Fréttablaðið - 26.06.2014, Síða 26
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26
Á einni viku horfa ung-
lingar í Bandaríkjunum á
sjónvarp í 31 klukkustund,
hlusta á tónlist í 17 klukku-
stundir, horfa á bíómyndir
í 3 klst., lesa blöð í 4 klst.
og eru á netinu í 10 klukku-
stundir. Í allt eru þetta
tæpar 10 klukkustundir af
fjölmiðlaáhrifum á dag!
Dagleg skilaboð eru því
hvernig þú átt að haga þér,
hvað þú átt að gera, hvern-
ig fötum þú átt að klæðast og yfir-
höfuð hvernig þú átt að vera. Þetta
eru allt mjög áhrifamikil skilaboð.
Í dag er hægt að „gúgla“ allt
og alla. Unglingar og
fullorðnir fá nánast allar
upplýsingar á „YouTube“
eða „Google“ og þannig
mótar þetta huga okkar
og skoðanir.
Á nokkrum árum hefur
allt breyst. Í dag eru flest-
ir unglingar á „Facebook“,
„Instagram“, „Snap chat“
og með snjallsíma. Fólk
hittist sjaldnar og talar
lítið sem ekkert saman því
allir eru í snjallsímanum. Jólaboð-
ið þitt er komið á Facebook áður en
það byrjar!
Ef við skoðum fjölmiðlaskilaboð
til stúlkna þá eru þau skýr! Það
sem skiptir öllu máli er hvernig
þær líta út. Líkamsímyndin er það
sem allt snýst um. Samkvæmt fjöl-
miðlastöðlum eiga stúlkur að vera
grannar og líta vel út. Stinnur rass,
flott brjóst, flatur magi … þá fyrst
eru þær sexí og það eykur líkur á
árangri!
Kvenlíkaminn selur vörur út
um allan heim í formi auglýs-
inga, viðtala í tímaritum, mynd-
banda, bíómynda o.s.frv. Fjöl-
miðlar halda því fram að þetta sé
það sem fólk vill kaupa. Þeir eru
svo áhrifamiklir og sterkir að það
er vonlítið að stöðva þá. Í lok dags
er þetta alls ekki það sem almenn-
ingur vill. Allavega ekki fyrir
dætur sínar, systur eða vinkonur.
Allar konur sem eru sexí í fjöl-
miðlum, bíómyndum eða á mynd-
böndum … þær eru líka dætur,
vinkonur eða systur.
Skilaboð til drengja úr fjölmiðl-
um eru hins vegar þau að þeir
eigi að vera sterkir og láta ekki
vaða yfir sig. Vertu karlmaður!
Þeir eiga að sjá til þess að kröfum
þeirra sé fylgt eftir bæði í leik,
starfi og einkalífi.
Það er alltaf verið að reyna að
„sjokkera“ meira og meira til þess
að ná athygli neytandans. Meira
ofbeldi, meira kynlíf. Hver þorir
lengra? Sá sem fer lengra og gerir
meira fær meiri athygli. Hvenær
er komið nóg?!
Hvernig breytum við þessu?
Eitt af því sem mögulega er hægt
að gera til að stöðva þessa þróun er
að fá fleiri heilbrigðar fyrirmynd-
ir í fjölmiðlana. Ekki endilega þær
sem henta staðal ímyndinni heldur
mismunandi konur og karla. Góð
kvenfyrirmynd styrkir sjálfs-
ímynd kvenna, breytir gamaldags
hugsunarhætti, hvetur þær til þess
að horfa lengra og breytir framtíð-
arsýn ungra stúlkna. Sama á við
um unga stráka. Við þurfum heil-
brigðar fyrirmyndir fyrir þá til að
breyta gamaldags hugsunarhætti
þar líka. Það er ekki alltaf í lagi
að bæla eigin tilfinningar og harka
af sér, keyra áfram og vera þessi
harði nagli. Fyrirmyndir sem þora
að synda gegn straumnum og eru
ekki endilega þessi týpíska staðal-
ímynd.
Þetta snýst ekki um að vera fem-
ínisti, kvenremba eða karlremba!
Tökum afstöðu. Þín hugsun
og afstaða hefur áhrif á fólk-
ið í kringum þig og á endanum
getur það breytt afstöðu ann-
arra og haft margföldunaráhrif
á jákvæðan hátt.
Eru fjölmiðlar að ala upp börnin okkar?
SAMFÉLAG
Anna Guðrún
Steinsen
heilsumarkþjálfi
Íslendingar virðast marg-
ir haldnir þeirri trú að
lega landsins og herleysi
skapi okkur sérstöðu um
friðsemd í okkar heims-
hluta. Allt fram á árið
2014 mátti líka halda því
fram að öryggi okkar væri
tryggt með aðildinni að
NATO, varnarsamningn-
um við Bandaríkin ásamt
tímabundinni loftrýmis-
gæslu, einnig með þátt-
töku flugherja Svíþjóðar og Finn-
lands utan NATO. Þá varð það til
mestu óheilla, að Rússar veittust að
Úkraínu með valdbeitingu og yfir-
tóku Krímskaga. Landamærum
Evrópu var breytt eins og við inn-
limun Austurríkis af Þjóðverjum í
aðdraganda seinni heimsstyrjald-
arinnar. En sagan er því miður ekki
þar með öll. Einmitt þegar Rússar
höfðu gripið til aðgerða gagnvart
Úkraínu, koma yfirlýsingar Pútíns
um stórátak í hervæðingu á norður-
svæðinu.
Stríðsaðgerðir gegn hryðjuverka-
starfsemi sem gripið var til í Írak
og Afganistan eftir árásina á Tví-
buraturnana 2001, hafa borið allt
annað en tilætlaðan árangur, eins
og Javier Solana bendir á í Morgun-
blaðinu 21. júní. Bandaríkin eru
vanmáttug um að koma á friðsam-
legri sambúð sjíta og súnníta. Þá
má ætla að Evrópuþjóðirnar axli
sjálfar þá ábyrgð á eigin vörnum
sem eðlileg er. Hvert verður þar
hlutverk Evrópusambandsins á
eftir að koma í ljós. Afstaða Norður-
landa undir forystu Norðmanna til
varna og öryggis á Norðurslóðum
tengist samvinnu við Bandarík-
in. Þar er fengin leið í varnar- og
öryggismálum sem tekur tillit til
hagsmuna Íslands. Þessa þróun
ber straumur sögunnar því innan
vaxandi Evrópusamvinnu
verður hlutur Norður-
landanna meiri, svo sem
vera ber. Hlutverk Íslands
í því samstarfi helgast af
landlegu og allri fortíð
þjóðarinnar sem óaðskilj-
anlegs hluta Evrópu.
Öllu alvarlegri þróun
en aðsteðjandi hernaðar-
ógn eða ágengni Kínverja
snertir nú efnahagslegt
sjálfstæði Íslands. Þess
hefur verið beðið að fyrir lægi end-
anleg dómsniðurstaða Hæstarétt-
ar Bandaríkjanna í uppgjöri Argen-
tínu við vogunarsjóðina. Nú er
niðurstaða fengin og að greiða beri
kröfur sem urðu við bankahrunið
í Argentínu 2001. Mikil málaferli
hafa engu skilað nema kostnaði og
að lánardrottnar eru í miklu sterk-
ari stöðu en áður. Bent er á að þetta
hafi sömu áhrif alls staðar í fjár-
málaheiminum. Ef Argentína þver-
skallast við að gera upp skuldirnar,
blasir við áframhaldandi fjármála-
leg einagrun með afar neikvæðum
efnahagslegum afleiðingum – lang-
tíma efnahagslegum fimbulvetri.
Gæti þetta beðið okkar?
Er það rétt, að aðrar kröfur en í
þrotabú föllnu bankanna, svokölluð
snjóhengja, séu slíkar að án viðun-
andi samninga við kröfuhafa reki
Ísland í gjaldþrot? Við hljóta þá að
blasa varanleg gjaldeyrishöft í vax-
andi fátækt og landflótta fólks. Öllu
verra væri að einmitt þeirri einu
lausn, sem við getum vænst, væri
rutt út af borðinu með þeirri óláns-
aðgerð að aðildarviðræðurnar við
Evrópusambandið voru stöðvaðar.
Þegar síðar var gengið svo langt
að slíta skyldi alveg viðræðunum
féll yfir skriða mótmæla 40.000
Íslendinga. Margir töldu ekki eftir
sér sporin á fundina á Austurvelli.
Um skuldamálin og ESB er
fjallað í skýrslu Alþjóðamálastofn-
unar HÍ um aðildarviðræðurnar.
Þar er gert ráð fyrir að afnám fjár-
magnshafta verði eitt helsta samn-
ingamálið. Bent er á að miðað við
reynslu annarra ríkja kæmu nokkr-
ir farvegir til greina fyrir ESB til
að styðja við afnám haftanna: 1.
Slík aðstoð myndi ráðast á síðustu
metrunum í aðildarviðræðunum
og engar skuldbindingar af hálfu
ESB myndu liggja fyrir fyrr en á
síðustu metrunum og aðildarsamn-
ingur yrði gerður opinber. 2. Slík
aðstoð myndi væntanlega vera hluti
af áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. 3. ESB ásamt Evrópska seðla-
bankanum hafi þegar gefið ádrátt
um frumkvæði um stofnun vinnu-
hóps um afnám hafta.
Er ekki kominn tími til að for-
gangsraðað sé um aðgerðir sem
leiða til þess að þjóðin njóti örygg-
is um farsæld í stað óvissu? Um það
hefur rödd mótmælendanna heyrst
skýrt og ákveðið á fundum sem
kenna sig við Viðreisn. Sett er fram
sú krafa að aðildarviðræðum við
ESB verði lokið og lítt eru ummæli
Illuga Gunnarssonar á Hrafnseyri
17. júní Jóni Sigurðssyni til virð-
ingar. Jón forseti var alþjóðasinni á
vísu síns tíma. Nú er tími fyrir hag-
stjórn á nýjum grunni um frelsi í
viðskiptum með vörur, þjónustu og
fjármagn með fastgengi sem stefn-
ir að upptöku evru.
Um öryggi Íslands
EFNAHAGSMÁL
Einar
Benediktsson
fv. sendiherra
Fyrir um 15 árum var
byggð moska í grónu
íbúahverfi í norður-
hluta Seattle. Í þessu
hverfi bjó m.a. vina-
fólk mitt frá háskóla-
árunum, aldraðir Vest-
ur-Íslendingar, Ray
og Doris Olason, sem
urðu mér nokkurs
konar fósturfjölskylda
á námsárunum – og eru
raunar enn.
Nokkrum árum eftir að moskan
reis á götuhorninu þeirra var ráð-
ist á tvíburaturnana í New York.
Nágrannar moskunnar, undir for-
ystu þeirra Dorisar og Rays, hóp-
uðust það sama kvöld til mosk-
unnar með blóm, kerti og mat, og
skiptust á um að standa vörð um
moskuna alla nóttina. Þau héldu
uppteknum hætti vikum saman,
sannkristnir nágrannarn-
ir, og gættu þess að bæna-
húsið í hverfinu þeirra og
þeir sem þar komu saman,
yrðu ekki fyrir aðkasti eða
skaða vegna þess haturs og
ótta sem greip víða um sig
í tengslum við þessa voða-
atburði.
Þetta er falleg saga, en
henni er ekki lokið.
Nokkrum árum síðar var
Ray Olason, þá háaldraður, að slá
blettinn fyrir framan húsið sitt.
Grasbletturinn var við götuna
og óvarinn fyrir umferð. Þá ger-
ist það að stór trukkur kemur á
fleygiferð og keyrir gamla mann-
inn niður. Hann slasaðist mikið,
náði sér aldrei fyllilega eftir
þetta slys og er nú látinn. Þegar
Doris kona hans kom heim frá
sjúkrahúsinu seint um kvöldið
eftir slysið var hins vegar búið
að hreinsa allt blóð og önnur
ummerki við húsið þeirra. Þar
höfðu nágrannarnir úr moskunni
verið að verki og vildu þar með
sýna vinum sínum og velgjörðar-
mönnum þakklæti fyrir umhyggj-
una um árið. Í mörg ár þar á eftir,
raunar allt þar til Doris og Ray
fluttu á öldrunarheimili, sáu svo
múslim arnir úr moskunni um
að slá þennan blett þegjandi og
hljóðalaust, svo aldraðir íbúarnir
þyrftu ekki að stofna sér í hættu
við garðsláttinn.
Mér fannst ég þurfa að deila
þessari sögu einmitt núna. Flest
fólk er nefnilega gott fólk, hvaða
trúarbrögð sem það annars aðhyll-
ist, en við getum fyrst og fremst
búist við vináttu og velvild þess ef
við sýnum hana sjálf.
Lítil saga um mosku og gott fólk
MANNRÉTTINDI
Laufey
Steingrímsdóttir
næringarfræðingur
➜ Ef við skoðum fjölmiðla-
skilaboð til stúlkna þá eru
þau skýr! Það sem skiptir
öllu máli er hvernig þær líta
út. Líkamsímyndin er það
sem allt snýst um.
➜ Er ekki kominn tími til
að forgangsraðað sé um
aðgerðir sem leiða til þess
að þjóðin njóti öryggis um
farsæld í stað óvissu?