Fréttablaðið - 05.06.2014, Qupperneq 22
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 22
Fjárfestingarsamningur á milli
stjórnvalda og hollenska fyrir-
tækisins Esbro um ívilnanir
vegna risagróðurhússins sem
rísa á nálægt Grindavík liggur
fyrir. Samningurinn verður ekki
undirritaður fyrr en forsvars-
menn Esbro ganga endanlega
frá fjármögnun verkefnisins og
öðrum lausum endum.
Þetta staðfestir Kristján
Eysteinsson, starfsmaður Esbro
og umsjónarmaður verkefnisins
hér á landi. Hann segir fjármögn-
un miða ágætlega og að það muni
skýrast á næstu vikum hvort og
þá hvenær framkvæmdir hefjist.
„Það er verið að vinna í fjár-
mögnun verkefnisins með aðilum
sem koma að þessu sem hluthafar
og með lánastofnunum og ýmsum
öðrum,“ segir Kristján.
Esbro leiðir fjármögnun
gróður hússins. Kristján segir
ekki tímabært að gefa upp hvaða
fjárfestar séu þegar komnir að
verkefninu. Þar sé um að ræða
bæði innlenda og erlenda aðila.
Áætlanir fyrirtækisins gera ráð
fyrir að framkvæmdir hefjist í
haust en þær áttu upphaflega að
fara í gang snemma á þessu ári.
„Þetta hefur tekið lengri tíma
en menn ætluðu eins og gerist oft
í stórum verkefnum sem þessu.
Það er mín skoðun að áætlan-
ir varðandi fjármögnun og und-
irbúning hafi verið of brattar.
Menn voru einfaldlega of bjart-
sýnir á að geta klárað þetta á
skemmri tíma en raun ber vitni,“
segir Kristján. Hann bendir á að
önnur stór fjárfestingarverkefni
í Helguvík og á Bakka við Húsa-
vík hafi tekið lengri tíma en
fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir.
Hollenska fyrirtækið vill reisa
tvö gróðurhús og þjónustubygg-
ingu undir framleiðslu á tómöt-
um til útflutnings. Byggingarnar
yrðu staðsettar í Mölvík, um tíu
kílómetra fyrir utan Grindavík,
og samtals um 150 þúsund fer-
metrar að stærð. Heildarkostn-
aður verkefnisins er áætlaður um
35 til 40 milljónir evra eða um 5,4
til 6,2 milljarðar króna. Drög að
samningi um kaup á 35-40 mega-
vöttum af raforku við HS Orku
liggja fyrir.
„Það vill svo til að þetta land er
mjög gott og því þarf ekki að fara
í mikla jarðvinnu. Engu að síður
þarf að setja allt út fyrir húsinu
en það mun koma síðan í gámum
og verður sett saman á staðnum,
stál, ál og gler.“
Ef fjárfestingarsamningurinn
verður undirritaður mun fyrir-
tækið fá afslátt af ýmsum opin-
berum sköttum og gjöldum og
meðal annars greiða lægri fast-
eignaskatt til Grindavíkur.
Róbert Ragnarsson, bæjar-
stjóri Grindavíkur, segir bæinn
hafa gengið frá öllum skipulags-
málum í mars.
„Boltinn er núna hjá fyrirtæk-
inu. Okkar hlutverk er að ganga
frá skipulaginu og við erum í við-
ræðum við ríkið, sem er landeig-
andinn, um leigu eða kaup á lóð-
inni undir húsið.“
haraldur@frettabladid.is
Okkar
hlutverk er að
ganga frá
skipulaginu
og við erum í
viðræðum við
ríkið, sem er
landeigandinn, um leigu
eða kaup á lóðinni undir
húsið.
Róbert Ragnarsson,
bæjarstjóri Grindavíkur
Samningur um ívilnanir til
risagróðurhúss liggur fyrir
Hollenska fyrirtækið Esbro þarf að ganga frá fjármögnun 150.000 fermetra gróðurhúss áður en samningur við
stjórnvöld um ívilnanir verður undirritaður. Fjármögnun miðar ágætlega og framkvæmdir gætu hafist í haust.
GRINDAVÍK Heildartekjur bæjarins vegna uppbyggingar Esbro gætu orðið um 60
milljónir króna á ári. MYND/ODDGEIR KARLSSON
Þetta hefur tekið lengri tíma en menn ætluðu eins
og gerist oft í stórum verkefnum sem þessu. Það er mín
skoðun að áætlanir varðandi fjármögnun og undirbúning
hafi verið of brattar. Menn voru einfaldlega of bjartsýnir
á að geta klárað þetta á skemmri tíma en raun ber vitni.
Kristján Eysteinsson, umsjónarmaður gróðurhúsaframkvæmda Esbro á Íslandi.
Arnar S. Gunnarsson, öryggis-
sérfræðingur hjá Nýherja, hefur
hlotið tvær öryggisvottanir í
tölvuhakki.
Annars vegar er um að ræða
vottunina Computer Hacking
Forensics á vegum Hacker Uni-
versity. Hins vegar Certified Eth-
ical Hacker á vegum Promennt.
Báðar gráðurnar eru vottaðar í
gegnum fyrirtækið EC Council.
Arnar segir að báðar vottan-
irnar hafi gefið honum mikla við-
bótarþekkingu í alhliðaöryggis-
málum tölvukerfa.
„Einkum var mikilvægt að fá
sýn þess sem er að ráðast á tölvu-
kerfi. Sú reynsla er í raun ómet-
anleg í vörnum gegn tölvuþrjót-
um,“ segir Arnar. - rkr
Náði í tvær öryggisvottanir:
Fékk vottun
í tölvuhakki
MIKILVÆG REYNSLA Arnar S. Gunnars-
son, öryggissérfræðingur hjá Nýherja.
Forsvarsmenn United Silicon hf.
gera ráð fyrir að jarðvegsvinnu á
lóð fyrirtækisins í Helguvík ljúki
í júlímánuði og að unnt verði að
hefja framkvæmdir við kísilver
fyrirtækisins í beinu framhaldi.
Þessa dagana er unnið á
stórum vinnutækjum við að jafna
út efri hluta lóðarinnar en neðri
hluti hennar er nánast tilbúinn,
samkvæmt fréttatilkynningu
Reykjanesbæjar.
Þar segir að gert sé ráð fyrir
að verksmiðjan hefji starfsemi á
fyrri helmingi 2016 og að fullum
afköstum verði náð 2017. Kísil-
verið kemur til með að nota 35
megavött af afli en raforkusölu-
samningur við Landsvirkjun
liggur fyrir.
Um 160 manns munu vinna við
uppbyggingu verksmiðjunnar en
um 70 starfa þar í fyrsta áfanga
árið 2016. Áætluð ársframleiðsla
kísilversins er 21 þúsund tonn af
kísilmálmi og 7.500 tonn af kís-
ilryki. Heildarfjárfesting fyrir-
tækisins hljóðar upp á 74 milljón-
ir evra, eða tæplega 12 milljarða
króna.
Eins og komið hefur fram
stefnir Thorsil ehf. einnig að
framleiðslu kísilmálms í Helgu-
vík. Fyrirtækið hefur fengið
úthlutað lóð við hliðina á United.
Thorsil tilkynnti í síðustu viku
um sölusamning á nær helmingi
afurða sinna til næstu átta ára. Í
framhaldinu var gengið frá fjár-
festingarsamningi við Reykja-
nesbæ og ríkið.
- hg
United Silicon mun að öllum líkindum ljúka jarðvegsvinnu á lóð fyrirtækisins í Helguvík í júlímánuði:
Framkvæmdir við kísilver hefjast í sumar
HELGUVÍK Mörg fyrirtæki hafa óskað
eftir lóð á iðnaðar- og hafnarsvæðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FERÐAÞJÓNUSTA Nærri 300 þúsund
manns hafa sótt Ísland heim það
sem af er ári. Fjölgunin nemur
nær 70 þúsund ferðamönnum,
samkvæmt nýjum tölum Ferða-
málastofu.
Fjöldi ferðamanna sem fóru frá
landinu í maí hefur aldrei verið
meiri, en héðan fóru 66.700 í mán-
uðinum miðað við 55.600 í maí í
fyrra. Fjöldi ferðamanna hefur
nærri tvöfaldast frá árinu 2011.
Fjölgun hefur einnig verið í hinum
mánuðum ársins miðað við sömu
mánuði í fyrra.
Ferðamönnum fjölgar frá vel-
flestum löndum, þó mælist ekki
fjölgun á meðal Þjóðverja og Norð-
manna. Bandaríkjamenn og Bret-
ar eru stærsti ferðamannahópur-
inn í maí líkt og í fyrra. Þeir ásamt
Kanadabúum standa undir nærri
helmingi allrar fjölgunar ferða-
manna í maí. - sa
Ferðamönnum fjölgar enn:
300 þúsund
þegar komin
LEIFSSTÖÐ Ferðamönnum hefur fjölg-
að. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá
árinu 1972 þegar Mjólkursamlag KEA hóf framleiðslu
hans á Akureyri. Fyrirmynd hans er Jarlsberg,
frægasti ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með
örlítinn möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna.
Frábær á morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða
bara einn og sér.
www.odalsostar.is
ÓÐALSOSTUR
TIGNARLEGUR