Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 4
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
95.800
m/allt innifalið
Netverð á mann frá kr. 95.800 á Maleme Mare m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 121.100 á Maleme Mare
m.v. 2 fullorðna í stúdíóíbúð. 12. júní í 11 nætur.
Krít 49.900Flugsæti frá kr.
62% Íslendinga tekur lýsi þrisvar í viku eða
oftar.
Að jafnaði tekur landinn lýsi um
fjórum sinnum í viku, en alls tekur
um helmingur landsmanna lýsi
daglega. Heimild: Matís
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
SUMARBLÍÐA Það verður vonandi ekki hægt að kvarta mikið yfir veðrinu næstu
daga. Spáin býður upp á bjartviðri og hita víðast á bilinu 14-20 stig, hlýjast í
innsveitum á Suðvesturlandi.
12°
4
m/s
13°
3
m/s
14°
5
m/s
12°
9
m/s
Hæg
breytileg
átt.
Hæg
breytileg
átt eða
hafgola.
Gildistími korta er um hádegi
21°
33°
17°
20°
17°
17°
21°
20°
20°
23°
19°
25°
25°
27°
24°
20°
19°
20°
14°
5
m/s
12°
5
m/s
11°
3
m/s
10°
4
m/s
15°
3
m/s
14°
3
m/s
8°
3
m/s
16°
18°
18°
16°
13°
13°
17°
14°
15°
16°
16°
16°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN
KOSNINGAR Reykjavík er eina
sveitar félagið á höfuðborgarsvæð-
inu þar sem Sjálfstæðisflokkur-
inn er ekki í meirihlutaviðræðum
en oddvitar Samfylkingar, Bjartr-
ar framtíðar, Vinstri grænna og
Pírata hafa fundað síðustu daga og
skoða nú kosningaloforð og málefna-
áherslur flokkanna.
Í Hafnarfirði hafa formlegar við-
ræður bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokks og Bjartrar framtíðar haf-
ist en ekki tókst að mynda samstarf
allra flokka eins og Björt framtíð
hafði boðað með hugmynd sinni um
þjóðstjórn, bæði fyrir og eftir kosn-
ingar.
„Við höfum rætt í þrjá daga við
oddvita allra flokka og eftir þá fundi
kom í ljós að það gengi ekki. Við
komum aldrei öllum hópnum saman
til að ræða málið,“ segir Guðlaug
Kristjánsdóttir, oddviti Bjartrar
framtíðar, en flokkurinn er í lykil-
stöðu til að mynda meirihluta.
Guðlaug segir að hún hafi
mætt því viðmóti frá öllum
flokkum að mikilvægt
væri að hafa minnihluta og
meirihluta og að hugmynd
um þjóðstjórn væri fjar-
stæðukennd. Hún segir við-
ræður við Sjálfstæðisflokk
ganga vel en ekki hafi enn
verið rætt hvort hún eða
Rósa Guðbjartsdóttir fái
borgarstjórastólinn.
Oddvitar Vinstri grænna og Sam-
fylkingar í Hafnarfirði eru ekki
sammála þessari greiningu Guð-
laugar. Þau segjast bæði hafa verið
tilbúin að ræða samstarf allra
flokka og því hafi hugmyndin alls
ekki strandað hjá þeim.
„Það hafa aðeins farið fram
óformlegir fundir og aldrei
með öllum flokkum. Þau í
Bjartri framtíð hafa greini-
lega ekki treyst sér til að
reyna þetta til þrautar,“
segir Guðrún Ágústa Guð-
laugsdóttir, oddviti Vinstri
grænna og fráfarandi
bæjar stjóri.
Gunnar Axel Axels-
son, oddviti Samfylkingar,
tekur í sama streng. „Okkur er sagt
að þetta hafi steytt á skeri,“ segir
hann. „En hvaða sker það er, það er
náttúrulega Sjálfstæðisflokkurinn.“
Í Garðabæ og á Seltjarnarnesi
myndar Sjálfstæðisflokkurinn
hreinan meirihluta og í Kópavogi
ræða Sjálfstæðisflokkur og Björt
framtíð meirihlutasamstarf.
Í Mosfellsbæ gæti Sjálfstæðis-
flokkurinn myndað hreinan meiri-
hluta en er þó í viðræðum við
Vinstri græn um samstarf. Flokk-
arnir hafa unnið saman þar í bæ síð-
astliðin átta ár og er hugur í mönn-
um að halda því áfram.
erla@frettabladid.is
Víða komin mynd
á nýjan meirihluta
Það lítur út fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn verði í meirihluta í öllum sveitarfélög-
unum á höfuðborgarsvæðinu nema í Reykjavík. Í Hafnarfirði er hugmynd Bjartrar
framtíðar um þjóðstjórn út af borðinu og viðræður við Sjálfstæðisflokk hafnar.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Ef þær meirihlutaviðræður sem eru nú í gangi á höfuð-
borgarsvæðinu ganga eftir mun Sjálfstæðisflokkurinn vera í meirihluta í öllum
sveitarfélögum nema í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURJÓN
Við
komum aldrei
öllum hópn-
um saman til
að ræða
málið.
Guðlaug
Kristjánsdóttir, oddviti Bjartrar
framtíðar í Hafnarfirði
GUNNAR AXEL
GUNNARSSON
REYKJANESBÆR Í Reykjanesbæ
ganga meirihlutaviðræður vel
en þar ræða oddvitar Frjáls afls,
Samfylkingar og Beinnar leiðar
samstarf.
Oddvitarnir
hafa undanfarna
daga fundað
með bæjarfull-
trúa Framsókn-
arflokksins en
Friðjón Einars-
son, oddviti Sam-
fylkingar, segir
að engin niður-
staða sé komin og allir möguleikar
séu skoðaðir.
Friðjón gerir ráð fyrir að við-
ræður klárist um næstu helgi.
- ebg
Viðræður í Reykjanesbæ:
Framsókn er
inni í myndinni
Íslenska kalkþörungafélagið á
Bíldudal fjárfesti hér á landi
fyrir um hálfan milljarð króna
á síðasta ári. Upphæðin fór að
mestu í að stækka verksmiðju
fyrirtækisins um helming.
Fyrirtækið safnar og vinnur
kalkþörungaset úr Arnarfirði
sem er þurrkað í mjöl og aðrar
afurðir. Nánast öll framleiðslan
er seld á erlendum mörkuðum
og notuð í framleiðslu á lífrænu
dýrafóðri, fæðubótarefnum og
gróðuráburði. - hg
Framkvæmdir á Bíldudal:
Fjárfesti fyrir
hálfan milljarð
SVÍÞJÓÐ Flugur geta verið hvim-
leiðar til lengdar fyrir búfénað
og menn.
Því hafa bændur við vatnið
Torptjärn í Suður-Svíþjóð brugð-
ið á það ráð að láta kýr traðka
niður bakka vatnsins þar sem
mýlirfur hafast við.
Aðferðin hefur fækkað mýi um
allt að sjötíu prósent.
Bændur við vatnið hafa einnig
notað gasgildrur. Tuttugu gas-
gildrur, sem beitt var síðasta
sumar, drápu yfir átta milljónir
flugna. Vefsíða Landssambands
kúabænda greinir frá. - ih
Bregðast við flugnaplágu:
Kúm beitt gegn
mýi í Svíþjóð
VIÐSKIPTI Krónan styrktist um
tvö prósent á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs. Krónan styrktist þrátt
fyrir að viðskiptahalli hafi verið
neikvæður um 3,5 milljarða króna
ef marka má bráðabirgðatölur frá
Seðlabanka
Íslands.
Þetta
kemur
fram í
Morg-
unkorni
Íslands-
banka.
Ástæð-
ur hallans
eru léleg
loðnuvertíð,
lágt verð á áli og
fiski ásamt auknum vöruinnflutn-
ingi.
Íslandsbanki spáir þó batn-
andi viðskiptajöfnuði þegar líður
á sumar með fjölgun ferðamanna
og hækkandi verði á áli og fiski.
- ih
Ál- og fiskverð valda halla:
Krónan styrkist
í viðskiptahalla
FRIÐJÓN
EINARSSON
HAFNARFJÖRÐUR Yfirkjörstjórn
í Hafnarfirði hefur samþykkt
ítrekaða beiðni Pírata um endur-
talningu atkvæða í Hafnarfirði.
Fyrri beiðni þeirra um endur-
talningu var
hafnað en eftir
umorðun féllst
yfirkjörstjórn á
að telja aftur.
Sex atkvæð-
um munaði
á Brynjari
Guðnasyni,
oddvita Pírata,
og þriðja manni
Samfylkingar,
Öddu Maríu Jóhannsdóttur.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
Brynjari og Hafþóri Sævarssyni
umboðsmanni framboðs Pírata í
Hafnarfirði, hafði þeim ekki bor-
ist úrskurður yfirkjörstjórnar.
Endurtalning atkvæða mun
fara fram í kvöld.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut
fimm bæjarfulltrúa í kosningun-
um síðastliðinn laugardag, Sam-
fylkingin þrjá, Björt framtíð tvo
og Vinstri græn einn. - sa
Ný beiðni bar árangur:
Atkvæði talin
aftur í firðinum
BRYNJAR
GUÐNASON
MENNTUN Ríkisendurskoðun hvet-
ur menntamálaráðuneytið til þess
að halda áfram að þróa og efla
fræðslu til einstaklinga með stutta
skólagöngu.
Tillagan er byggð á úttekt Capa-
cent um framhaldsfræðslu. Það er
fræðsla helst ætluðum fullorðnum
einstaklingum sem hlotið hafa tak-
markaða menntun.
Capacent leggur til að mennta-
málaráðuneytið móti stefnu fyrir
framhaldsfræðslukerfið til fram-
tíðar. Einnig er bent á að skoða
mætti möguleika kerfisins til þess
að auðvelda einstaklingum sem
flosnað hafa upp úr námi að hefja
aftur skólagöngu.
Að auki mætti skoða möguleika
kerfisins til þess að efla starfs-
nám og minnka brottfall úr fram-
haldsskólum.
Fram kemur í greiningu Capa-
cent að á milli áranna 2009 og 2014
voru fjárveitingar til framhalds-
fræðslukerfisins 7,5 milljarðar.
Capacent segir því fé hafi heilt
yfir verið vel varið. - ih
Ríkisendurskoðun bendir á möguleika þess að efla fræðslu lítt menntaðra:
Leggja til eflingu fræðslukerfis
RÁÐUNEYTIÐ Úttekt á fræðslu til lítt
menntaðra hefur verið send til mennta-
málaráðuneytis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN.