Fréttablaðið - 26.06.2014, Blaðsíða 6
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
FJARSKIPTI Áframhald á dreifingu
dagskrár RÚV um gervihnött er í
uppnámi, en fjárveiting til verk-
efnisins liggur ekki fyrir. Dreif-
ing útvarps- og sjónvarpsdag-
skrár til sjómanna, strjálbýlla
svæða og þeirra sem nýta útsend-
ingarnar erlendis fellur því niður
að óbreyttu um mánaðamótin.
Eyj ólfur Valdi mars son , yf ir-
maður tækni mála hjá RÚV, stað-
festir að ekkert sé í hendi ennþá
um hvort útsendingunum verður
fram haldið, en þær falla niður
strax í næsta mánuði eftir því sem
næst verður komist.
Spurður um hversu margir not-
endur reiði sig á þessa þjónustu
segir Eyjólfur það óljóst. „En það
er flotinn, sumarhúsaeigendur
og jaðarbyggðir sem eru helstu
notendurnir,“ segir Eyjólfur og
staðfestir að engin önnur tækni
sé raunhæf í staðinn sem tryggi
útsendingarnar til þeirra þúsunda
sem hafa nýtt sér þær.
Kostnaðurinn við útsending-
arnar mun vera allt að 70 millj-
ónir en það fæst ekki staðfest
nákvæmlega. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins er hins vegar
um árlegt hark að ræða að fjár-
magna verkefnið, en atvinnuvega-
nefnd Alþingis fundar sérstaklega
um málið í dag.
Til marks um vandræðin við
fjármögnunina hefur Fréttablað-
ið heimildir fyrir því að RÚV hafi
farið þess á leit við LÍÚ að sam-
bandið keypti þessa þjónustu að
hluta. Var þar um verulega upp-
hæð að ræða, eða 10 til 15 milljón-
ir króna á ári. LÍÚ vísaði erindinu
frá sér með því fororði að málið
hlyti að vera á könnu ríkisins og
dreifing á efni félli undir lögbund-
ið hlutverk RÚV.
Jón Gunnarsson, formaður
atvinnuveganefndar, segir fundinn
kallaðan saman
ti l að skýra
málið, en alls
óljóst sé hver nið-
urstaðan verður,
enda sé ekki gert
ráð fyrir verk-
efninu á fjárlög-
um. Til fundar-
ins eru kallaðir
fulltrúar RÚV,
ráðuneyta og hagsmunaaðila.
Spurður hvort lausn geti falist í
að færa verkefnið frá ráðuneytinu
og aftur til fjarskiptasjóðs segir
Gunnar að þar sé ekki fjármagn til
að mæta slíku. Verkefnið var fært
frá sjóðnum vegna fjárskorts á
sínum tíma, er skilningur Gunnars
sem játar því að verkefnið sé mikil-
vægt fyrir allstóran hóp fólks.
svavar@frettabladid.is
ÓVISSA Fjármögn-
un gervihnatta-
útsendinga er ekki
á bókum RÚV
heldur er það
menntamálaráðu-
neytið sem fóstrar
verkefnið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Óvissa um áframhaldandi
útsendingar um gervihnött
Sjómenn, fólk í jaðarbyggðum, sumarhúsaeigendur og Íslendingar erlendis gætu orðið án útsendinga á dagskrá
RÚV um mánaðamótin. Ríkið þarf að finna allt að 70 milljónir. RÚV leitaði til LÍÚ um kaup á þjónustunni.
Útsendingar um gervihnött hófust veturinn 2007 og voru upphaflega
á könnu fjarskiptasjóðs, sem stofnaður var tveimur árum fyrr og voru
honum lagðir til 2,5 milljarðar af söluandvirði Landssíma Íslands. Var
honum ætlað að standa straum af verkefnum innan fjarskiptaáætlunar, og
útsendingar um gervihnött var eitt þeirra. Árið 2010 var verkefnið fært til
menntamálaráðuneytisins og svo er enn. Í minnisblaði fjarskiptasjóðs frá
2009 segir að leysa verði verkefnið fljótt enda falli útsendingarnar niður
muni það „… valda mikilli óánægju hjá þeim sem fjárfest hafa í búnaði og
nýta sér þjónustuna, svo sem sjómönnum og íbúum á svæðum þar sem
sjónvarpsskilyrði eru óviðunandi.“
Útsendingar um gervihnött hófust 2007
ÚKRAÍNA, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti íhugar að beita
Rússa harðari efnahagsþvingun-
um vegna stöðunnar í Úkraínu.
Þvinganirnar myndu hafa áhrif
á mikinn hluta rússnesks efna-
hagslífs.
Leiðtogar Evrópuríkja eru
taldir tregari til efnahags-
þvingana nú því þeir segja Vlad-
ímír Pútín, forseta Rússlands,
hafa tekið skref í átt til friðar.
Pútín lagði í gær frumvarp
fyrir rússneska þingið um að
heimild hersins til að grípa til
hernaðaraðgerða í Úkraínu verði
dregin til baka.
Utanríkisráðherrar NATO-
ríkja funduðu í Brussel í gær. Þar
sagði Anders Fogh Rasmussen,
aðalritari NATO: „Rússar þurfa
að beita sér fyrir friði í Úkraínu
og hætta stuðningi við uppreisn-
armenn.“
Rasmussen bætti við að NATO
hygðist senda Úkraínumönnum
fé svo hægt yrði að styrkja varn-
ir landsins. - ih
NATO ætlar að senda Úkraínumönnum fé til að styrkja varnir landsins :
Íhuga þvinganir gegn Rússum
FUNDAÐ Í BRUSSEL Anders Fogh
Rasmussen vill að Rússar hætti stuðn-
ingi við uppreisnarmenn í Úkraínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra Kína, Zhang Mao, sem
einnig fer með neytendamál, heim-
sótti Ísland nýlega og átti fund með
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur inn-
anríkisráðherra.
Ræddu þau ýmsar hliðar neyt-
endamála, lagaumhverfi, neyt-
endavernd og tækifæri sem liggja í
auknum viðskiptum ríkjanna.
Kínverski ráðherrann kynnti
meðal annars atvinnurekendum og
fleirum stefnu og störf Kína á sviði
neytendaverndar. - jme
Ræddu aukin samskipti:
Kínverskur ráð-
herra í heimsókn
1. Hvað heitir íslenska stúlkan sem
fær ekki vegabréf vegna nafns síns?
2. Hver er nýr formaður Velferðar-
vaktarinnar?
3. Hver er seðlabankastjóri CCP?
SVÖR:
1. Harriet.
2. Siv Friðleifsdóttir.
3. Eyjólfur Guðmundsson.
BANDARÍKIN Landsframleiðsla
Bandaríkjanna skrapp saman um
2,9 prósent á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs.
Samdrátturinn hefur ekki verið
meiri frá árinu 2009. BBC greinir
frá.
Mestu munaði um að útgjöld til
heilbrigðismála og útflutningur
drógust saman.
Stjórnvöld gera þó ráð fyrir að
merki séu um að hagvöxtur taki
við sér á ársfjórðungnum sem nú
er að ljúka. - ih
Hagkerfi BNA dregst saman:
Mesti samdrátt-
ur síðan 2009
ÍRAK Núrí al-Maliki, forsætis-
ráðherra Íraks, hafnar kröfum
Bandaríkjanna og fleiri þjóða
um að komið verði á þjóðstjórn í
Írak. Maliki segir enga ástæðu til
að deila völdum þrátt fyrir sókn
skæruliða í Írak.
Kúrdar í norðurhluta Íraks
hafa einnig tekið hugmyndum um
þjóðstjórn fálega.
Viðbrögð Íraka eru talin vera
til merkis um þverrandi áhrif
Bandaríkjanna í Mið-Austurlönd-
um. BBC greinir frá. - ih
Þverrandi áhrif BNA í Írak:
Maliki vill ekki
sjá þjóðstjórn
ANDAR KÖLDU Maliki hafnaði tillögu
Johns Kerry og Bandaríkjanna um þjóð-
stjórn í Írak. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JÓN GUNNARS-
SON
VEISTU SVARIÐ?
Afríkusól frá Rúanda. Dökkir Afríkuskuggar eru mjúkir og
yndislegir í þessu kaffi. Hentar í allar gerðir uppáhellingar.
kaffitar.is