Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 54

Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 54
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is „Þetta er performans í hljóði og dansi. Dansi flugsins og hug- myndanna eða hugmyndaflugsins kannski,“ segir Ragnheiður Harpa Leifsdóttir um verk sitt Flugrák- ir, lokaverk Listahátíðar sem sýnt verður klukkan 17.45 á morgun. „Svo er þetta samtal milli flugvél- anna, kórsins og áhorfenda.“ Verkið tekst á loft, í bókstaflegri merkingu, yfir Kollafirði. Tvær listflugvélar teikna form innblásið af bylgjum guðseindarinnar, sem er einnig þekkt sem Higgs-eind- in. Samtímis mun Kvennakórinn Katla túlka ferðalag flugvélanna og verður þeim söng útvarpað beint á Rás 1. „Í rauninni er hugmynd- in að baki verkinu sú að að kalla fram hvernig guðseindin hljóm- ar,“ segir Ragnheiður. „Ég rakst á umfjöllun um bylgjur guðseindar- innar í einhverju vísindatímariti og þá varð þessi mynd til í höfðinu á mér. Þetta er flæðandi og femín- ískt form, engar beinar línur bara kúptar bylgjur.“ Flugvélunum tveimur er stýrt af þrautreyndum flugmönnum og það gleður Ragnheiði sérstaklega að annar þeirra er Björn Thors sem smíðaði vélina sem hann flýg- ur sjálfur. „Björn er sjálflærður flugvélasmiður sem er kominn á eftirlaun og það er einstakt að fá hann með okkur í þetta verkefni,“ segir hún. „Hinn flugmaðurinn er Kristján Þór Kristjánsson og þeir eru báðir algjörir fluglistamenn sem hefur verið ótrúlega gaman að vinna með.“ Söngurinn er mikilvægur þáttur í verkinu og um hann sér Kvenna- kórinn Katla sem stjórnað er af Hildigunni Einarsdóttur og Lilju Dögg Gunnarsdóttur. Ragnheið- ur segir sönghluta verksins hafa sprottið upp úr hugmyndinni um að syngja heiminn til sín. „Ég var mikið að skoða hvernig fólk sér heiminn og túlkar hann og rakst þá á sögur um frumbyggja Ástr- alíu sem hafa kortlagt álfuna sína með sönglínum sem fólk gengur eftir og syngur heiminn til sín. Bak við þá hugmyndafræði liggur sú kenning að ekkert sé í rauninni til fyrr en það er sungið. Að það sem við skynjum sé ekki raunveru- legt fyrr en við getum sett það í orð. Þannig að kórinn í rauninni syngur línurnar sem flugvélarnar teikna á himininn, túlkar ferðalag þeirra og syngur heiminn til sín.“ Sýningin hefst klukkan 17.45 á morgun og áhorfendum er bent á að safnast saman við Sólfarið á Sæbrautinni. „Hægt verður að njóta verksins víða á höfuðborgarsvæðinu en við mælum með því að njóta þess við Sæbrautina og alls ekki gleyma að stilla vasadiskóin eða snjallsímana á RÁS 1,“ segir Ragnheiður. „Það er algjörlega nauðsynlegur þáttur í upplifuninni.“ Hvernig hljómar guðseindin? Lokaverk Listahátíðar verður sýnt á morgun. Það nefnist Flugrákir og höfundurinn er Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Flytjendur eru tvær listfl ugvélar og Kvennakórinn Katla. Verkinu verður útvarpað beint á RÁS 1. FLUGKEMPA Björn Thors flýgur flugvél sem hann smíðaði sjálfur. RAGNHEIÐUR HARPA „Ég rakst á umfjöllun um bylgjur guðseindarinnar í einhverju vísindatímariti og þá varð þessi mynd til í höfðinu á mér.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Uppfærsla Leikfélags Akureyr- ar á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson mun koma sem gesta- sýning í Borgarleikhúsið í haust. Sýningin vakti mikla athygli norðan heiða síðasta vetur og fékk mikið lof gagnrýnenda. Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir verkinu og aðalhlut- verkið, hlutverk kerlingarinnar, er í höndum Maríu Pálsdóttur en með hlutverk Jóns bónda fer Hannes Óli Ágústsson. Hljóm- sveitin Eva, skipuð þeim Sig- ríði Eir Zophoníasardóttur og Jóhönnu Völu Höskuldsdóttur, samdi nýja tónlist við verkið og tekur virkan þátt í sýningunni. Gullna hliðið í Borgar- leikhúsinu GULLNA HLIÐIÐ Sýningin hlaut mikla athygli og lof á fjölunum fyrir norðan. Land fyrir stafni! nefnist ný sýn- ing á fágætum Íslandskortum sem opnuð verður á Minjasafninu á Akureyri í dag klukkan 17. Sýn- ingin samanstendur af einstökum landakortum frá 1547-1808. Landakortin eru 76 talsins frá Ítalíu, Hollandi, Englandi, Frakk- landi, Tékklandi, Austurríska keisaraveldinu og Þýskalandi. Í kvöld verður einnig opnuð ljós- myndasýningin Með augum for- tíðar – Akureyri ljósmynduð með tækni 19. aldar. Hörður Geirsson hefur undanfarin ár lært aðferðir þær sem notaðar voru við ljós- myndun á 19. öld á svokallaðar votplötur. Á sýningunni gefur að líta myndir sem Hörður hefur tekið af stundarkornum víða um Akureyri. Landakort og ljósmyndir MEÐ AUGUM FORTÍÐAR Ein mynda Harðar Geirssonar á sýningunni. Hin árvissa djasssumartónleika- röð veitingahússins Jómfrúar- innar við Lækjargötu hefst á laugardaginn. Þetta er nítjánda árið sem Jakob Jakobsson, veit- ingamaður á Jómfrúnni, býður þeim sem heyra vilja upp á ókeypis sumarskemmtun. Eins og undanfarin ár er dagskrár- gerð og kynning í höndum Sig- urðar Flosasonar. Tónleikar verða alla laugardaga í júní, júlí og ágúst. Á fyrstu tónleikum sumars- ins leikur Fley tríó; tríó píanó- leikarans Egils B. Hreinssonar. Auk hans skipa tríóið þeir Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Kjart- an Guðnason á trommur. Tveir góðir gestir koma fram á tón- leikunum, saxófónleikarinn Jóel Pálsson og sonur Egils, söngvar- inn Högni Egilsson, þekktur úr hljómsveitunum Hjaltalín og Gus Gus. Fleyið kemur við bæði á sjó og landi og flytur nokkur lög úr amerísku söngbókinni og sígrænar perlur úr frjóum jarðvegi djassins. Tónleikarnir fara fram utandyra á Jómfrúartorginu. Þeir hefjast klukkan 15 og standa til klukkan 17. Aðgangur er ókeypis. - fsb Fley ýtir sumardjassi úr höfn á Jómfrúnni Jómfrúin býður upp á ókeypis djasstónleika á laugardögum, nítjánda sumarið í röð. ➜ Eins og undanfar- in ár er dagskrárgerð og kynning í höndum Sigurðar Flosasonar. Tónleikar verða alla laugardaga í júní, júlí og ágúst. BYRJA SUMARIÐ Fley tríó leikur á fyrstu tónleikum sumarsins á Jómfrúnni. MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.