Fréttablaðið - 05.06.2014, Qupperneq 56
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
Sýningin heitir Saga og leikhópur-
inn, sem heitir Wakka Wakka Pro-
ductions, er frá New York og Nor-
egi,“ segir Andrea Ösp Karlsdóttir,
einn meðlimur leikhópsins sem
sýnir brúðuleikhús sýningu fyrir
fullorðna í Kassa Þjóðleikhússins
í kvöld og annað kvöld. „Sýningin
var frumsýnd í New York síðasta
haust og hlaut Drama Desk-verð-
launin þar. Síðan erum við búin að
túra um allan Noreg og erum loks
komin hingað til Íslands á Listahá-
tíð.“
Í Sögu flytja þrjátíu brúð-
ur, allt frá tíu sentimetrum til
þriggja metra á hæð, Íslendinga-
sögu úr nútímanum: Sögu Gunn-
ars Oddmundssonar sem lenti illa
í efnahagshruninu árið 2008 og
dreymir um réttlæti. „Sagan ger-
ist á Íslandi fyrir og eftir hrun,“
útskýrir Andrea. „Hún er samt
ekki pólitísk ádeila á það sem gerð-
ist heldur nútíma víkingasaga um
hann Gunnar og fjölskyldu hans
sem lendir í alls kyns hremming-
um.“
Sýningin er alls ekki við hæfi
barna, var bönnuð innan sextán
ára í New York, en Andrea gengur
út frá því að Íslendingar séu frjáls-
lyndari en Bandaríkjamenn. „Það
er ein löng og gróf kynlífssena
sem fór fyrir brjóstið á Banda-
ríkjamönnum en í Noregi kom
fólk með unglinga alveg niður í tólf
ára til að sjá hana, það er bara á
ábyrgð foreldranna. Ég myndi hins
vegar telja að hún væri við hæfi
fólks frá fjórtán ára aldri.“
Handritið var samið í hópvinnu
út frá hugmynd tveggja meðlima
hópsins og Andrea segir að hug-
myndin um íslenska efniviðinn
sé alls ekki frá henni komin. „Við
vorum sex manns í rannsóknar-
vinnu á eyju í Noregi í nokkrar
vikur við vinnslu handritsins.
Horfðum á heimildarmyndir og
sjónvarpsþætti, lásum allt frá
Egilssögu til nútímabókmennta
um hrunið og síðan auðvitað
heilt tonn af fréttum frá þessum
tíma. Charlotte Böving tók líka
viðtöl við marga Íslendinga sem
lentu illa í hruninu og við horfð-
um á þau viðtöl, skrifuðum þau
upp og bjuggum síðan til þennan
eina karakter upp úr öllum þess-
um gögnum. Hann á sér sem sagt
ekki neina eina fyrir mynd en það
munu allir Íslendingar kannast
við ýmislegt í sögu hans.“
Sýningarnar á Íslandi verða
aðeins þessar tvær en síðan held-
ur hópurinn aftur til Noregs þar
sem Saga verður sýnd á alþjóð-
legri leiklistarhátíð. „Svo er
búið að bjóða okkur til Slóveníu
og Kró atíu í september,“ segir
Andrea. „Og síðan eigum við boð
um að koma til Englands og Skot-
lands á næsta ári. Ýmislegt annað
er í spilunum sem ekki er búið að
negla niður en það er allavega
ljóst að dagar Sögu eru engan veg-
inn taldir.“
fridrikab@frettabladid.is
Allir Íslendingar
kannast við söguna
Wakka Wakka-leikhópurinn sýnir brúðusýninguna Sögu í Kassanum í kvöld og
annað kvöld. Sýningin er eingöngu fyrir fullorðna og var bönnuð innan 16 ára í
New York. Efnið er alíslenskt; nútíma víkingasaga úr hruninu.
WAKKA WAKKA Brúðurnar í sýningunni eru allt frá nokkrum sentimetrum á hæð
upp í þrjá metra.
ANDREA ÖSP „Ekki pólitísk ádeila á það sem gerðist heldur nútíma víkingasaga.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
ORKA SEM ENDIST
FUJITSU GÆÐARAFHLÖÐUR
Fujitsu alkaline rafhlöðurnar eru öflugar,
endast vel og eru auðvitað á góðu verði.
Skútuvogi 1c · 104 Reykjavík · Sími 550 8500 · Fax 550 8510 · vv@vv.is · www.vv.is
Fást í fjölda verslana um land allt. Dreifing á Íslandi:
Sumarsýning Listasafnsins á
Akureyri verður opnuð laugar-
daginn 7. júní klukkan 15 og ber
hún yfirskriftina Íslensk samtíð-
arportrett – mannlýsingar á 21.
öld. Á sýningunni gefur að líta
hvernig 70 listamenn hafa glímt
við hugmyndina um portrett frá
síðustu aldamótum til dagsins
í dag. Á þessari sýningu birtist
áhorfendum samtíðarsýn 70 lista-
manna sem hafa tekist á við hug-
myndina í víðum skilningi og í
áhugaverðu samspili ólíkra birt-
ingarmynda fást svör.
Þetta er í fyrsta sinn sem sett
er upp sýning þar sem eingöngu
íslensk portrettverk 21. aldarinn-
ar eru til sýnis. Hópurinn er fjöl-
breyttur og á meðal listamanna
sem eiga verk á sýningunni má
nefna Erró, Ragnar Kjartans-
son, Kristínu Gunnlaugsdóttur,
Hallgrím Helgason, Steinunni
Þórarinsdóttur, Hugleik Dags-
son, Aðalheiði S. Eysteinsdóttur,
Baltasar Samper og Ólöfu Nor-
dal. Af athyglisverðum verkum
sem verða frumsýnd má nefna
mynd af Vigdísi Finnbogadóttur
eftir Stephen Lárus Stephen og
skúlptúr af Sigurði Nordal eftir
Gunnar Karlsson.
Sýningin stendur til 17. ágúst
og er opin alla daga nema mánu-
daga frá klukkan 10 til 17.
Aðgangur er ókeypis.
- fsb
Íslensk samtíðar-
portrett á Akureyri
Sjötíu listamenn eiga myndir á sumarsýningu Lista-
safnsins á Akureyri sem opnuð verður á laugardaginn.
ÍSLENSK SAMTÍÐARPORTRETT Meðal þeirra sem eiga verk á sýningunni er Ragnar
Kjartansson. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL