Fréttablaðið - 05.06.2014, Side 72

Fréttablaðið - 05.06.2014, Side 72
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 56 BOSNÍUHÓPURINN MARKVERÐIR Björgvin Páll Gústavsson, Bergischer Sveinbjörn Pétursson, Aue AÐRIR LEIKMENN: Alexander Petersson, RN Löwen Arnór Atlason, St. Raphael Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer Ásgeir Örn Hallgrímsson, PSG Bjarki Már Elísson, Eisenach Bjarki Már Gunnarsson, Aue Guðjón Valur Sigurðsson, THW Kiel Gunnar Steinn Jónsson, Nantes Ólafur Guðmundsson, Kristianstadt Róbert Gunnarsson, PSG Snorri Steinn Guðjónsson, GOG Sverre Jakobsson, Grosswallstadt Vignir Svavarsson, TWD Minden Þórir Ólafsson, KS Vive Targi Kielce HANDBOLTI Aron Pálmarsson verður ekki með íslenska lands- liðinu í fyrri leik liðsins gegn Bosníu á laugardaginn. Leikurinn er fyrri leikur liðanna í umspili um sæti á Heimsmeistaramótinu í Katar sem fer fram næstkom- andi janúar. Aron sat hjá gegn Portúgal í síðasta æfingarleik liðsins en liðsfélagi hans, Guðjón Valur Sigurðsson, spilaði í 45. mínútur. Bjarki Már Elísson kemur inn í hópinn í stað Stefáns Rafns Sigurmannssonar en Stefán, Aron, Heimir Óli Heimisson og Daníel Freyr Andrésson koma til móts við liðið fyrir seinni leik lið- anna í næstu viku. - kpt Þessir fara til Bosníu FYRIRLIÐINN Guðjón Valur verður í lykilhlutverki sem fyrr. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Aron Pálmarsson, leik- maður Kiel og íslenska landsliðsins í handbolta, er búinn að ganga frá samningi við ungverska stórliðið MKB Veszprém. Hann gengur í raðir þess næsta sumar að öllu óbreyttu en vonast til að Kiel og Veszprém komist að sam- komulagi um kaupverð svo hann geti farið strax í sumar. „Ákvörðunin var í sjálfu sér ekki erfið. Ég var hálfpartinn búinn að ákveða að ég ætlaði að klára þennan samning hjá Kiel og fara svo. Þegar ég var farinn að íhuga það alvarlega fór ég að athuga hvað væri í boði og Veszprém hljómaði vel,“ sagði Aron. „Þetta er allt öðruvísi þarna í Ungverjalandi en í Þýskalandi. Hvað handboltann varðar tel ég þetta ekkert endilega vera skref niður á við. Þetta er toppfélag sem ætlar sér stóra hluti á næstu þremur til fimm árum. Þeir ætla sér að vinna Meistaradeildina sem seldi mér þetta svolítið.“ Vitað var að Barcelona hafði áhuga á Aroni og þá greindi Vísir frá því í síðustu viku að Paris Saint-Germain væri einnig í kapphlaupinu um Aron. „Það var áhugi og tilboð frá París. Þeir sýndu mér næstmestan áhuga og ég var spenntur fyrir því. Það er skemmtilegt verkefni í gangi þar. Á endanum hafði Veszprém bara betur,“ sagði Aron. - tom Ég var líka spenntur fyrir PSG NÝTT ÆVINTÝRI Spurning hvort Aron fari í sumar eða að ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY SPORT HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU 7 DAGAR Í FYRSTA LEIK OLEG SALENKO er eini leikmaðurinn sem hefur náð að skora fimm mörk í einum leik í úrslita- keppni HM en hann skoraði fimm af sex mörkum Rússa í 6-1 sigri á Kamerún í riðlakeppninni á HM 1994. Salenko varð markakóngur keppninnar (með sex mörk) og er sá eini í sögunni sem hefur náð því án þess að lið hans hafi komist upp úr sínum riðli. Það vita kannski færri að þetta var síðasti lands- leikur Salenko fyrir Rússland. Salenko varð líka markakóngur HM 20 ára liða árið 1989 en enginn annar hefur náð að fylgja eftir markakóngstitili á HM undir 20 ára með því að krækja í gullskóinn á HM. FÓTBOLTI Leikmaður Dalvíkur/ Reynis hefur viðurkennt að hafa veðjað á úrslit eigin liðs í janú- ar síðastliðnum. Þetta staðfesti Stefán Garðar Níelsson, formað- ur knattspyrnudeildar félagsins, í samtali við Fréttablaðið í gær. Þann 13. janúar vann Þór 7-0 sigur á Dalvík/Reyni í Kjarna- fæðismótinu í Boganum á Akur- eyri. Síðar þann mánuð greindi Akureyri vikublað frá því að grun- semdir hefðu vaknað um óeðlilega veðmálastarfsemi í kringum leik- inn og að leikmenn Þórs hefðu stórgrætt á að liðið vann meira en þriggja marka sigur. Rannsókn KSÍ leiddi ekkert í ljós en hún strandaði á því að for- ráðamenn Dalvíkur/Reynis höfn- uðu beiðni Þóris Hákonarson- ar, framkvæmdarstjóra KSÍ, um aðstoð vegna rannsóknarinnar. Erfitt mál fyrir félagið Stefán Garðar segir að þetta mál hafi reynst félaginu erfitt. Í umfjöllun Akureyrar vikublaðs hafi leikmenn Þórs legið undir ásökunum en hann segir að leik- menn Dalvíkur/Reynis hafi líka verið ásakaðir um að taka þátt í braskinu – til að mynda í leiknum sjálfum. „Meðan á leiknum stóð heyrðust ásakanir frá leikmönnum Þórs um að okkar leikmenn væru að hag- ræða úrslitum. Það þótti okkur verst,“ sagði Stefán Garðar en staðfesti þó að leikmaður Dalvík- ur/Reynis hafi veðjað á leikinn. „Hann var reyndar ekki í leik- mannahópi okkar í þessum leik en viðurkenndi þetta. Hann hefur þess utan lítið æft og ekkert spil- að með okkur í vor. Þeir leikmenn sem tóku þátt í leiknum sóru þetta hins vegar allir af sér,“ bætir hann við en vildi ekki nafngreina umræddan leikmann. Þórir staðfesti við Fréttablaðið í gær að hann hafi ekki fengið þær upplýsingar til sín að umræddur leikmaður hafi veðjað á leikinn en fram kemur í fundargerð stjórnar KSÍ að ekki yrði aðhafst frekar í málinu fyrr en nýjar upplýsingar kæmu fram. Þórir gat ekki svarað því hvort þetta nægði til þess að málið yrði tekið upp að nýju en upphaflega hafi ekki verið hægt að aðhafast meira í því. „Ásakanirnar komu fram í fjöl- miðlum og ég hafði ekkert hald- bært um að nokkuð óeðlilegt hafi átt sér stað,“ sagði Þórir. „Ég lít svo á að félögin hafi fengið tæki- færi til að hreinsa sig af ásökun- um en af einhverjum ástæðum voru þau ekki tilbúin í það. Það var þeirra ákvörðun.“ Erum ekki í feluleik Stefán Garðar viðurkennir að það kunni að líta út fyrir að félagið hafi eitthvað að fela en svo sé ekki. „Þetta var orðið mjög erfitt mál og leiddi til þess að hálfgert hatur ríkti á milli félaganna. Við höfðum ávallt átt mjög góð samskipti við Þór en þetta mál gerði þau mjög erfið. Við vorum bara búin að fá nóg,“ segir Stefán Garðar. Hann telur að leikmenn geri sér grein fyrir alvöru málsins. „Það er búið að ræða þetta ítarlega og okkar leikmenn vita að þeir verða látnir fara frá félaginu verði þeir uppvísir að svona löguðu.“ Fáránleg starfssemi Stefán Garðar telur að vandamálið sé mun algengara en talið er. „Það var gott að fá þessa umræðu og að þetta hafi verið fín áminning fyrir knattspyrnuhreyfinguna alla á Íslandi. Enda finnst mér með öllu fáránlegt að það skuli vera hægt að veðja á leik í æfinga- móti á Íslandi á erlendum vef- síðum, hvað þá að græða mikinn pening á úrslitum leikja sem geta aðeins talist eðlileg,“ segir hann og ítrekar að niðurstaðan í umrædd- um leik, 7-0 Þórs, hafi ekki vakið spurningar hjá honum. „Ég sá þennan leik. Við vorum einfaldlega illa mannaðir og úrslit leiksins eftir því.“ Aðalsteinn Ingi Pálsson, formað- ur knattspyrnudeildar Þórs, sagði af og frá að félagið hefði hafnað beiðni KSÍ og að allir leikmenn liðsins hafi skrifað undir skjal þess efnis að þeir hafi ekki tekið þátt í neinu ólöglegu eða ósiðlegu athæfi í tengslum við umræddan leik. „Við gerðum allt sem í okkar valdi stóð til að vinna með KSÍ,“ ítrekar Aðalsteinn Ingi. Þórir bætir einnig við að dóm- arar leiksins hafi verið reiðubúnir að aðstoða við rannsókn málsins á sínum tíma. eirikur@frettabladid.is Veðjaði gegn eigin félagi Leikmaður Dalvíkur/Reynis veðjaði á að hans lið myndi tapa með meira en þriggja marka mun í leik þess gegn Þór frá Akureyri í vetur. Félagið neitaði að aðstoða KSÍ við rannsókn á ásökunum um veðmálabrask. Hægt er að dæma leikmenn í bann sem gerast uppvísir að veðmálabraski í kringum leiki eigin liðs, samkvæmt reglum KSÍ. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur þó áhyggjur af því að slík starfsemi sé mun algengari en talið er og hefur áhyggjur af þróun mála. „Við verðum að þétta okkar regluverk verulega í þessum málum og erum að vinna að því. Nú þegar er þetta ólöglegt, bæði samkvæmt okkar reglum og samning- um sem allir samningsbundnir leikmenn hér á landi þurfa að undirrita,“ segir Þórir en viðurlög við brot á þessum reglum geta verið sektir og leikbönn. - esá Viljum þétta regluverkið FÓTBOLTI Ísland lagði Eistland, 1- 0, í v ináttulandsleik á Laugardalsvelli í gær. Kolbeinn Sigþórsson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í síðari hálfleik. Hans fimmtánda mark í 23 A-landsleikjum sem er magnaður árangur. Þetta var síðasti leikur íslenska liðsins áður en átökin í undankeppni EM hefjast í september. Því miður fær íslenska liðið ekki leik í ágúst til þess að hita almennilega upp. Leikurinn í gær bar mörg merki þess að leikmenn væri þreyttir eftir langt tímabil og komnir með hugann á sólarstrendur þar sem sumarfrí þeirra byrjar í dag. Hann var hreinlega leiðinlegur og kraftlaus. Íslenska liðið var mun meira með boltann en sóknarleikurinn var hægur og fyrirsjáanlegur. Eistarnir þurftu oft ekki að hafa mikið fyrir því að stöðva sóknir íslenska liðsins. Það var helst í föstum leikatriðum sem íslenska liðið náði að ógna. Eistarnir aftur á móti mun sprækari framan af og sköpuðu sér bestu færin. Íslenska liðið var í raun stálheppið að lenda ekki undir. Það var síðan ekki í kortunum að okkar menn kæmust yfir þegar Eistar gáfu vítaspyrnu. Brotið á Rúrik Gíslasyni í teignum og víti dæmt. Kolbeinn tók spyrnuna. Markvörðurinn fór í rétt horn en það dugði ekki til því spyrnan var föst. Eftir markið fór íslenska liðið að ná betri tökum á leiknum og Eistarnir virtust hreinlega klára bensínið. Varamennirnir gáfu það sem þeir áttu en aðrir virtust vera að bíða eftir því að flautað yrði af. Það er smá áhyggjuefni hversu mörg færi íslenska vörnin gaf í leiknum og menn voru ekki alveg á tánum. Gunnleifur bjargaði liðinu í fyrri hálfleik og slíkt hið sama gerði Ögmundur Kristinsson í upphafi síðari hálfleiks er hann var nýkominn inn í sínum fyrsta landsleik. Enginn sérstakur stóð upp úr í íslenska liðinu og hver og einn einasti leikmaður í liðinu getur mun betrur en hann sýndi í kvöld. Alltaf gott að vinna fótboltaleiki en þessi leikur fellur í gleymskunnar dá strax í fyrramálið. - hbg Rislítill leikur í Laugardalnum Kolbeinn Sigþórsson skoraði eina mark leiksins í naumum sigri gegn Eistum BEÐIÐ EFTIR FYRSTA MARKINU Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fékk gott færi í leiknum en tókst ekki að skora sitt fyrsta landsliðsmark. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KNATTSPYRNAN Í HÆTTU Veðmálastarfssemi vegur að knattspyrnu á Íslandi eins og víðar. Myndin tengist ekki fréttinni beint. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.