/ Reynir ósk KSÍ um samstarf við rannsóknina. - esá / sjá síðu 56 Veðmálabrask á Íslandi: Veðjaði á tap liðsfélaganna FÓLK Brynjar Dagur Albertsson, fimmtán ára dansari, sem sigraði í hæfileikakeppninni Ísland Got Talent í vetur, sýnir listir sínar á stóra sviði Þjóðleikhússins í haust. Brynjar Dagur fékk hlutverk í sýningunni um Latabæ. „Æfing- arnar eru búnar að ganga mjög vel,“ segir hann. - ka / sjá síðu 62 Sigurvegarinn á stóra sviðið: Leikur í Latabæ Bolungarvík 12° NA 4 Akureyri 15° A 3 Egilsstaðir 11° A 3 Kirkjubæjarkl. 14° A 5 Reykjavík 14° A 5 BIRTIR TIL Í dag verða víðast austan 3-8 m/s og bjart á köflum en dálítil væta eystra síðdegis. Hiti 10-18 stig, mildast inn til landsins. 4 LÖGREGLUMÁL Engin niðurstaða fékkst í rannsókn lögreglunnar á dreifingu blóðugra svínshöfða á lóð múslima við Sogamýri. Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöð- inni við Grensásveg, segir að rannsókn sé lokið. Málið var aldrei sent til ákærusviðs lögreglunnar því enginn botn fékkst í málið. Þegar málið kom upp steig Óskar Bjarnason fram og játaði á sig verknaðinn. Hann sagðist hafa verið í félagi með þremur öðrum og að markmið þeirra hafi verið að mótmæla fyrirhugaðri byggingu mosku á lóðinni. „Það var bara einhver sem var að vekja á sér athygli,“ segir Gunnar, „það liggur ekkert fyrir um það hver þarna var að verki.“ Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, sagði í samtali við Fréttablaðið þegar málið kom upp að um brot gegn banni við hatursglæpum væri að ræða. Starfsmenn Reykjavíkurborgar hentu sönnunar- gögnum í málinu að viðstaddri lögreglu. - ssb / sjá síðu 12 Rannsókn lögreglunnar á hatursglæp gegn múslimum lauk án niðurstöðu: Svínshöfuðin aldrei í ákæruferli GLÆPUR AÐ ERLENDRI FYRIRMYND Þegar málið kom upp lýsti sænskur prófessor því að svínshöfuð væru orðin einkennis- merki hatursglæpa gegn múslimum í Svíþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM UMHVERFISMÁL Akstursbann inn í Friðland að Fjallabaki er virt að vettugi þrátt fyrir lokanir og upp- lýsingagjöf. Gróðurskemmdir vegna utanvegaaksturs eru viðvar- andi vandamál. Fyrirtæki auglýsa og selja ferðir á ökutækjum inn á svæðið þrátt fyrir lögboðið bann. Umhverfisstofnun birti í gær á Facebook-síðu friðlandsins yfir- lýsingu þar sem segir að að gefnu tilefni minni svæðalandvörður á Suðurlandi á að Friðland að Fjalla- baki er nú lokað fyrir vélknúinni umferð. „Sárt er til þess að vita að menn vanvirði þessa lokun, og selji jafnvel ferðir inn á svæðið. Slíkar ferðir leiða iðulega til aksturs utan vega, sem í öllum tilfellum er lög- brot,“ segir þar. Ingibjörg Eiríksdóttir, sérfræð- ingur hjá Umhverfisstofnun, sem þar hélt á penna ætlar það engum að vinna skemmdir viljandi á sér- stæðri náttúru svæðisins og líklega við fáa aðila að sakast. Aðstæður hljóti þó að vera öllum ljósar sem á annað borð þekkja til. Hún segir að gróðurskemmdir á svæðinu sé í sumum tilfellum hægt að laga, en það eigi ekki alltaf við. „Sumt af þessu er ekki hægt að laga og tekur ár eða áratugi að jafna sig, og það er vandinn sem við erum að glíma við ár eftir ár,“ segir Ingibjörg sem hefur gert lögreglunni á Hvols- velli viðvart um hvers kyns er. Hún bætir við að á stuttum tíma í gær hafi hún með stuttri leit á netinu fundið sjö heimasíður fyrirtækja þar sem verið var að selja ferðir inn í Landmannalaugar ýmist allt árið eða frá 1. júní; allt á þeim tíma þegar er lokað,“ segir Ingibjörg. Sveinn Kristján Rúnarsson, yfir- lögregluþjónn á Hvolsvelli, segir að í kjölfar tilkynningar Umhverfis- stofnunar, og í ljósi þess að hálendið er allt meira og minna lokað, verði reynt að fara í sérstakt eftirlit á svæðinu, þ. á. m. úr lofti um helgina í samstarfi við Landhelgisgæsl- una. Sveinn Rúnar á erfitt með að trúa því að ferðaþjónustan geri út á lokuð svæði á hálendinu þó það virð- ist raunin, en hann vill beina því til fólks að virða lokanir enda séu þær ekki settar á að ástæðulausu. - shá / sjá síðu 6 Ferðir seldar í lokað friðland Ferðir eru auglýstar og seldar inn í Friðland að Fjallabaki þrátt fyrir lokanir á hálendinu. Skemmdir vegna utanvegaaksturs eru viðvarandi vandamál. Lögregla hyggur á eftirlit á landi og úr lofti vegna brotanna. Sumt af þessu er ekki hægt að laga og tekur ár eða áratugi að jafna sig, og það er vandinn sem við erum að glíma við ár eftir ár. Ingibjörg Eiríksdóttir, svæðalandvörður Verðandi stórlaxabóndi Vilhjálmur Snædal á Skjöldólfs- stöðum segir Jöklu að breytast í bestu og flottustu veiðiá landsins. 18 Flóðlýsing af dagskrá Borgarráð á enn eftir að samþykkja framlag borgarinnar vegna kostnaðar við flóðlýsingu Laugardalsvallar. 2 Víða komin mynd á meirihluta Útlit er fyrir að Sjálfstæðisflokkur verði í meirihluta í öllum sveitar- félögum á höfuðborgarsvæðinu nema í Reykjavík. 4 Leita að öðrum en Juncker Leiðtogar Evrópusambandsins þurfa að koma sér saman um nýjan forseta framkvæmdastjórnarinnar. 8

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.