Fréttablaðið - 10.07.2014, Blaðsíða 1
EFNAHAGSMÁL Byggingakrönum á
höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað
um rúmlega helming frá árinu 2010
samkvæmt talningu sem Frétta-
blaðið gerði.
Þröstur Lýðsson, framkvæmda-
stjóri hjá Merkúr sem flytur inn
og selur byggingakrana, segir að
innflutningur á krönum hafi auk-
ist mikið á síðustu misserum. „Það
er þannig með þessa sjálfreisandi
krana að þeir halda sér svakalega
í verðgildi. Hingað kom nýr krani
árið 2005 sem var svo seldur aftur
úr landi árið 2009 og kom aftur inn
árið 2014 á næstum sömu krónutölu
í öll skiptin.“
Seðlabankinn hefur reiknað út
að fylgni sé á milli fjölda bygginga-
krana á landinu og aukinnar fjár-
festingar á íbúðamarkaði.
Fjölgun byggingakrana hefur þótt
benda til þess að efnahagurinn sé að
rétta úr sér. Þröstur vill þó meina að
fara eigi sér hægt svo hér verði ekki
ofþensla og bólumyndun.
- ssb / sjá síðu 16
FRÉTTIR
S alcura DermaSpray inniheldur einstaka náttúrulega formúlu sem styður viðgerðarferli húðarinnar, kemst djúpt ofan í húðina og nærir hana innan frá og út. DermaSpray er þægilegt í
notkun, hefur kláðastillandi áhrif, minnk-
ar bólgur og roða. Úðaformið tryggir minni hættu á sýkingum, engan núning og
minni óþægindi þegar borið er á húðina. Salcura Zeoderm-húðkrem græðir og nærir efstu lög húðar-innar þegar þau eru þurr og/eða sködduð. Það inniheldur kraft-mikið
HEFUR ÞÚ REYNT ALLT?
GENGUR VEL KYNNIR Salcura DermaSpray er 100% náttúrulegt meðferðar-
úrræði í úðaformi sem getur veitt langvarandi bata við m.a. þurrki í húð,
exemi og sóríasis. Frábær árangur, auðvelt í notkun og engar aukaverkanir.
GÓÐ
REYNSLA
„Ég hef verið að
glíma við slæman þurrk á höndunum í allan v t
FYRIR
ALLA
SEM
ÞJÁST AF:
• Exemi
• Sóríasis
• Rósroða
• Kláða í húð
• Útbrotum
• Þurri húð
• Ofsakláða
LAUGAVEGSHLAUPAlls eru 357 hlauparar skráðir til keppni í Laugavegshlaupinu sem fer fram í átjánda sinn um helgina. Aldrei hafa fleiri hlaupið en nú. Ís-lenskir þátttakendur eru 216 en erlendir 141.
Dranella stretch gallabuxur
Útsöluverð
TÆKIFÆRISGJAFIRTILBOÐ - mikið af frábærum boðumtil
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
Hnífaparatöskur – 12 manna
14 tegundirVerð frá kr. 24.990
ÚTSALA! ÚTSALA!
Skipholti 29b • S. 551 0770
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
22
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
10. júlí 2014
160. tölublað 14. árgangur
kranar voru á
höfuðborgar-
svæðinu þegar Fréttablaðið
taldi þá á dögunum.
144
SKOÐUN Unnur Brá Kon-
ráðsdóttir skrifar um gjald-
eyrishöft og frelsi. 24
MENNING Shakespeare‘s
Globe Theatre sýnir Hamlet
í Hörpu eitt kvöld. 36
LÍFIÐ Þátttaka í handritasam-
keppni Doris Film og Wift fór
fram úr björtustu vonum. 54
SPORT Illskiljanleg ákvörð-
un IHF um að hleypa Þýska-
landi á HM vekur undrun. 48
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
Loksins fáanlegar í kiljuStefán Máni
Handhafi íslensku
glæpasagnaverðlaunanna
Blóðdropinn
2007, 2013 og 2014
SKIPIÐ
Metsölubókin sem
hefur verið ófáanleg
alltof lengi
MYRKRAVÉL
Nú loks fáanleg
í kilju
FACEBOOK: NAME IT ICELAND
INSTAGRAM: @NAMEITICELAND
FÓTBOLTI Argentína mætir Þýska-
landi í úrslitaleik HM í Brasilíu
á sunnudagskvöld. Það varð ljóst
eftir sigur Argentínumanna á
Hollendingum í undanúrslitum
í gær. Vítaspyrnukeppni þurfti
til að knýja fram úrslit eftir 120
markalausar mínútur en Sergio
Romero, markvörður Argentínu,
varði tvívegis í henni og var hetja
sinna manna. - esá / sjá síðu 48
HM í Brasilíu:
Argentína
í úrslitaleikinn
HETJAN Sergio Romero varði tvisvar í
vítaspyrnukeppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður-
nesjum tók fyrir nokkrum dögum
í notkun neyðarhnapp fyrir fólk
sem er í hættu á að verða fórnar-
lamb ofbeldis. Hnappurinn hefur
verið notaður erlendis í heimilis-
ofbeldismálum þegar hætta er á að
brotamaður brjóti nálgunarbann.
Aðeins einn notandi er með slík-
an hnapp enn sem komið er hér á
landi.
Samið hefur verið við fyrir-
tæki í öryggisþjónustu sem leigir
lögreglunni hnappinn. Notandinn
verður þó vaktaður fari hann út
fyrir umdæmið. Gögnin um mál
hans fara inn í Fjarskiptamiðstöð
ríkislögreglustjóra og eru því
aðgengileg í öðrum umdæmum.
Það kemur svo til kasta viðkom-
andi lögregluumdæmis ef notand-
inn sér sig knúinn til að nota neyð-
arhnappinn fjarri heimkynnum
sínum.
„Þetta er náttúrlega bara á
fyrstu metrunum en við teljum að
þetta sé leiðin sem samfélagið eigi
að fara í þessum málum,“ segir
Skúli Jónsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn.
Fjöldi heimilisofbeldismála sem
koma til kasta lögreglunnar á Suð-
urnesjum hefur þrefaldast á þrem-
ur árum. - jse/ sjá síðu 6
Lögreglan vaktar
fórnarlamb ofbeldis
Fjöldi heimilisofbeldismála sem koma til kasta lögreglunnar á Suðurnesjum hefur
þrefaldast á þremur árum. Brugðist er við með því að nota neyðarhnapp fyrir fólk
í áhættuhópi. Fyrsti notandinn fékk hnapp fyrir fáeinum dögum.
TÓNLIST Hljómsveitin Gus Gus
er þessa dagana að undirbúa tón-
leikaferðalag með haustinu til
að fylgja eftir hinni nýútkomnu
plötu Mexíkó. Einn af forsprökk-
um sveitarinnar, Stephan Stephen-
sen, einnig þekktur sem President
Bongo, fer ekki með í ferðalagið.
„Hann ætlar að taka sér frí að
minnsta kosti fram að jólum,“ segir
Þorsteinn Stephensen, umboðsmað-
ur Gus Gus og bróðir Stephans.
Tónlistarmaðurinn Magnús
Guðmundsson, Maggi Legó, fyllir
upp í skarðið á tónleikaferðalag-
inu.
- bþ / sjá síðu 54
Gus Gus í tónleikaferðalag:
Forsetinn fer
ekki með
TÓNLEIKAFERÐ FRAM UNDAN
Maggi Legó fyllir skarðið. MYND// ARI MAGG
Byggingakranar spretta nú upp eins og gorkúlur um allt höfuðborgarsvæðið:
Innflutningur á krönum hafinn
Bolungarvík 10° SSV 3
Akureyri 13° SSV 3
Egilsstaðir 17° S 3
Kirkjubæjarkl. 11° SA 2
Reykjavík 13° SA 6
Bjartast A-til Í dag hvessir af suðaustri
og fer að rigna um og eftir hádegi S- og
V-til. Yfirleitt hægur vindur og bjart með
köflum norðaustanlands. 4
… við teljum að þetta
sé leiðin sem samfélagið eigi
að fara í þessum málum.
Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
á Suðurnesjum
Heimilisofb eldismál sem
komu til kasta lögreglunnar
á Suðurnesjum.
2013 56
2010 18
LÖNG RÖÐ Miðar á leik KR og Celtic, sem fer fram í næstu viku, fóru í sölu á hádegi í gær. Löng röð myndaðist á fyrsta klukku-
tímanum en 1.550 miðar voru í boði. Jónas Kristinsson, framkvæmdastjóri KR, segir aðeins 200 miða eft ir og fara þeir í sölu í
hádeginu í dag. „Þetta er eins og við viljum hafa það,“ segir Jónas um stemninguna vegna leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Dræm laxveiði
Laxveiði í net í Þjórsá hefur dregist
saman um þriðjung milli ára. 2
Segjast sviptir valdi Sveitar-
stjórnarmenn eru ósáttir við hug-
myndir iðnaðarráðherra að nýjum
raforkulögum. 8
Innlend framleiðsla ónóg
Fjölmörg dæmi eru um að flytja
þurfi inn landbúnaðarafurðir þegar
innlend framleiðsla þrýtur. 12
Aðstoða pör Íslenskar konur hafa
hannað smáforrit sem hjálpar
pörum að ganga í gegnum glasa-
meðferð. 18