Fréttablaðið - 05.06.2014, Page 62
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| MENNINGBÍÓ | 46
Hafðu samband og láttu
sérfræðinga okkar aðstoða þig
Hringhellu 2
221 Hafnarfjörður
Hrísmýri 8
800 Selfoss
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
Berghólabraut 9
230 Reykjanesbær
Sími 4 400 400
www.steypustodin.is
Steypustöðin býður upp á mikið úrval af
fallegum hellum og mynstursteypu fyrir
heimili, garða, göngustíga og bílaplön. 20
YFIR
TEGUNDIR AF HELLUM
Allar hellur Steypustöðvarinnar eru framleiddar
samkvæmt viðurkenndum stöðlum.
Disney-myndin Male-
ficent fjallar um illu
nornina Maleficent sem
lagði þau álög á Þyrnirós
að áður en sólin gengi til
viðar á sextán ára afmæl-
isdegi hennar myndi
hún stinga sig á snældu
og deyja. Í sögunni sem
flestir þekkja er því hald-
ið fram að ástæðan fyrir
þessu illvirki nornarinn-
ar sé að hún hafi móðg-
ast þegar henni var ekki
boðið að vera við skírn
Þyrnirósar. Í þessari
mynd kemur hins vegar
í ljós að Maleficent hafði
aðrar og veigameiri ástæður fyrir gjörðum
sínum.
Talið er að myndin verði einn af sumar-
smellum þessa árs en þetta er fyrsta mynd
Angelinu Jolie í fjögur ár; síðast lék hún í
kvikmyndinni The Tourist árið 2010.
Angelina hafði mikinn áhuga á að leika í
myndinni strax frá byrjun, þar sem hún ólst
upp við að horfa á Disney-myndir, sérstak-
lega Þyrnirós frá árinu 1959.
„Maleficent hefur verið í uppáhaldi hjá
mér síðan ég var lítil stúlka. Ég var dauð-
hrædd við hana en ég dróst líka að henni.
Mig langaði að vita meira um hana. Hún
bar með sér þokka og fágun en hún var líka
grimm á yndislegan og magnaðan hátt,“
segir Angelina.
Hún vildi einnig leika í myndinni fyrir
börnin sín en dóttir hennar og Brads Pitt,
Vivienne Jolie-Pitt, leikur unga Þyrnirós í
myndinni.
Angelina leikur ekki aðeins í myndinni
heldur var með puttana í ýmsum málum, þar
á meðal búningum og förðun sem var inn-
blásin af söngkonunni Lady Gaga. Þá valdi
hún söngkonuna Lönu Del Rey til að syngja
titillag myndarinnar, Once Upon a Dream,
en lagið kom út í lok janúar á þessu ári.
Auk Angelinu fara Elle Fanning, Sharlto
Copley, Lesley Manville, Brenton Thwaites,
Sam Riley og Imelda Staunton með aðalhlut-
verkin en leikstjóri er Robert Stromberg.
liljakatrin@frettabladid.is
BÍÓFRÉTTIR
Evrópustofa og Bíó Paradís efna
til Evrópskrar kvikmyndahátíðar
í þessum mánuði sem lýkur 10.
júní. Hátíðin ferðast um landið en
myndirnar sem sýndar verða eru
danska myndin Antboy, íslenska verð-
launamyndin Málmhaus og belgíska
myndin Broken Circle Breakdown.
Hátíðin hefur verið haldin í
tvígang í Reykjavík og á Akureyri og
hefur vakið talsverða athygli. Í ár
hefur blaðamaður frá breska dag-
blaðinu The Guardian slegist í för
með hátíðarhöldurum og fjallar um
hana í sínum miðli.
Enginn aðgangseyrir er á hátíðina
en Antboy er sýnd klukkan 16.00,
Málmhaus klukkan 18.00 og Broken
Circle Breakdown klukkan 20.00.
Hér fyrir neðan er
dagskrá hátíðarinnar:
5. júní Blönduós
6. júní Húsavík
7. júní Vopnafjörður– sýningar
hefjast fyrr, eða klukkan 13.00,
15.00 og 17.00
Sun. 8. júní Djúpivogur
Mán. 9. júní Vík
Þri. 10. júní Flúðir
EVRÓPSK
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Ferðast um landið
Á FERÐ UM LANDIÐ Málmhaus er
sýnd á kvikmyndahátíðinni.
Leikarinn Mark
Wahlberg er
43 ára í dag
Helstu myndir: Boogie
Nights, Prisoners, The
Fighter, Ted,
2 Guns
AFMÆLISBARN DAGSINS
The Fault in Our
Stars, drama
AÐAHLUTVERK: Shailene Woodley og
Ansel Elgort
8,6/10
69/100
90/100
FRUMSÝNING
Leikkonan Lupita Nyong’o hreppti
hlutverk í nýju Star Wars-myndinni,
Star Wars: Episode VII, í leik-
stjórn J.J. Abrams. Óljóst er hvaða
persónu hún leikur í myndinni.
Tökur standa nú yfir og verður
nýja Star Wars-myndin frumsýnd
í desember á næsta ári.
LUPITA Í STAR WARS
Kvikmyndin París
norðursins í leik-
stjórn Hafsteins
Gunnars Sigurðs-
sonar verður sýnd
á alþjóðlegu Karlovy
Vary-kvikmynda-
hátíðinni í
Prag sem hefst
þann 4. júlí og
stendur til 12.
júlí. Tökum á
París norðurs-
ins lauk í fyrra
og fóru þær
aðallega fram á
Flateyri.
PARÍS NORÐURSINS
Í PRAG
Alls hafa rúmlega 28 þúsund manns
séð íslensku kvikmyndina Vonar-
stræti eftir leikstjórann Baldvin Z.
Vonarstræti hafði halað inn rúmlega
5,6 milljónir um síðustu helgi og
skákar þar með stórmyndum á borð
við A Million Ways to Die in the
West, X-Men: Days of Future Past,
Edge of Tomorrow og Godzilla.
28 ÞÚSUND MANNS
Maleficent fór beint á toppinn í Bandaríkjunum um frumsýningarhelgina og þénaði 69,4 milljónir
dollara, tæpa átta milljarða króna. Er þetta stærsta frumsýningarhelgi Angelinu Jolie til þessa sem
og þriðja stærsta frumsýningarhelgi leikkonu í sögunni. Þá þénaði myndin 100,6 milljónir dollara,
tæpan ellefu og hálfan milljarð króna, í 47 löndum fyrir utan Bandaríkin um frumsýningarhelgina. Það
er þriðja stærsta frumsýningarhelgin í Evrópu á þessu ári og stærsta frumsýningarhelgi Angelinu á
alþjóðamarkaði.
➜ Stærsta frumsýningarhelgi leikkonunnar
Fyrsta mynd Angelinu í 4 ár
Disney-myndin Malefi cent var frumsýnd á Íslandi í gær og búist er við því að hún verði einn af sumar-
smellum þessa árs. Leikkonan Angelina Jolie er í aðalhlutverki en þetta er hennar fyrsta mynd í fj ögur ár.
Maleficent
hefur verið í
uppáhaldi
hjá mér síðan
ég var lítil
stúlka. Ég var
dauðhrædd
við hana en
ég dróst líka
að henni.
Angelina Jolie
7,5/10
55/100
50/100