Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.06.2014, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 05.06.2014, Qupperneq 36
FÓLK|TÍSKA Letizia, krónprinsessa á Spáni, er 41 árs. Margir erlendir fjölmiðlar spyrja sig, eftir að fréttir bárust um afsal Spánarkonungs, hvort Letizia verði mesta tískudrottn- ing Evrópu. Letizia og Filip hafa verið gift frá árinu 2004 og héldu nýlega upp á tíu ára brúðkaups- afmæli. Saman eiga þau tvö börn. Letizia er vinsæl hjá ljósmyndur- um, enda þykir hún einstaklega smekkleg og elegant kona. Letizia starfaði sem fréttaþulur hjá spænsku sjónvarpsstöðinni TVE þegar þau Filip kynntust. Áður starfaði hún sem blaðamaður. Það sem hefur vakið athygli þeirra sem spá í tísku kóngafólks er hversu oft prinsessan sést í síðbuxum. Hún styður spænska framleiðslu og sést gjarnan í fötum frá Mango og Zöru. Þá eru spænsku tískuhönnuðirnir Felipe Varela og Lorenzo Caprile í uppáhaldi hjá henni. Spánverjar hafa fagnað því að hún berst ekki mikið á og kaupir ódýr föt. Það hefur aukið traust þjóðarinnar til hennar í þeim efnahagsþrenging- um sem orðið hafa á Spáni. Það sama verður víst ekki sagt um tengdaföður hennar sem hefur verið sakaður um eyðslusemi og óeðlilegt lúxuslíf. MESTA TÍSKUDROTTNINGIN KÓNGAFÓLKIÐ Jóhann Karl Spánarkonungur afsalaði sér krúnunni á mánudag. Arftaki hans er sonurinn Filip prins. Eiginkona hans, Letizia, hefur ávallt vakið athygli hvar sem hún kemur og verður líklega enn meira í sviðsljósinu í framtíðinni. FÍLIP OG LETIZIA Hjónin hafa ferðast mikið um Spán. Hér eru þau í Palma á Mallorca.Í MADRÍD Letizia í höllinni. ■ Klæðnaður flokkast sem „vintage“ ef hann er frá 1920 til 1960. Eftir það er talað um „retro“. ■ Fyrsta Vogue-tímaritið kom út 17. desember árið 1892. ■ Fyrstu gerviaugnhárin komu fram á sjónarsviðið árið 1916. Þau voru búin til að áeggjan Hollywood-framleiðandans D.W. Griffith. Hann notaði þau til að undirstrika augu leikkonu. Þau voru gerð úr mannshári. ■ Fyrsti nútímailmvatnið kom á markað árið 1921. Það var Chanel No. 5. ■ Á 15. öld notuðu fatahönnuðir litlar dúkk- ur til að sýna hönnun sína. ■ Fyrsti nútímabrjóstahaldarinn var fundinn upp af yfirstéttarkon- unni Mary Phelps frá New York árið 1914. ■ Í dag eru það mestmegnis konur sem nota skartgripi. Þeir voru þó upphaflega notaðir af kóngum og öðrum fyrirmönnum til að undir- strika völd og gefa til kynna sigur í orrustum. ■ Rasssíðar gallabuxur, lágar í mittið, eiga rætur að rekja til fangelsa í Los Angeles en fangar þar máttu ekki nota belti. Fyrir vikið voru þeir með buxurnar á hælunum. ■ Regnhlífar voru upphaflega hugsaðar til að verja fólk gegn sól – ekki regni. ■ Fjórar stærstu tískusýningar heims eru haldnar á eftirfarandi stöðum í þessari röð; New York, London, Mílanó og París. ■ Lacoste-krókódíllinn var fyrsta lógóið sem fest var á nokkurn fatnað. ■ Coco Chanel kom „litla svarta kjólnum“ á kortið. Hann þykir algjör- lega tímalaus og á alltaf við. ■ Elísabet I. Englandsdrottning var svo hrifin af höttum að hún skip- aði öllum stúlkum eldri en sjö ára að vera með hatt á sunnudögum og öðrum hátíðisdögum. Þær sem neituðu fengu sekt. KARLAR BYRJUÐU AÐ NOTA SKARTGRIPI Tískan er samofin sögunni. Hér fara nokkrar skemmtilegar tískustaðreyndir. LANGT FRÁ ÞVÍ AÐ VERA NÝJASTA TÍSKA Fyrstu gerviaugnhárin komu fram á sjónarsviðið árið 1916. Sjá fleiri myndir á HELGARSPRENGJA Í FLASH áður 19.990 Nú 13.990 kr. Sumarkjólar 30% afsl. bolir og mussur á 5000 kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.