Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Fréttablaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 4
26. júlí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 manns sækja um að fá að að nýta séreignarlífeyrissparn- að til að greiða niður höfuðstól fasteigna sinna. 19.07.2014 ➜ 25.07.2014 hjólhýsi hafa verið nýskráð hérlendis það sem af er júlí. Heildarsalan á árinu er 153 hjólhýsi. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is 25 500 20.000 konur, fi mm- tugar eða eldri, eru nú langtímaatvinnulausar. Um 400 karlar á sama aldri eru langtíma- atvinnulausir. 287.000 krónur þarf að meðal- tali að borga fyrir ökunám og bílpróf. Á sama verðlagi kostaði námið 225 þúsund krónur fyrir tíu árum. 65,3% höfuðborgarbúa á aldrinum 18 til 49 ára lesa Frétta- blaðið eða nær þrefalt fl eiri en þau 22,7 prósent sem lesa Morgunblaðið. ÞJÓÐARÖRYGGI Nokkuð hefur verið um það að Íslendingar hafi hringt í íslenska sendiráðið í Noregi undan farna daga til þess að spyrja hvort óhætt sé að ferðast þangað til lands. Yfirvöld í Noregi skýrðu frá því á fimmtudag að hætta væri á hryðjuverkum á næstu dögum þar. „Það er afskaplega mikilvægt að fólk sem ætlar að koma hérna sé meðvitað um þetta og kynni sér það sem norsk stjórnvöld hafa sagt. Við verðum hins vegar að láta fólk- inu það eftir að draga ályktanir líkt og við gerum sjálf,“ segir Gunnar Pálsson sendiherra. Hann bætir því við að ekki sé á þessari stundu talin nein ástæða til að gefa út viðvaranir til Íslendinga sem ætla að ferðast til Noregs. Gunnar var sjálfur að koma frá Íran á fimmtudagsmorgun, um það leyti sem norsk stjórnvöld upplýstu um hryðjuverkaógnina í fjöl miðlum. Hann segist ekki hafa orðið var við neitt óeðlilegt á Gardermoen- flugvelli. Gunnar segir mjög skiljanlegt að Norðmenn bregðist ákveðið við hryðjuverkaógn, því einungis þrjú ár séu liðin frá því að Breivik framdi ódæðin í Ósló og Útey. Norð- menn séu enn í sárum eftir það. „Þá voru stjórnvöld gagnrýnd fyrir að hafa ekki séð fyrir eða brugðist nógu skjótt við. Ég held að þeir vilji ekki þurfa að sæta slíkum ákúrum aftur og ætla þess vegna að vera fyrri á ferðinni og gera almenn- ingi grein fyrir þeim vísbend- ingum sem þau hafa fengið,“ segir Gunnar. Gunnar segir að hafa verði í huga að margir Óslóarbúa séu núna í sumarleyfi utan Óslóar. Margir þeirra séu í sumarhúsum sínum. Göturnar séu því frekar tómlegar. „En því er ekki að leyna að fólk hérna er óttaslegið og vill hafa allan vara á,“ segir hann. Lífið gangi samt sem áður sinn vana- gang þótt fólk ætli sér að fara var- lega næstu daga. Gunnar segir að ýmsir velti vöngum yfir því hvort hugsan- legir hryðjuverkahópar kunni að láta til skarar skríða á mánudag- inn þegar föstuhátíð múslima, Ramadan, lýkur. Þá bendir Gunnar á að viðvar- anir stjórnvalda komi ekki alveg á óvart. „Öryggisþjónustan hér og varnarmálaráðuneytið hafa litið svo á, allavega undanfarin tvö ár, að hættan af völdum öfga- sinnaðra samtaka múslima væri skæðasta ógnin,“ segir Gunnar. Þeir hljóti að hafa eitthvað fyrir sér í því þótt rétt sé að taka fram að ekki séu allir múslimar öfga- sinnaðir. jonhakon@frettabladid.is Íslendingar hugsi yfir hryðjuverkaógn Íslendingar hafa hringt í sendiráðið í Ósló til að spyrja hvort óhætt sé að ferðast þangað. Íslenski sendiherrann hvetur fólk til þess að kynna sér upplýsingar frá norskum stjórnvöldum áður en það fer. Ekki sé ástæða til að vara við ferðum. GÆTA ÖRYGGIS Vopnaðir lögreglumenn fyrir utan Gardermoen-flugvöll skammt frá Ósló. Óttast er að hryðjuverk verði framin í Noregi á næstunni. NORDICPHOTOS/AFP En því er ekki að leyna að fólk hérna er óttaslegið og vill hafa allan vara á. Gunnar Pálsson sendiherra NÁTTÚRA Samkvæmt frumniður- stöðum rannsókna er fátt sem bendir til þess að álíka hrun verði úr brúnum Dyngjufalla og varð síðastliðinn mánudag. Þó þykir ástæða til að hafa var- ann á og verður umferð við Öskju áfram takmörkuð næstu daga. Í nágrenni við berghlaupið er mikil hætta á skriðuföllum og mun verða að minnsta kosti í ár. Því er fólk hvatt til að virða þær lokanir og merkingar sem eru við Öskju. - ih Brýnt að virða merkingar: Ferðir við Öskju enn hættulegar VIÐ ÖSKJUVATN Umferð við Öskju verður takmörkuð áfram. MYND/JARA FATIMA BRYNJÓLFSDÓTTIR LÖGREGLUMÁL Tveimur flugu- veiðistöngum af dýru merki var stolið af bíl veiðimanns um hábjartan dag við Elliðaárnar á fimmtudag. Á Facebook-síðu um Elliða- árnar segir Viktor Guðmundsson veiðivörður frá því að tveimur Sage-stöngum hafi verið stolið af bíl við félagsheimili Rafveit unnar í Elliðaárdal. „Elliðaárnefnd vill árétta það við veiðimenn að taka með sér aukastangir eða læsa þær inni í bíl,“ segir Viktor. „Ég varð fyrir þessu í hittiðfyrra og það var þar sem fullt af fólki var að fylgjast með veiðum við gömlu Elliðaárbrúna,“ bætir veiðimaður við í athugasemd. - gar Ósáttur fluguveiðimaður: Stöngum stolið við Elliðaárnar ELLIÐAÁR Veiðimenn eru uggandi um búnað sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEILBRIGÐISMÁL Landlæknis- embættið segir óvenjumarga hafa greinst með niðurgang af völdum kampýlóbakters undanfarið. Því hvetur landlæknir fólk til að gæta fyllsta hreinlætis við matreiðslu og neyta einungis ómengaðs vatns. Sýkingarnar virðast ekki eiga sameiginlega uppsprettu. Mat- vælastofnun tilkynnti í gær að kampýlóbakter-sýkingar í kjúk- lingi hefðu verið álíka margar og undanfarin ár. - ih/skó Hvetja til að gæta hreinlætis: Óvenjumargir með niðurgang BJÖRGUN Rúta með fimmtán farþega sat föst í Steinsholtsá á Þórsmerkurleið í gærmorgun. Drepist hafði á vélinni og var vatn farið að flæða inn og áin gróf hratt undan rútunni. Björgunarsveitir frá Hellu, Hvolsvelli og Landeyjum voru kallaðar út auk þyrlu Land- helgisgæslunnar. Landverðir í Básum voru fyrstir á vettvang á dráttarvél og tókst þeim að ná fólkinu úr rútunni og rútunni úr ánni rétt í þann mund er björg- unarsveitir komu á staðinn, um hálfri klukkustund eftir að beiðni um aðstoð barst. Engin slys urðu á fólki. - jhh Rúta sat föst í Steinsholtsá: Fimmtán ferða- löngum bjargað Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá ÁGÆTIS HELGARVEÐUR. Það ætti að sjást til sólar um allt land hluta úr helginni en víða verður skýjað með köflum. Einhverjir dropar falla á landinu í dag en á morgun ætti að verða þurrt að mestu ef undan eru skildar síðdegisskúrir á Norðausturlandi. 11° 3 m/s 12° 2 m/s 13° 2 m/s 12° 2 m/s Hæg breyti- leg átt, hvessir SV-lands um kvöldið. Strekkingur með S- og A- ströndinni. Gildistími korta er um hádegi 28° 32° 29° 25° 23° 27° 23° 26° 26° 25° 26° 32° 30° 33° 23° 28° 27° 26° 16° 1 m/s 16° 2 m/s 18° 2 m/s 14° 2 m/s 16° 2 m/s 13° 2 m/s 11° 2 m/s 14° 13° 12° 13° 15° 12° 18° 16° 16° 17° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur MÁNUDAGUR Á MORGUN HEIMASKÝ REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR HÚSAVÍK KEFLAVÍK SELFOSS AKRANES HAFNARFJÖRÐUR HEIMASKÝ SEM SAMTENGIR ALLAR TÖLVUR HEIMILISINS ! SÉRSTAKT TILBOÐSVERÐ 34.990 2TB INNIFALINN HARÐUR DISKUR Í VERÐI Sameiginleg gögn heimilisins geymd á einum öruggum stað svo allir geti nálgast þau úr tölvunni, spjaldtölvunni eða símanum. ZYX-NSA320S 20 ár eru frá afrekinu í Vöðlavík þegar áhafnir tveggja þyrlna björgunar- sveita varnarliðs- ins björguðu sex skipverjum af björgunar- skipinu Goð- anum sem var strandað og hálfsokkið. 75.000.000 króna fást úr sjóðum Knatt- spyrnusambands Evrópu til að greiða fyrir endurbætur á fl óðlýsingu Laugardalsvallar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.