Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 44
FÓLK|TÍSKA
Hinn klassíski barmur gullára Holly-wood virðist aftur hafa hlotið náð fyrir augum tískuspekúlanta. Í það
minnsta ef marka má júníútgáfu tímaritsins
Vogue en forsíðuna prýðir hin fagra og ítur-
vaxna fyrirsæta og leikkona Kate Upton.
Upton klæðist þar bikinítoppi úr smiðju
Dolce & Gabbana sem hefur yfir sér blæ
sjötta áratugarins.
Í grein á vefsíðu hins breska Vogue er
undirfatamerkinu Victoria’s Secret þökkuð
endurkoma brjóstanna enda séu tískusýn-
ingar fyrirtækisins orðnar að menningarfyrir-
bæri með hjálp hinna undursamlegu „Engla“.
Til dæmis eru fyrirsætur á borð við Adriönu
Lima, Doutzen Kroes og Miröndu Kerr mun
íþróttamannslegar vaxnar og með stærri
brjóst en tískufyrirsætur hafa verið hingað til.
Meira að segja tískuhönnuðir virðast farnir
að kveikja á perunni en
allt frá tíunda áratugn-
um hafa þeir einblínt á fyrirsætur með drengjalegan vöxt.
Sem dæmi gengu þær Laetitia Casta, Bar Refaeli, Catherine
McNeil og Karolina Kurkova allar tískupallanna hjá Louis
Vuitton fyrir ekki löngu, en áður hefði barmurinn gert
þær óhæfar til starfans.
Samkvæmt umboðsmanni fyrirsætna hjá IMG er
umræðan um fjölbreytileika fyrirsætna mjög ríkjandi
um þessar mundir og æ fleiri kjósa fyrirsætur sem eru
mismunandi að stærð og lögun. Þá eru tískuhönnuð-
ir orðnir opnari fyrir því en áður að breyta prufu-
fatnaði til þess að hann passi fyrirsætum sem ekki
falla inn í normið.
Brjóstamiklar konur eru einnig áberandi í ýmsum
sjónvarpsþáttum nú um stundir. Þar má nefna Sofiu
Vergara í Modern Family og Christinu Hendricks í
Mad Men.
JÚNÍHEFTI VOGUE Hin brjóstgóða Kate
Upton prýðir forsíðu Vogue í júní.
BRJÓSTIN HLJÓTA HLJÓMGRUNN
TÍSKA Sléttar bringur hafa lengi verið allsráðandi á tískupöllunum. Nú virðist hilla undir örlitla breytingu í viðhorfi tískuhönnuða til
íturvaxinna kvenna. Til marks um það er forsíða tímaritsins Vogue í júní sem skartar hinni barmmiklu Kate Upton.
CHRISTINA HENDRICKS Mad Men-leikkonan vekur
hvarvetna athygli fyrir glæsileik.
SOFIA VERGARA Leikkonan er ekki
hrædd við að sýna barminn.
LARA STONE Hollenska fyrirsætan er
á lista yfir launahæstu fyrirsæturnar.
KATE UPTON Barmur Kate hefði fyrir
nokkrum árum komið í veg fyrir frama
hennar innan tískubransans. Hún er
vinsæl fyrirsæta í dag.