Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 58

Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 58
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 05. JÚNÍ 2014 Leiklist 19.30 SAGA er frábær brúðuleiksýning fyrir fullorðna sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Hún verður sýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í kvöld sem partur af Listahátíð. Sýningin var sýnd Off-Broadway í New York í fyrra þar sem hún hlaut hin þekktu Drama Desk-verðlaun. Hún hefur nú þegar einnig verið sýnd um allan Noreg og stefnt er á fjölda annarra landa á næstunni enda hefur okkur þegar verið boðið með hana til Slóveníu, Króatíu, Englands og Skotlands. Fræðsla 13.00 Í dag klukkan 13.00 til 16.00 í Odda 101. Ísland, Evrópusambandið og lofts- lagsbreytingar. Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Evrópustofu í samstarfi við Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands. Á þessu málþingi verður fjallað um stefnu Evrópusambandsins í loftslagsmálum og hvernig hún hefur áhrif á Íslandi í gegnum EES-samninginn. Stendur sambandið sig nægi- lega vel í baráttunni gegn hlýnun jarðar? Á Íslandi er losun gróðurhúsalofttegunda á hvern íbúa með því mesta sem gerist í heiminum. Hvað eru íslensk stjórnvöld að gera til að draga úr þessari losun? Hvaða tækifæri eru til nýsköpunar í viðskipta- geiranum á Íslandi? Þarf að breyta viðhorfum hérlendis? Sýningar 16.00 Önnur sýningaropnun sumarsins verður nú í dag klukkan 16.00 en þá verður opnuð ný grunnsýning Árbæjarsafns sem ber nafnið NEYZLAN REYKJAVÍK Á 20. ÖLD. Sumarstarf Árbæjarsafns er nú hafið og verður safnið opið alla daga í sumar frá klukkan 10 til 17. 16.00 Í dag klukkan 16.00 verður opnuð sýning um franska landkönnuðinn Yves Joseph de Kerguelen í Landsbókasafni Íslands Háskólabókasafni. Á sýningunni er rakin saga fyrsta vísindaleiðangurs Frakka til Íslands. Sá leiðangur er talinn marka upphaf vináttu Frakka og Íslendinga. Sýningin rekur ferðir Yves Joseph de Kerguelen til Íslands 1767 og 1768. 17.00 Fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði er opið lengur í Listasafni Íslands og fimmtudagsbarinn er opinn auk þess sem listamaður eða hópur listamanna sýnir vídeóverk í samstarfi við vídeólistahátíðina 700IS Hreindýraland. Að þessu sinnu mun listamaðurinn Ásdís Sif Gunnarsdóttir sýna verkið Surrounded by the purest Blue, I welcome you. Sýningin hefst klukkan 17 og verður „happy hour“ á barnum til klukkan 19. 17.00 Þórdís Erla Zoëga opnar sýninguna Party in space á The Coocoo’s Nest í dag. Myndirnar sem hún sýnir eru unnar með vatnslitum, bleki og penna og einnig sýnir hún klippimyndir. Á sýningunni er gleðin við völd en litagleði og rýmispælingar ein- kenna myndirnar. 17.00 Í dag klukkan 17.00 verður opnuð sýning á verkum Borghildar Óskars- dóttur myndlistarmanns í Artóteki. Sýningin nefnist ÞRÁÐUR Á LANDI og er á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Á opnuninni mun Hlynur Helgason, lektor í listfræði við Háskóla Íslands, segja frá sýningunni og list Borg- hildar. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. 17.30 Flugrákir, Lokaverk Listahátíðar, og ver- öldin var sungin fram. Flugrákir, nýtt verk eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur verður lokaverk Listahátíðar Reykjavíkur 2014. Verkið verður flutt í dag klukkan 17.30. Áhorfendum er bent á að safnast saman við Sólfarið á Sæbrautinni. Tónlist 19.30 Kammertónlistarhátíðin Podium festival fer fram í Reykjavík dagana 5. til 8. júní, í Norræna húsinu, Hörpu og á Kexi hosteli. Tónlistarfólkið kemur að þessu sinni frá Austur- ríki, Þýskalandi, Noregi og Íslandi. Hátíðartónskáld í ár er Halldór Smárason en hann er nýútskrifaður frá Manhattan School of Music. Nýtt verk úr smiðju hans verður frumflutt á opnunar- tónleikum hátíðarinnar í Noræna húsinu í kvöld klukkan 19.30. 20.00 Einfarar í Kaldalóni Hörpu í kvöld klukkan 20.00. Fram koma: Mixophrygian, M Band, Ljósvaki, EinarIndra. Frítt inn. 22.00 Magnús Einarsson heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,Frakkastíg 8. Í kvöld klukkan 22.00. 23.00 Tónleikar klukkan 23.00 á Gauknum í kvöld. Þar koma fram hljómsveit- irnar Casio Fatso, Caterpillarman og MC Bjór og Bland. Leiðsögn 20.00 Í sumar verður boðið upp á menningargöngur með leiðsögn um svæðið umhverfis miðbæ Hafnarfjarðar öll fimmtudagskvöld klukkan 20. Gengið er frá Hafnarborg eða Pakkhúsi Byggðasafns Hafnarfjarðar. Hver ganga tekur um klukku- stund, þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Fyrsta gangan verður farin í kvöld, en þá mun Sigurður Hallgrímsson fyrrverandi hafnsögumaður leiða gesti um svæði Hafnarfjarðarhafnar og segja frá uppbyggingu og sögu hafnarinnar. Gangan hefst klukkan 20 við Pakkhús Byggðasafnsins. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. * Vegna framkvæmda eru farþegar hvattir til að mæta tímanlega MÆTTU FYRR Í FRÍIÐ Vegna endurbóta við farangursflokkunarkerfið í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar má búast við miklu álagi við innritun til 1. júlí. Um leið og við biðjumst velvirðingar á óþægindunum hvetjum við farþega til að mæta tímanlega í flugstöðina fyrir brottför. Innritun í morgunflug hefst nú kl. 4.30. Mætum snemma og styttum biðraðirnar. Góða ferð! Mættu fyrir klukkan 5.00 á völlinn og fáðu afslátt af langtímastæðum KEF Parking við flugstöðina Gildir til 15. júní

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.