Fréttablaðið - 26.06.2014, Blaðsíða 34
KYNNING − AUGLÝSINGÞvottur og fataviðerðir FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 20144
NÝTTU TÍMANN ÞAR TIL FLUTT VERÐUR
Ertu að fara að flytja? Það getur verið ágætt að vera skipulagður
og byrja strax að pakka eftir að kaupsamningur hefur verið
samþykktur. Oft eru þrír mánuðir til afhendingar svo mjög gott
er að nýta tímann sem best. Fyrst er hægt að fara í gegnum
fataskápana. Ef þú flytur um sumar er gott að taka allar vetrar-
flíkur og -skó og pakka ofan í kassa. Öfugt ef flutt er að vetri til.
Um leið er hægt að flokka föt sem enginn notar lengur og senda
í fatasöfnun. Það er virkilega þægilegt, þegar flutningar nálgast,
að vera búinn að þessu. Ágætt er að þvo fötin ef þess þarf og
raða þeim fallega í lokaða kassa, þá er ekkert mál að taka þau
upp og nota þegar veður fer aftur kólnandi. Sparistell og aðra
muni sem notaðir eru sjaldan er einnig gott að þvo og setja í
kassa. Þá er hægt að þrífa skúffur og skápa um leið.
AÐ ÞRÍFA STRAUJÁRN
Það er áríðandi að hafa strau-
járnið alltaf hreint áður en það
er notað. Annars geta óhrein-
indi borist í flíkurnar þegar þær
eru straujaðar. Þegar keypt er
nýtt straujárn er mikilvægt að
lesa leiðbeiningar um meðferð
frá framleiðenda til að tryggja
rétta notkun og að járnið endist
lengur.
Alltaf á að þrífa járnið kalt.
Það getur verið hættulegt að
reyna að þurrka heitt straujárn.
Ágætt ráð er að nota gluggaúða
á járnið og þurrka síðan yfir
það með rökum hreinum klút.
Einnig virkar edik ágætlega.
Ef efni hefur fest við straujárnið
er ágætt ráð að hita það örlítið
en skrúbba síðan yfir plötuna
með dagblaði. Látið síðan kólna
áður en þurrkað er yfir með
rökum klút. Til að þrífa holur í
járnplötunni er best að nota
bómullarklút og rúðuúða. Aldrei
nota beitt verkfæri sem getur
rispað á straujárnið.
Til að þrífa vatnshólf straujárns-
ins er gott að setja helming
edik á móti vatni og setja í
hólfið. Hitið járnið og látið gufa
smá stund, úðið vatninu síðan
úr eins og þegar straujað er.
Slökkvið á járninu og losið eftir-
stöðvar ediksvatnsins úr hólfinu.
Setjið síðan vatn aftur í járnið
og gerið það sama aftur til að
hreinsa edikið úr hólfinu. Aðra
hluta straujárnsins, handfang og
yfirborð, er hægt að þrífa með
rúðuúða og hreinum klút.
AÐ FESTA TÖLU
1. Þræddu nál með um það bil
30 cm löngum tvinna. Gerðu
hnút á endann. Saumaðu eitt
spor þar sem talan á að vera og
svo annað þvert yfir svo eftir
standi lítill kross.
2. Stingdu nálinni upp í
gegnum efnið, í eitt af fjórum
„hólfunum“ sem kross-
inn myndar og í
gegnum eitt
gatið á tölunni.
Stingdu nálinni
svo niður
gegnum gatið
ská á móti
og í gegnum
efnið. Gerðu eins
gegnum hin götin í
tölunni og endurtaktu leikinn
þrisvar. Passaðu að láta lofta
örlítið undir töluna.
3. Stingdu nálinni upp í
gegnum efnið en ekki gegnum
töluna heldur vefðu þræðinum
nokkra hringi undir tölunni.
4 Stingdu nálinni nokkrum
sinnum gegnum vafninginn
undir tölunni og klipptu hann að
lokum þétt við vafninginn.
5. Hnepptu að þér.
www.wsquire.com
Meiri kraftur í duftinu . *
Nýtt þéttara Ariel.
Minnkaðu magnið.
*20% meiri virkni í hverju grammi miðað við annað Ariel þvottaduft.