Fréttablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 74
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 58
FÓTBOLTI Hækkandi miðaverð hefur
gert það að verkum að sífellt er
verið að stofna ný fótboltafélög fyrir
hinn almenna stuðningsmann. Þessi
félög eru yfirleitt í eigu stuðnings-
mannanna í baráttu við áhrif kapít-
alismans á fótbolta.
Áhrif eigenda liðanna eru orðin
ógnvægileg og geta þeir eftir geð-
þótta tekið ákvarðanir um breyting-
ar á heildinni sem sögufræg íþrótta-
lið mynda. Nýlegt dæmi er hegðun
Vincents Tan, eiganda Cardiff, sem
breytti merki og einkennislitum
liðsins úr bláu í rautt þrátt fyrir
óánægju stuðningsmanna.
Fimm deildir á níu árum
Hugmyndin um að fótbolti sé íþrótt
verkamannsins er sífellt að fjar-
lægjast og eru leikvellir þess í stað
að fyllast af VIP-stúkum. Stuðn-
ingsmenn hafa í sumum löndum
tekið til sinna ráða og ættu margir
stuðningsmenn Manchester United
að kannast við FC United – stofnað
í andstöðu við núverandi eigendur
félagsins, Glazer-fjölskylduna, og
spilar klúbburinn í hinum uppruna-
legu litum United, gulum og græn-
um.
Þá hafa einnig verið stofnaðir
minni klúbbar út frá stærra félagi,
ætlaðir til þess að leikmenn sem
fá ekki tækifæri geti haldið áfram
að spila saman fótbolta. Það þarf
ekki að fara langt til þess að sjá
dæmi um slíkt. Knattspyrnufélag
Vesturbæjar, KV, var stofnað fyrir
tíu árum en er að leika í fyrsta sinn í
fyrstu deild. Aðeins einni deild fyrir
neðan KR sem þeir leigja völl af og
eru í góðu samstarfi við.
Einnig eru til þau félög sem eru
stofnuð í ljósi þess að félaginu var
einfaldlega kippt úr sambandi. Þeir
sem hafa fylgst með enska boltan-
um í lengri tíma muna eflaust eftir
klúbbnum Wimbledon sem Her-
mann Hreiðarsson lék með í eitt
tímabil. Félagið var stofnað 1889 en
árið 2004 var félagið fært til Milton
Keynes þar sem Milton Keynes
Dons var stofnað.
Í þeirra tilviki voru afrek
Wimbledon einfald-
lega þurrkuð út, þar
á meðal sigur í
enska bikarnum
vorið 1988. Í því
tilviki ákváðu
stuðningsmenn
Wimbledon
að stofna nýtt
félag, Wimble-
don AFC og
halda stuðningi
sínum við það.
Félagið hefur náð
að vinna sig upp
um fimm deildir á níu
árum og situr nú í fjórðu
deild enska fótboltans.
Ekki einsdæmi
Saga Wimbledon AFC er ekki eins-
dæmi um félög sem voru stofnuð í
ljósi ákvarðana eigenda. SV Austria
Salzburg var stofnað árið 1933 með
sameiningu tveggja liða og varð
eina liðið í héraðinu.
Lengi vel var árangurinn slakur
og vannst fyrsti meistaratitillinn
ekki fyrr en árið 1994, sama ár og
liðið tapaði í úrslitum Evrópubikars-
ins. Því fylgdu tveir meistaratitlar
á næstkomandi þremur tímabilum,
gullaldartímabili SV Austria Salz-
burg. En Adam var ekki lengi í para-
dís. Árið 2005 keypti orkudrykkja-
fyrirtækið Red Bull félagið og voru
miklar breytingar fram undan á
félaginu sem íbúar
Salzburg þekktu.
Red Bull tilkynnti að breyt-
inga væri að vænta. Nýjar treyj-
ur, nýjar stuttbuxur, nýtt nafn, ný
stjórn og nýtt þjálfaralið. Red Bull
lagði áherslu á að hér væri verið að
stofna lið með enga sögu á bak við
sig. Forráðamenn Red Bull gengu
jafnvel svo langt að skrifa það í sögu
félagsins áður en austurríska knatt-
spyrnusambandið skipaði þeim að
bæta inn í fyrri sögu félagsins.
Keyptu einfaldlega félagið
Við stofnun félagsins var fyrrver-
andi einkennislitur þess, fjólublár,
tekinn úr öllu sem tengdist félaginu.
Í stað þess að gera litlar breytingar
breyttu þeir grunnstoðum félagsins.
Þetta er hluti af markaðsherferð
Red Bull þegar kemur að íþrótt-
um. Í stað þess að auglýsa framan
á búningum líkt og Coca Cola gerir
er hugmynd fyrirtækisins að kaupa
einfaldlega félagið og gera orku-
drykkinn að einkennismerki þess.
Er það auðsjáanlegt á leikvelli
Red Bull Salzburg þar sem auglýs-
ing orkudrykksins er það eina sem
augun sjá. Undir nýjum merkjum
hefur nýtt gullaldartímabil hafist í
Salzburg. Á aðeins níu árum hefur
félagið unnið deildina fimm sinnum
og tvisvar unnið bikarkeppnina. Þá
vann liðið stórsigur á Ajax í 32-liða
úrslitum Evrópudeildarinnar í ár,
samanlagt 6-1. Ekki verður Red Bull
sakað um að ná ekki árangri eftir að
hafa keypt félagið.
Aðgerðir stuðningsmanna
Að fordæmi klúbba líkt og AFC
Wimbledon og FC United ákváðu
stuðningsmenn Salzburg að stofna
nýtt félag. Félagið var stofnað
nokkrum mánuðum eftir myndun
Red Bull Salzburg og var einkennis-
merki liðsins augljóst.
Liðið var skírt SV Austria
Salzburg og einkennislitur þess
fjólublár. Liðið byrjaði í kjallara
austurrísku deildarkeppninnar,
í sjöundu deild, og spilaði sinn
fyrsta leik árið 2006. Í deild þar
sem örfáir mættu á leiki var nýtt
félag komið í myndina sem spil-
aði á litlum velli sem tekur aðeins
1600 manns, en alltaf var uppselt.
Óhætt er að segja að árangurinn
hafi verið vonum framar. Liðið
vann sig upp um fjórar deildir á
fjórum árum og tapaði aðeins sjö
leikjum á þeim tíma.
Liðið situr í efsta sæti Regio-
nalliga West, þriðju efstu deildar,
eftir að hafa farið taplaust í gegn-
um fyrstu 28 leiki tímabilsins. Liðið
er nú í umspili um sæti í B-deild-
inni og gæti ævintýrið verið að taka
algjörleg nýja stefnu.
Aðeins átta árum frá stofnun
gæti félagið komist upp um fimmtu
deildina á átta árum, upp í B-deild,
og hafið atlögu að deildinni sem
þeir þekktu á árum áður, sjálfri
úrvalsdeildinni.
Þar mun liðið svo berjast við
gamlan vin, nú óvin, Red Bull
Salzburg. kristinnpall@365.is
Upprisa hjá liði fólksins í Salzburg
Þegar orkudrykkjaframleiðandinn Red Bull keypti austurríska félagið Austria Salzburg og þurrkaði út sögu liðsins ofb auð mörgum
stuðningsmönnum liðsins. Þeir fylgdu fordæmi liða á borð við FC United og og AFC Wimbledon og stofnuðu sitt eigið lið.
ENGAN
ORKUDRYKK
Stuðningsmenn
Austria Salzburg
vildu styðja sitt lið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
MEISTARAR Red Bull Salzburg stal liðinu þeirra og er nú besta liðið í landinu FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
STUÐNINGUR Fólkið elskar nýja félagið enda er það félagið þeirra. MYND/AUSTRIA SALZBURGMARK Uppgangur félagsins hefur verið merkilega hraður MYND/AUSTRIA SALZBURG
HANDBOLTI „Við ákváðum að snúa bökum
saman og reyna að búa til flott lið fyrir fólk-
ið hérna,“ segir Hlynur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Akureyrar handboltafélags í
samtali við Fréttablaðið.
Akureyringar hafa heldur betur látið til
sín taka á félagaskiptamarkaðnum í sumar.
Þeir voru búnir að klófesta Sverre Jakobs-
son sem spilandi þjálfara og nú síðast í
fyrradaga sömdu við liðið tveir silfurdreng-
ir til viðbótar; Ingimundur Ingimundarson
og markvörðurinn Hreiðar Levy Guðmunds-
son. Peking-vörnin mætt til leiks fyrir norð-
an.
„Við vorum búnir að vinna lengi í Sverre
en þetta með hina tvo er nýdottið inn á
borð. Við vissum alltaf af Hreiðari en
það var ekkert öruggt að hann kæm-
ist heim. Það leystist svo fyrir
örfáum dögum og Diddi dett-
ur inn í þetta því þeir eru
miklir félagar og vilja spila
saman,“ segir Hlynur og
fagnar því að loksins hafi
hlutirnir aðeins fallið með
landsbyggðarliði í leikmanna-
málum.
„Þetta datt svolítið fyrir
okkur. Það er alltaf mjög erfitt
að fá menn út á land. Svo halda
þeir oft að það að spila úti
á landi sé ávísun á ein-
hverja gullkistu.
Menn vilja oft fá
miklu meira þegar
þeir fara út á land,“
segir Hlynur.
Eitthvað hlýtur þetta þó
að kosta. „Það er dýrt að
vera með lélegt lið,“ svarar
framkvæmdastjórinn um
hæl. „Það er miklu dýrara
en að vera með gott lið. Þú
þarft alltaf að standa undir
ákveðnum kostnaði sama
hversu gott liðið er. Þó gott lið sé aðeins
dýrara þá færðu fleiri áhorfendur og meiri
tekjur ef þú kemst lengra á Íslandsmótinu
og þegar vel gengur vilja áhorfendur og
stuðningsaðilar taka þátt í fjörinu,“ segir
Hlynur.
Akureyri endaði í sjötta sæti annað tíma-
bilið í röð eftir að hafa komist í undanúrslit
árið áður og lokaúrslitin 2011.
„Við viljum vera með í toppbaráttunni en
ekki berjast á botninum. Vonandi bætum
við bara fleiri leikmönnum við. Við erum
að vinna í liðinu okkar sem stendur,“ segir
Hlynur Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Akureyrar handboltafélags. - tom
Peking-vörnin stendur vaktina á Akureyri næsta vetur
Það er ekkert mikið ódýrara að vera með lélegt lið, segir framkvæmdastjóri Akureyrar, sem hefur fengið góðan liðsstyrk.
HM stöðin