Fréttablaðið - 05.06.2014, Síða 2

Fréttablaðið - 05.06.2014, Síða 2
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 KÍNA, AP 25 ár eru síðan kínverski herinn réðst inn á Torg hins himneska friðar í Peking þar sem hundruð mótmælenda féllu, 3. og 4. júní 1989. Stjórnvöld í Kína leyfa enga opinbera umræðu um atburðina. Undanfarið hefur eftirlit með kínverskum vefsíðum verið hert og öllum skrifum sem minnast á Torg hins himneska friðar er samstundis eytt. Lögregla og her hafa umkringt torgið og krafið þá sem eiga leið um torgið um að gera grein fyrir ferðum sínum og sýna skilríki.Aðra sögu er að segja frá Hong Kong þar sem fjölmenn minningarathöfn fór fram í gær. Kveikt var á kertum og minning hinna látnu heiðruð. - ih 25 ár liðin frá árás á Torg hins himneska friðar í Peking: Kínverjar banna alla umræðu VOÐAVERKA MINNST Í gær minntust 180 þúsund manns í Hong Kong fallinna mótmælenda í Peking fyrir 25 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Jón Sigurðsson, fyrr- verandi formaður Framsóknar- flokksins, telur að atburðarásin í svokölluðu moskumáli hafi verið úthugsuð, bæði hjá Sveinbjörgu Sveinbjörnsdóttur, oddvita flokks- ins í Reykjavík, og hjá núverandi formanni. „Mér virðist þetta hafa verið vel undirbúið herbragð sem heppnað- ist býsna vel í atkvæðatölum. For- sætisráðherra og formaður flokks- ins tekur í raun og veru undir með oddvita framsóknarmanna í Reykjavík. Það er ekki hægt að skilja það öðruvísi,“ segir Jón. Jón bætir við að Sigmundur Davíð hafi haft langan tíma til að undir- búa viðbrögð sín við ummælunum og þegar hann tjáir sig svo finni hann fyrst og fremst að viðbrögðum annarra. „Ég tel að þetta séu mjög óheppileg og óæskileg sjónarmið sem hérna hafa komið fram. En ef engin viðbrögð eru við þessu þá er það býsna alvarlegt og mikil breyt- ing á stefnu flokksins,“ segir for- maðurinn fyrrverandi. - hh, ebg Fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins tjáir sig um moskumálið: Telur atburðarásina úthugsaða FYRRVERANDI FORMAÐUR Jón Sigurðsson segir sjónarmiðin sem hafa komið fram vera óheppileg og óæskileg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Er silfurreynirinn róttækur?“ „Hann vill frekar vera íhaldssamur.“ Umræða hefur skapast um möguleika þess að flytja silfurreyninn við Grettisgötu 17 til að rýma fyrir hótelbyggingu. Þórólfur Jóns- son, garðyrkjustjóri borgarinnar, er ekki viss um árangur slíkrar framkvæmdar. ÚKRAÍNA Eftirlits- og samvinnu- stofnun Evrópu, ÖSE, hefur enn ekki komist í samband við tvær eftirlitssveitir sem teknar voru til fanga í austurhluta Úkraínu í maí. Úkraínska utanríkisráðu- neytið segist vilja reyna allar leiðir til að leysa gíslana úr haldi. Fyrsti hópurinn hvarf í námunda Donetsk 26. maí. Seinni hópurinn hvarf nálægt Luhansk þremur dögum síðar. Eftirlits- sveitirnar voru að störfum í aust- urhluta landsins vegna forseta- kosninganna þar í landi þann 25. maí. - sa ÖSE leitar fanga í Úkraínu: Ekkert spurst til eftirlitsmanna SAMKEPPNISMÁL Framkvæmdir eru hafnar við endurnýjun flóðlýs- ingar á Laugardalsvelli þrátt fyrir að borgarráð sé ekki búið að sam- þykkja fjárveitingu til verksins. Íþrótta- og tómstundaráð Reykja- víkurborgar samþykkti samning um fjárveitingu til verksins fyrir sitt leyti og vísaði samningnum til borgarráðs þann 9. maí síðast- liðinn. Í þeim samningsdrögum á Reykjavíkurborg að greiða um 50 milljónir króna til KSÍ á þremur árum og eignast svo fljóðljósin. Líklega mun borgarráð ekki taka samninginn til efnislegrar með- ferðar á fundi sínum í dag. Framkvæmdin, sem KSÍ hóf án þess að samn- ingur við borg- ina lægi fyrir, var ekki boðinn út og samningur gerður við einn aðila um kaupin. „Það er rétt að það stóð til að hafa málefni Laugardalsvallar á dagskrá borgarráðs en ég er ekki viss um að sú verði raunin, við þurfum að fá færi á því að fara betur yfir málið,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. „Ég er búinn að vera í öðru síðustu daga svo það er langlíklegast að ég taki þetta út af dagskrá og fari yfir þetta með sérfræðingum innan borgarinnar.“ Eva Baldursdóttir, fulltrúi Sam- fylkingarinnar í íþrótta- og tóm- stundaráði Reykjavíkur, telur það skjóta skökku við að framkvæmdir séu hafnar. „Jú, mér finnst fram- vindan skrítin,“ segir Eva. „Meiri- hluti fjármagnsins kemur frá borginni en ef svo ólíklega vildi til að þetta yrði ekki samþykkt í borg- arráði þá hljóta þeir að treysta sér til að fjármagna framkvæmdina með öðrum leið- um.“ „Það orkar tví- mælis að fram- kvæmdir séu hafnar ef verk- efnið er ekki að fullu fjármagn- að,“ segir Eva. Halldór Hall- dórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, segist ekki þekkja þetta mál nógu vel og ekki hafa gefið sér tíma til að kynna sér það í þaula. „Það er hins vegar alveg á hreinu, og það er í stefnuskrá Sjálfstæðisflokks- ins, að það eigi að vera vinnuregla innan borgarinnar að það eigi að viðhafa útboð sem víðast til að fara sem best með peninga skatt- borgara.“ sveinn@frettabladid.is EVA H. BALDURSDÓTTIR HALLDÓR HALLDÓRSSON LAUGARDALSVÖLLUR Framkvæmdir við endurnýjun flóðlýsingar eru hafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Flóðlýsing tekin af dagskrá borgarráðs Borgarráð á enn eftir að samþykkja samning um aðkomu borgarinnar að flóðlýs- ingu Laugardalsvallar. ÍTR samþykkti samninginn fyrir sitt leyti og vísaði honum til borgarráðs. Hann mun ekki vera til efnislegrar umræðu á fundi ráðsins í dag. ÞÝSKALAND Harald Range, ríkissak- sóknari í Þýskalandi, hefur skýrt frá því að rannsókn sé hafin á hler- unum bandarísku leyniþjónustunn- ar á farsíma Angelu Merkel kansl- ara. Rannsóknin beinist reyndar enn sem komið er ekki gegn ákveðnum einstaklingum, heldur er gengið út frá því að sökudólgurinn sé óþekkt- ur. Hins vegar er rannsóknin miðuð við að bandaríska þjóðaröryggis- ráðið standi á bak við njósnirnar. Í tilkynningu frá skrifstofu saksóknarans segir að fyrir liggi „áþreifanlegar staðreyndir, sem styðja grun um hugsanlegar njósn- ir óþekktra starfsmanna banda- rísku leyniþjónustunnar um far- síma Angelu Merkel kanslara“. Upp um hleranirnar komst síð- astliðið haust þegar bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden lét fjölmiðlum í té leyniskjöl frá bandaríska þjóðaröryggisráðinu. Þar kom fram að Bandaríkin höfðu fylgst með símanotkun Angelu Merkel og fleiri þjóðarleiðtoga. Merkel brást ókvæða við og sak- aði Bandaríkin um trúnaðarbrot. Range saksóknari segist gjarn- an vilja fá Edward Snowden til að bera vitni í málinu, og telur sig nú í sterkari stöðu til þess. - gb Rannsókn hafin á hlerunum á símanotkun Þýskalandskanslara: Bandaríkin grunuð um njósnir HARALD RANGE Aðalsaksókn- ari Þýskalands vill skýringar í njósnamálinu. NORDICPHOTOS/AFP Ég er búinn að vera í öðru síðustu daga svo það er langlíklegast að ég taki þetta út af dagskrá og fari yfir þetta með sérfræð- ingum innan borgarinnar. Dagur B. Eggertsson, forseti borgarstjórnar BELGÍA, AP Vladimír Pútín var ekki boðið til tveggja daga leið- togafundar G7-ríkjanna, sem hófst í Brussel í gær og lýkur í dag. Hann er því enn í skammar- króknum vegna afstöðu sinnar til ólgunnar í Úkraínu. Í mars ákváðu ríkin sjö að fundurinn yrði ekki haldinn í Sotsjí í Rússlandi og að Rússar yrðu ekki með. Honum er hins vegar boðið til Frakklands á morgun, þegar evr- ópskir leiðtogar koma saman til að minnast þess að sjötíu ár eru liðin frá lokum seinni heimsstyrjaldar- innar. - gb Pútín enn í skammarkrók: Ekki boðið til leiðtogafundar FJARÐABYGGÐ Áframhaldandi meirihlutasamstarf Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks verður að óbreyttu tilkynnt síðdegis í dag. Þetta segir Jens Garðar Helga- son, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð. Hann gerir einnig ráð fyrir að Páll Björgvin Guðmundsson haldi áfram sem óháður bæjarstjóri. Jens segir einhvern áherslumun verða hjá meirihlutanum milli kjörtímabila í ljósi bættrar afkomu bæjarins. - ih Býst við tilkynningu í dag: Sami meirihluti í Fjarðabyggð SPURNING DAGSINS Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 3 brennarar úr ryðfríu stáli Opið laugardaga til kl. 16

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.