Fréttablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 38
FÓLK|TÍSKA
Ofurfyrirsætan Tyra Banks mun stýra nýjum spjallþætti á sjón-varpsstöð Disney ABC. Fyrsti
þátturinn fer í loftið á næsta ári en fyrir-
sætan skrifaði undir samning við Disney
ABC á dögunum.
Þátturinn mun fjalla um lífsstíl og
spanna allt frá tísku og fegrunarráðum
Tyru til skemmtiefnis og innanhúss-
hönnunar. Þar að auki mun Tyra ausa
úr reynslubrunni sínum og ráðleggja
áhorfendum hvernig ná megi markmiðum
sínum og nýta eigin hæfileika til fulls.
„Það brennur innra með mér löngun til
að hjálpa konum og veita þeim innblást-
ur til að feta nýjar slóðir,“ sagði Tyra
Banks í fréttatilkynningu. Hún sagðist
jafnframt afar spennt fyrir nýja þættinum
og hvetur konur til að „stjórna sínu eigin
lífi, með heiðarleika, húmor og nýjustu
trixunum, án þess að verða yfirþyrmandi
eða tilgerðarlegar.“
Ferill Tyru sem fyrirsætu hófst fyrir
alvöru þegar hún birtist á forsíðu tímarits-
ins Sports Illustrated Swimsuit Issue árið
1996, þá tuttugu og þriggja ára, en þá hafði
hún gengið tískupallana í átta ár. Tyra
var einn af Victoria’s Secret-englunum frá
1997-2005 og sneri sér að síðan að leik,
meðal annars í tónlistarmyndböndum, í
sjónvarpi og í kvikmyndum. Hún stýrir
eigin þætti, Americas Next Top Model, gaf
út smáskífuna Shake ya body árið 2004 og
gaf út bókina Modelland árið 2010, svo fátt
eitt af afrekum hennar sé nefnt.
Nú þegar býr Tyra Banks að milljónum
áhangenda og er líkleg til að landa spenn-
andi viðmælendum í nýja þáttinn gegnum
sambönd sín í tískuheiminu.
Heimild: fashionista.com
TYRA BANKS MEÐ
NÝJAN SPJALLÞÁTT
TÍSKA Ofurfyrirsætan Tyra Banks hefur sýnt fyrir frægustu tískumerki heims,
leikið í kvikmyndum og skrifað bækur. Síðustu ár hefur hún haslað sér völl
sem þáttastjórnandi í sjónvarpi og nú er nýr þáttur í bígerð.
OFURKONA Ofurfyrirsætan Tyra Banks mun stýra nýjum spjallþætti.
NORDICPHOTOS/GETTY
Suzy Menkes lofar í fyrstu
grein sinni fyrir Breska
Vogue að vera ekki
tíkarleg í umfjöllunum
sínum en Suzy flutti
sig nýlega yfir á
Vogue eftir áratuga
farsælt starf sem
tískublaðamaður á
International Her-
ald Tribune.
Suzy gerir að
umtalsefni hina ljótu
hlið tískuheimsins og
hvernig netvæðingin hafi
opnað flóðgáttir niðrandi
ummæla um útlit og
klæðnað fræga fólksins.
„Ef hægt er að segja eitt-
hvað illkvittið í 140 bók-
stöfum, er alltaf einhver tilbúinn til að kasta
skít,“ segir Suzy og tekur sem dæmi þá útreið
sem Nicole Kidman fékk á rauða dreglinum í
Cannes. Nicole var kölluð prinsessan af Botox!
„Ég legg annan skilning í það að vera tísku-
gagnrýnandi,“ bætir Suzy við og segist ætla,
á nýjum vinnustað, að vinna undir möntrunni
„no bitching“.
Líklega hefur tískuheimurinn þó ekki búist
við miklu skítkasti frá Suzy. Sjötíu og eins ár
er hún dáð innan tískuheimsins fyrir ljúfan
persónuleika sinn og sanngjarna gagnrýni um
tískusýningar og hún hefur jafnvel átt þátt í að
koma ungum hönnuðum á kortið. Suzy starfaði
sem blaðamaður á International Herald Tribune
í 26 ár áður en hún flutti sig yfir á Vogue.
EKKERT SKÍTKAST
Suzy Menkes gagnrýnir ljóta hlið tískuheimsins í grein sinni fyrir Vogue.
PRINSESSAN AF BOTOX Nicole Kidman á samúð Suzy Menkes eftir ljót
ummæli um hana á rauða dreglinum.
ENGIN TÍK Suzy Menkes lofar í
fyrstu grein sinni fyrir Vogue að
vera ekki illkvittin og tíkarleg í
skrifum sínum.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 10-15.
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Stærð 34 - 56
Verð 13.900 kr.
Póstdreifing býður upp á fjölbreytta og örugga dreifingu á blöðum og
tímaritum. Við komum sendingunni í réttar hendur. Örugglega til þín.
Birtingur treystir okkur fyrir öruggri
dreifingu á Séð og heyrt
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is
B
ra
nd
en
bu
rg
Við berum út sögur
af frægu fólki