Fréttablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 12
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Ég er ekki aðeins að tala um aðildarviðræður sem slíkar, heldur trúverðugar viðræður. Aðildarferlið hefur jákvæð áhrif á umsóknarlöndin meðan á viðræðum stendur, ekki aðeins þegar löndin hafa samþykkt inngöngu. Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Glös og skálar ekki á rýmingarsölu. GERIÐ GÓÐ KAUP! Garðhúsgögn, stólar og borð. Mikil verðlækkun. Vara hættir! RÝMINGARSALA Íslenskir arkitektar hanna nýja mosku Tveir söfnuðir múslima eru starfandi á Íslandi með tæplega 850 félagsmönnum. Fordómar gegn múslimum virðast ekki vera í rénun þrátt fyrir að nú sé árið 2014. ➜ Hatursfull umræða gegn múslimum Opinber umræða á Íslandi hefur oft einkennst af öfgafullum staðal- ímyndum um múslima. Þeir sem tjá sig steypa öllum múslimum í sama form og svo virðist sem ótti ríki við uppgang múslima í heiminum. Hér á eftir fara nokkur ummæli um múslima í opinberri umræðu: „Múslimar eru að dreifa sér um heiminn og við eigum að halda þeim í skefjum“ Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, 10. júlí 2013 í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. „Múslimar koma frá öðrum heimi, þetta eru tveir ólíkir heimar og það þýðir ekkert að blanda þeim saman, þeir eiga bara að fá að vera í friði hvor fyrir öðrum.“ Guðmundur Franklín, 12. september 2011 í viðtali við DV. „Menning kristinna manna og múslima er með öllu ósættanleg og verður alltaf.“ Ársæll Þórðarson í grein í Morgunblaðinu 20. desember 2013. „Múslimar í Svíþjóð eru 95 prósent á Féló og eru til vandræða, nauðga sænskum stúlkum, fremja heiðursmorð, brenna bíla, leikskóla, skóla, hælisleitendur, ræna gamla fólkið og fólk í hjólastólum.“ Óskar Bjarnason 3. júní 2014 á Facebook-síðunni Mótmælum mosku á Íslandi. „Íslam er einungis að litlu leyti trú, en réttara er að lýsa því sem heildstæðu kúgandi pólitísku stjórnkerfi sem tekur til allra þátta mannlífsins … Að halda að jihad muni ekki fylgja moskum á Ís- landi er hreinn og beinn barnaskapur.“ Ásgeir Ægisson í grein í Morgunblaðinu 10. ágúst 2013. ➜ Súnnítar á Íslandi í tveimur félögum Bæði trúfélög múslima á Íslandi aðhyllast súnní- sið en súnnítar skipa mikinn meirihluta múslima í heiminum. Ágreiningur á milli trúfélaganna tveggja er því ekki beint trúarlegs eðlis. Salmann Tamimi, fyrrverandi formaður Félags múslima á Íslandi, hefur látið hafa eftir sér að Menningarsetur múslima á Íslandi séu öfgafyllri samtök en Félag múslima á Íslandi. „Ég þurfti að senda þá frá félaginu okkar því ég þoli ekki neikvæðni. Við erum bjartsýnisfólk og ef það er eitthvað að þá leysum við það en ekki með neinni neikvæðni,“ segir Salmann um forsvarsmenn Menningarmiðstöðvar múslima á Íslandi. ➜ Svínshöfuð til vanhelgunar Þann 27. nóvember í fyrra dreifðu óprúttnir aðilar blóðugum svínshöfðum á lóðina við Sogamýri sem Félagi múslima á Íslandi hafði verið úthlutað undir mosku. Einnig var rifnum blaðsíðum úr Kóraninum dreift og rauðri málningu eða blóði slett á þær. Starfsmenn Reykjavíkurborgar hirtu svínshöfuðin og blaðsíðurnar og förguðu þeim, að viðstaddri lögreglu. Í kjölfarið steig maður fram í fjölmiðlum og lýsti sig, og þrjá aðra menn, ábyrga fyrir dreifingunni. Hann var í kjölfarið kallaður í skýrslutöku. Lögregla segir nú að ekkert hafi komið út úr rannsókn málsins og það hafi aldrei verið sent ákærusviði lögreglunnar. Málinu er því lokið án þess að niðurstaða fáist í það eða ein- hver verði sóttur til saka. snaeros@frettabladid.is VÍNARBORG Stefan Füle, stækk- unarstjóri Evrópusambandsins, sagði á þriðjudag á ráðstefnu í Vínarborg að umsóknarríki að sambandinu ættu að hraða ferlinu að aðgöngu í sambandið. Það væri til hagsbóta fyrir öll aðildarríki sambandsins og til þess fallið að koma efnahagsástandi umsóknar- landanna á réttan kjöl, íbúum þeirra til hagsbóta. „Ég er ekki aðeins að tala um aðildarviðræður sem slíkar, heldur trúverðugar viðræður. Aðildarferl- ið hefur jákvæð áhrif á umsóknar- löndin meðan á viðræðum stend- ur, ekki aðeins þegar löndin hafa samþykkt inngöngu,“ sagði Füle á ráðstefnu ríkja Balkanskaga sem haldin var í Vínarborg. Füle lét ummælin falla tveim- ur vikum eftir kosningar til Evrópuþingsins, kosningar þar sem flokkar andsnúnir frekari stækkun sambandsins unnu stór- sigur. Füle taldi frekari stækkun sam- bandsins vera öflugasta tæki ESB til að bæta efnahagsástand allra aðildarríkja sambandsins. -sa Umsóknarferli ríkja Balkanskaga rætt á ráðstefnu landanna í Vínarborg: Füle vill flýta umsóknarferlinu STEFAN FÜLE Vill hraða aðildarferli umsóknarríkja. MYND/AFP Þann 27. nóvember dreifðu menn svínshöfðum á þá lóð sem Reykjavíkurborg hafði úthlutað múslimum með það að markmiði að van- helga hana. Félag múslima á Íslandi fær loksins svar frá Reykja- víkurborg. Moska mun rísa í Sogamýrinni innan skamms. Félagar í Menningarsetri múslima á Íslandi verða 300 talsins. Múslimar á Íslandi sem eru skráðir í trúfélög eru samtals 841 þann 1. janúar 2014. 2014 Löng leið að mosku í Reykjavík MÚSLIMAR Á ÍSLANDI ➜ Félag múslima á Íslandi efnir til hönnunarsamkeppni um nýja mosku í Sogamýrinni. ➜ Hönnunarsamkeppnin miðar að því að moskan falli að íslenskri bygging- arlist og hæfi umhverfi sínu. 1997 Við vorum kannski fjögur eða fimm sem komum að stofnun- inni. Svo gengu hlutirnir mjög hratt fyrir sig Salmann Tamimi, fyrrv. formaður Félags múlima á Íslandi, um stofnunina. 2004 ➜ Félagar í Félagi múslima á Íslandi verða 300 talsins. 1997 ➜ Félag múslima á Íslandi stofnað. 2013 Múslimar keyptu húsnæði í Ármúla og gerðu það upp. Húsnæðið hefur þjónað sem bænahús þeirra síðan þá. 2000 Menningarsetur múslima á Íslandi fær húsnæði við Skógarhlíð. Fjárfestar komu meðal annars frá Sádi-Arabíu. 2012 Menningarsetur múslima á Íslandi er stofnað og fær stöðu formlegs trú- félags. Um klofning úr Félagi múslima á Íslandi er að ræða. Þetta ár verð- ur nokkur fækkun í Félagi múslima á Íslandi sem tengja má við stofnun hins nýja félags. 2009 Fyrsta giftingin í söfnuðin- um. Íslenskt par gifti sig að múslimskum sið. 2002 Félag múslima leggur fram umsókn sína um úthlutun lóðar fyrir mosku. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var borgarstjóri í þá tíð. 1999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.