Fréttablaðið - 26.06.2014, Blaðsíða 2
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Opið laugardaga til kl. 16
Niðurfellanleg
hliðarborð
3 brennarar úr ryðfríu stáli
STJÓRNSÝSLA Ástæða þess að hin
tíu ára gamla Harriet Cardew fær
ekki endurnýjað vegabréf má rekja
til breytinga á verklagi Þjóðskrár
Íslands.
Þetta segir Sólveig Guðmunds-
dóttir, sviðsstjóri Þjóðskrársviðs
hjá Þjóðskrá Íslands.
Foreldrum Harrietar var í fyrra-
dag tilkynnt af Þjóðskrá að hún
fengi ekki endurnýjað vegabréf
vegna þess að nafn hennar væri
ekki samþykkt af mannanafna-
nefnd. Þeir segja ákvörðunina ekki
standast lög og að börnum þeirra
sé mismunað. Tvö börn þeirra eru
fædd erlendis og eru þar með gilt
nafn en tvö önnur eru fædd hér á
landi. Mannanafnanefnd hefur ekki
samþykkt nöfn þeirra, Harriet og
Duncan, sem fædd eru hér á landi
og bera þau nöfnin Stúlka og Dreng-
ur Cardew í Þjóðskrá.
„Árið 2010 sameinuðust Þjóð-
skrá og Fasteignaskrá ríkisins.
Við þá sameiningu fórum við yfir
alla verkferla, bæði í sambandi við
vegabréfaútgáfu og mannanöfn. Í
kjölfar þeirrar skoðunar sáum við
að lögin eru afar skýr í þessum
efnum og skerptum á verklagi í
samræmi við lög. Fyrir þann tíma
höfðu verið gefin út vegabréf, and-
stætt lögum,“ segir Sólveig. Stofn-
unin sé aðeins að vinna eftir þeim
lögum sem henni eru sett. Þjóðskrá
eigi ekki að gera neitt annað en fara
eftir þeim lögum og reglum sem
um hana gilda. „Ég get ekki tjáð
mig um einstök málefni sem koma
inn á okkar borð en lagabókstafur-
inn er nokkuð skýr. Í honum segir
að við getum einungis útgefið per-
sónuskilríki og vegabréf til þeirra
sem hafa gilt eiginnafn eða milli-
nafn. Ef mannanafnanefnd hefur
ekki samþykkt einhver ákveðin
nöfn þá er í sjálfu sér ekkert sem
við hjá Þjóðskrá getum gert. Við
breytum ekki lögum, við förum
aðeins eftir þeim.“
Þegar hún er spurð að því hvort
lagabókstafurinn sé ekki úreltur
og barn síns tíma segist hún ekki
vilja leggja mat á það. „Aðalat-
riðið er það að við förum að þeim
lögum sem okkur er skylt að fara
eftir. Frá okkar bæjardyrum séð
snýst þetta aðeins um það. Ég get
svo ekki fyrir mitt leyti lagt mat á
hvort lögin séu orðin úrelt, enda er
það ekki mitt að skera úr um það,“
segir Sólveig. sveinn@frettabladid.is
Vegabréf voru gefin
út án lagaheimildar
Gefin voru út vegabréf af Þjóðskrá andstætt gildandi lögum. Árið 2010 var farið
yfir verkferla varðandi útgáfu persónuskilríkja og vegabréfa og kom í ljós að ein-
staklingar höfðu fengið vegabréf án þess að lagaheimild væri fyrir útgáfunni.
Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar framtíðar, lagði á síðasta
þingi fram frumvarp um breytingu á lögum um manna-
nafnanefnd. Breytingin byggðist á því að mannanafnanefnd
hætti að gefa út lista með samþykktum nöfnum.
„Íslendingar eiga foreldra af mismunandi uppruna. Frum-
varpið var til þess gert að koma til móts við þann raunveru-
leika sem við búum við. Mér finnst þetta tiltekna mál sýna
fram á mikilvægi þess að lögunum sé breytt. Auðvitað er
hægt að breyta lögunum á annan hátt en frumvarpið gerði
ráð fyrir. Þetta var hins vegar hreinlegasta útfærslan á breytingunum. Við
fundum einnig fyrir miklum jákvæðum viðbrögðum við frumvarpinu bæði
innan sem utan þings,“ segir Óttarr.
SEGIR MIKILVÆGT AÐ BREYTA LÖGUNUM
HYGGJAST KÆRA ÚRSKURÐINN Foreldrar Harrietar munu í dag leggja fram kæru
til innanríkisráðuneytisins vegna úrskurðar Þjóðskrár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
NÍGERÍA Hryðjuverkasamtökin Boko Haram eru talin bera ábyrgð á
sprengjuárás í Abuja, höfuðborg Nígeríu, í gær.
Sprengjan sprakk við verslunarmiðstöð og heyrðist sprengingin í
margra kílómetra fjarlægð. Lögreglan í Nígeríu segir minnst 21 látinn
og 17 særða eftir árásina.
Boko Haram hafa undanfarna mánuði fremur beitt sér að árásum í
austurhluta Nígeríu, nokkur hundruð kílómetra frá Abuja. - ih
Minnst 21 látinn eftir hryðjuverkaárás í höfuðborg Nígeríu:
Boko Haram sprengdu í Abuja
SPRENGJUÁRÁS Minnst 21 er látinn eftir sprengjuárás fyrir utan verslunarmiðstöð
í Abuja, höfuðborg Nígeríu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Kristín, er rafmagnað
andrúmsloft í Eyjafirði?
„Já, við erum alltaf í stuði.“
Kristín Halldórsdóttir er mjólkurbússtjóri
MS á Akureyri. Fyrirtækið hefur þurft að
keyra steinolíutanka til að framleiða vörur
því framboð á raforku í Eyjafirði er ekki
nægjanlega mikið.
UMHVERFISMÁL Ragnheiður Elín
Árnadóttir, ráðherra ferðamála,
óttast ekki að hátt verðlag innan
ferðaþjónustunnar hafi áhrif
á komu erlendra ferðamanna
hingað til lands. Hún segir það
vera neytenda en ekki ríkisins að
sýna ferðaþjónustufyrirtækjum
aðhald.
„Það er ekkert sem hið opin-
bera getur gert eða í raun á
að gera. Ég held að fæst okkar
myndu vilja hafa verðlagsráð
ríkisins til að gefa út gjaldskrár
hvort sem það er í ferðaþjónustu
eða öðrum atvinnugreinum,“
segir Ragnheiður. - jme
Ekki áhrif á fjölda ferðalanga:
Ríkið getur
ekkert aðhafst
STJÓRNMÁL Árlegur fundur Nor-
rænu ráðherranefndarinnar um
fiskveiðar og fiskeldi, landbúnað,
matvæli og skógrækt stendur nú
yfir á Selfossi.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, stýrir fundinum. Meðal
þess sem er til umfjöllunar eru
loftslagsbreytingar og áhrif
þeirra á frumframleiðslugreinar
og hvernig lífhagkerfin svo sem
í sjávarútvegi og landbúnaði geta
brugðist við þeim og hagnýtt sér
þær. Þá verða rædd vandamál
vegna lyfjaónæmra baktería og
deilur um síld og makríl. - jme
Norrænir ráðherrar á fundi:
Ræða deilur um
síld og makríl
STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun
segir að ekki hafi verið rétt staðið
að úthlutun 205 milljóna sem for-
sætisráðherra veitti í styrki í fyrra.
Styrkirnir hafi ekki verið auglýst-
ir og fjárheimildir frá Alþingi hafi
vantað.
Um er að ræða fé sem tekið var
af tveimur safnliðum í fjárlögum og
forsætisráðherra veitti til 24 verk-
efna í desember. „Samkvæmt til-
kynningu Alþingis frá árinu 2011
skal ekki úthluta styrkjum af safnlið-
um til verkefna sem falla undir slíka
sjóði,“ segir Ríkisendurskoðun sem
segir þetta eiga við um flest verk-
efnin. Meðhöndlun forsætisráðu-
neytisins á þessum fjárlagaliðum sé
„ruglingsleg og villandi og ekki til
þess fallin að auðvelda þingheimi að
átta sig á stöðu mála“.
Ríkisendurskoðun segir að eftir
að ráðherranefnd um atvinnumál
hafi lagst af hafi forsætisráðuneytið
ekki getað ráðstafað 175 milljónum
sem heyrðu undir þann lið nema með
heimild frá Alþingi. Í svari ráðuneyt-
isins til Ríkisendurskoðunar segir að
þótt ráðherranefndar um atvinnumál
sé getið í athugasemdum við fjár-
lagaliðinn sé ekki hægt að líta svo á
að liðurinn hafi „verið eyrnamerktur
nefndinni með bindandi hætti“.
Forsætisráðuneytið svarar Ríkis-
endurskoðun fullum hálsi í tilkynn-
ingu og hafnar því að ekki hafi verið
staðið rétt að málum. „Úttektin stað-
festir að forsætisráðuneytið fór að
lögum við úthlutun styrkja bæði í
tíð fyrri ríkisstjórnar, þegar ráð-
herranefnd um atvinnumál var starf-
andi, og þegar eftirstöðvum þeirrar
fjárheimildar sem ráðherranefndin
hafði áður haft aðkomu að var úthlut-
að í desember 2013,“ segir í athuga-
semdum ráðuneytisins. - gar / jme
Ríkisendurskoðun segir forsætisráðherra hafa veitt styrki án heimildar:
Segist hafa farið að lögum
SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON
Veitti 24 styrki til minjaverndar án þess
að auglýsa eftir umsækjendum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPÁNN Dómsmál yfir Kristínu Spánarprinsessu
mun halda áfram fyrir spænskum dómstólum.
Kristín er systir Felipes Spánarkonungs sem
krýndur var í síðustu viku. Breska blaðið The
Guardian greinir frá.
Málið kemur sér afar illa fyrir hinn nýja
konung sem lofaði við krýninguna að hafa
heiðarleika og gegnsæi að leiðarljósi í nýju
starfi. Dómsmálið er talið ein af ástæðunum
fyrir því að Juan Carlos afsalaði sér völdum
sem konungur Spánar eftir tæplega fjörutíu
ára valdasetu.
Spænskir saksóknarar eru einnig á eftir
eiginmanni Kristínar, fyrrverandi handbolta-
kappanum Iñaki Urdangarin. Hjónin eru grun-
uð um skjalafals, fjárdrátt og peningaþvætti.
Urdangarin rak góðgerðarsamtökin Nóos
sem sáu um ráðgjöf auk þess að skipuleggja
íþróttaviðburði og ráðstefnur.
Hjónin eru grunuð um að hafa notað sam-
tökin og sambönd sín gegnum konungsfjöl-
skylduna til að tryggja samninga við opinbera
aðila og ofrukka fyrir þjónustu. Urdangarin og
samverkamaður hans, Diego Torres, eiga svo
að hafa komið fé þaðan til einkarekinna fyrir-
tækja og í skattaskjól.
Lögfræðingar hjónanna neita sök og segja
þau ekki hafa brotið lög. -ih
Systir Spánarkonungs og eiginmaður hennar eru grunuð um peningaþvætti, fjárdrátt og skjalafals:
Kristín Spánarprinsessa fyrir dómstóla
KONUNGUR Í VANDA Dómsmálið kemur sér afar illa
fyrir spænsku konungsfjölskylduna og Felipe Spánarkon-
ung. FRÉTTABLAÐIÐ/AP