Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 59
FIMMTUDAGUR 5. júní 2014 | MENNING | 43
Brúðubíll allra landsmanna
frumsýnir júníleikrit sitt í Hall-
argarðinum í dag klukkan 14.00,
en það ber nafnið Ys og þys í
Brúðubílnum.
Sýningar eru tvisvar á dag í
júní og júlí, klukkan 10.00 og
14.00.
Handrit og brúður eru eftir
Helgu Steffensen sem er að
byrja sitt 34. ár sem stjórnandi
leikhúss Brúðubílsins. Hörður
Bent Víðisson sér um brúðu-
stjórnun ásamt Helgu og Sigur-
bjartur Sturla Atlason er bíl-
stjóri og tæknimaður. Leikstjóri
er Sigrún Edda Björnsdóttir.
Hljóðmynd er eftir Vilhjálm
Guðjónsson og nokkrir af okkar
frábæru leikurum ljá brúðunum
raddir sínar.
Nánari upplýsingar á brudu-
billinn.is.
- glp
Ys og þys í
Brúðubílnum
YNDISLEGUR API Lilli api og vinir hans
í Brúðubílnum ætla að skemmta sér og
landsmönnum í sumar.
MYND/HÁLFDÁN GUNNARSSON
Hljómsveitirnar Ylja og Snorri
Helgason hafa fyrir löngu unnið
hug og hjörtu landsmanna með
einstakri tónleikaframkomu og
frábærri laga- og textasmíði. Nú
ætla sveitirnar í tónleikaferða-
lag um landið ásamt Vestur-
Íslendingnum og hæfileikaríka
tónlistarmanninum Lindy Vopn-
fjörð.
Ferðin hófst þann 3. júní og
stendur til 7. júní.
Í kvöld koma sveitirnar fram
á Græna hattinum á Akureyri
klukkan 21.00, annað kvöld á
Kaffi Rauðku á Siglufirði og svo
loks á RúBen á Grundarfirði á
laugardagskvöld en síðari tón-
leikarnir tvennir hefjast klukk-
an 22.00.
Áður hafa þær komið fram í
Keflavík og í Reykjavík.
Miðasala verður við inngang-
inn á öllum stöðum en forsala er
bundin við ákveðna staði.
- glp
Íslensk tónlist á
ferð um landið
„Við Guðmundur vorum góðir vinir
og vorum jafnaldrar, við ætlum að
heiðra minningu þessa mikla snill-
ings í kvöld,“ segir Reynir Sig-
urðsson tónlistarmaður og einn
skipuleggjenda tónleikanna undir
yfirskriftinni Guðmundarvaka
Ingólfssonar.
Tónleikarnir eru til heiðurs Guð-
mundi Ingólfssyni meistarapíanista
sem hefði orðið 75 ára í dag, en hann
lést þann 12. ágúst 1991.
„Guðmundur átti glæstan feril og
förum við yfir hann. Við ætlum að
flytja svítu í sjö þáttum sem nefnist
Guðmundarvaka og Gunnar Reyn-
ir Sveinsson samdi í minningu um
Guðmund,“ bætir Reynir við.
Guðmundarvöku flytja Birkir
Freyr Matthíasson trompetleik-
ari, Ólafur Jónsson tenórsaxisti,
Haukur Gröndal altósaxisti, Ásgeir
Ásgeirsson gítarleikari, Gunnar
Hrafnsson bassaleikari, Pétur Grét-
arsson trommari og Ragnheiður
Gröndal söngkona.
Eftir hlé verða ýmis lög af efnis-
skrá Tríós Guðmundar Ingólfsson-
ar leikin, Blús fyrir Birnu og Rósk-
Ingó, þjóðlög og djassstandardar.
Reynir Sigurðsson mun þá
meðal annars leika á harmóníku
Guðmundar og helsti vopnabróðir
Guðmundar í djassinum, Guðmund-
ur Steingrímsson, mun slá bongó-
trommur.
Tónleikarnir verða á Café Rosen-
berg og hefjast kl. 21.00.
- glp
Til heiðurs meistarapíanista
Guðmundur Ingólfsson hefði orðið 75 ára í dag og fara fram tónleikar honum
til heiðurs í kvöld á Café Rosenberg. Farið verður yfi r glæstan feril Guðmundar.
SKIPULEGGJANDINN Reynir Sigurðsson tónlistarmaður skipuleggur tónleika til
heiðurs Guðmundi Ingólfssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
utilif. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI
Verðlaunaskór
á lægra verði
í Útilífi í smáralind í dag
Under Armour skórnir eru
einstaklega vel hannaðir og
fengu verðlaun runners world
fyrr á árinu.
20% afsláttur
Sérfræðingar frá under armour veita
góð ráð varðandi valið á réttu skónum
á miðnæturopnun í smáralind.
af öllum vörum í öllum verslunum í dag