Fréttablaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 27
| FÓLK | 3
Mikið úrval fjölbreyttra salatrétta og ljúffengar sal-atdressingar eru uppistaðan á nýjum og glæsi-legum veitingastað sem var opnaður nýlega við
Suðurlandsbraut 4 í Reykjavík. Staðurinn, sem ber heitið
Fresco, er bjartur og fallegur og gestir geta bæði notið
veitinga í ró og næði og tekið matinn með í vinnuna eða
heim. Ásgeir Ingi Einarsson, sem rekur Fresco ásamt
föður sínum og bróður, segir tíu mismunandi salatrétti
vera í boði og mikið vera lagt upp úr besta fáanlega hrá-
efni. „Gestir geta bæði valið salöt hússins og sett saman
eigin salatdiska. Einnig er hægt að setja salöt inn í vefjur
fyrir þá sem vilja aðeins meiri fyllingu. Að öðru leyti eru
þetta vel útilátnir skammtar enda hafa viðtökurnar verið
mjög góðar þessar fyrstu vikur.“
Réttir hússins innihalda fjölbreytt úrval grænmetis,
ávaxta, kjötmetis og fiskmetis. Fyrir utan hefðbundið
innihald má nefna chili-baunir, bakaða papriku, fennel,
ætiþistla, pikklaðan lauk og nachos-flögur auk úrvals
fræja og berja. Boðið er upp á steiktan kjúkling, saffran-
kjúkling, fajitas-júkling, BBQ-kjúkling, heitreyktan lax og
roast beef. Grunn salatsins mynda fimm salattegundir;
romaine, klettasalat, spínat, grænkál og bankabygg.
Salat dressingarnar eru fjórtán talsins og eru allar lag-
aðar á staðnum og ljúffengar.
Fresco tekur tæplega 40 manns í sæti en margir gest-
anna taka matinn með, ýmist í vinnuna eða heim eftir
vinnu. „Hér í kringum okkar vinnur fjöldi manns sem
hefur tekið okkur fagnandi. Auk þess erum við í alfara-
leið fyrir marga sem vilja grípa hollan og góðan mat á
leiðinni heim. Það er einföld, holl og þægileg lausn fyrir
upptekið fólk.“
Sem fyrr segir voru þeir feðgar búnir að ganga með
hugmyndina lengi í maganum. „Svona staðir hafa gengið
vel í New York og Boston þar sem við höfum oft dvalið.
Um áramótin ákváðum við að kýla á þetta og settum
hugmyndavinnu af stað með Hákoni Má Örvarssyni mat-
reiðslumeistara sem hannaði matseðilinn og salatdress-
ingarnar að mestu leyti.“
Þeir sem enn eru svangir að mat loknum geta gætt sér
á ljúffengum jógúrtís með ávöxtum.
Fresco er opinn alla daga vikunnar milli kl. 11 og 21.
Allar nánari upplýsingar má finna á Facebook undir
Fresco.
FERSKT SALAT Í FALLEGU UMHVERFI
FRESCO KYNNIR Nýlega var nýr veitingastaður sem sérhæfir sig í hollum og góðum salatréttum opnaður á Suðurlandsbraut. Gestir
geta bæði valið salöt hússins og sett saman rétti að eigin vild. Bæði er hægt að borða á staðnum og taka matinn með sér heim.
VEL STAÐSETTUR
Fresco er í alfaraleið fyrir
þá sem vilja setjast inn eða
grípa mat á leið heim.
NOTALEGT
Fresco er bjartur og fal-
legur staður sem var opn-
aður fyrir nokkrum vikum.
BRAGÐGÓÐ HOLLUSTA
Gestir Fresco geta valið úr tíu salat-
réttum og fjórtán salatdressingum
eða sett saman eigin salatrétt.
PALM BEACH
SALAT
Inniheldur BBQ-
kjúkling, epli,
pikklaðan lauk,
sætar kartöflur,
cheddar-ost,
þurrkuð trönuber
og pekan-hnetur.
FJÖLBREYTNI
Gestir geta valið úrval
af hnetum, fræjum og
berjum í salötin.
GÓÐ SAMVINNA
Starfsfólk Fresco
útbýr salöt úr besta
mögulega hráefni sem
völ er á.
M
Y
N
D
IR/D
A
N
ÍEL
CAESAR-SALAT
Inniheldur saffran-
kjúkling, kirsuberja-
tómata, parmesanost
og brauðteninga.