Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 10

Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 10
26. júlí 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN D ruslugangan verður haldin í fjórða sinn í dag. Gengið verður frá Hallgrímskirkju klukkan tvö en einnig verður gengið á Akureyri, Ísafirði og í Vestmannaeyjum. Að lokinni göngu verða haldnir tónleikar í miðbæ Reykjavíkur. Druslugangan er þarft framtak sem á rætur sínar að rekja til Toronto og var fyrst haldin þar í borg 3. apríl 2011. Tilefnið var að í janúar það ár lét lögreglustjóri nokkur í Toronto, Michael Sangui- netti að nafni, hafa það eftir sér að hann vissi vel að hann ætti kannski ekki að segja þetta en gerði það samt: „Konur ættu að forðast að klæða sig eins og druslur til þess að verða ekki fórnarlömb.“ Eins og gefur að skilja þá vöktu þessi ummæli hörð við- brögð og að sögn Maríu Lilju Þrastardóttur, eins af skipu- leggjendum göngunnar hér á landi, fundu konur í Kanada sig knúnar til að mótmæla þessu harðlega. María Lilja segir jafnframt að sama orðræða hafi komið upp hér á landi eins og frægt er orðið. Í Íslandi í dag í vikunni sagðist hún einnig ánægð með að gangan fari stækkandi ár frá ári enda snertir málefnið okkur öll. Reykjavíkurborg er í ár styrktaraðili göngunnar og er það vel. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagðist í Íslandi í dag í vikunnu alltaf hafa verið mikill stuðningsmaður göng- unnar því honum „finnst svo heilbrigt að færa ábyrgðina frá fórnarlömbum kynferðisofbeldis yfir til geranda“. Taka má undir þessi orð því alltof lengi hafa fórnarlömb kynferðis- ofbeldis þurft að sitja ein uppi með ábyrgðina. En skömmin er ekki þeirra. Skömmin er þeirra sem fremja ofbeldið og reyndar er skömmin okkar líka. Sem samfélags þá og hvernig við tökum á ofbeldinu. Í ár er réttarkerfið nokkurs konar þema göngunnar. Sem er gott því við sem samfélag höfum lengi brugðist fórnarlömbum kynferðisofbeldis. Þegar kemur að þessum málaflokki er engu líkara en að okkur sé hreinlega ekki treystandi. Við vitum það öll en einhverra hluta vegna eigum við í stökustu erfiðleikum með að snúa þessu við og standa betur með fórnarlömbum kynferðisofbeldis. Frétta- blaðið gerði úttekt á sínum tíma sem sýndi að á þriggja ára tímabildi komu 1.374 kynferðisbrotamál til kasta lögregl- unnar. Aðeins var ákært í 71 máli af þessum 1.374. Þessi tölfræði ætti að hryggja okkur öll og gera orðlaus. Hvað þá sú staðreynd að í 29 af þessu 71 máli var sýknað. Það merkir sýknuhlutfall upp á fjörutíu prósent. Sem er í engu samhengi við önnur mál sem koma fyrir dómstóla en þar er dæmt í níu af hverjum tíu málum. Við skulum hugsa þetta í Druslugöngunni í dag. Hugsa um þá staðreynd að á hverjum degi kemur einhver, systir okkar eða bróðir, frændi eða frænka, og tilkynnir eða kærir kynferðisbrot til lögreglu á Íslandi. Á örfáum árum er um þúsundir fórnarlamba að ræða. Og þetta er okkar fólk, vinir okkar og vinkonur, og kannski við sjálf. Rétt um fimm prósent okkar munu sjá fram á að sá eða sú sem braut á okkur fari fyrir dómstóla. Miðað við sakfellingarhlutfallið geta í heildina aðeins þrjú prósent átt von á að nauðgara sínum sé refsað. ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@ frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@ frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Mikael Torfason mikael@frettabladid.is SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Í dag skulum við öll vera druslur: 3% Valdakerfi hvers samfé-lags byggist að miklu leyti á stjórnmálaflokkum og hagsmunasamtökum. Skoð- anakannanir og kosningaúrslit síð- ustu ára sýna að pólitískt mynstur er að breytast. Þetta kemur fram í tvennu: Ný styrkleikahlutföll milli hefðbundnu stjórnmálaflokkanna eru að festast í ákveðnu fari og tengsl þeirra og hagsmunasamtaka hafa að ákveðnu marki raknað upp. Lifandi tengsl stjórnmála og hags- munasamtaka þurfa ekki að vera slæm. Þvert á móti geta þau verið mikilvæg forsenda fyrir nægjan- lega djúpri og víðsýnni málefnalegri umræðu í samfélaginu. Þessi tengsl eru því aðeins hættuleg þegar þau leiða til þess að ákvarðanir á vett- vangi stjórnmál- anna mótast af afmörkuðum og þröngum hags- munum. Alþýðu- bandalagið var á sinni tíð eins og margir sósí- alistaflokkar eins konar menntamannaútgáfa af verkalýðshreyfingunni. En VG hefur aðeins varðveitt tengsl við til- tekna hópa opinberra starfsmanna en lagt rækt við umhverfisverndar- sinna. Alþýðuflokkurinn varðveitti lengi lifandi samstarf við almennu verkalýðsfélögin. Þau virðast hins vegar vera lausari í reipunum í Samfylkingunni. Styrkur Sjálfstæðisflokksins byggðist lengi á traustum tengslum við allar greinar atvinnulífsins og verulegum ítökum í almennu verka- lýðsfélögunum. Núna eru hagsmuna- tengslin einkum við útvegsmenn og bændur. Framsóknar flokkurinn hafði einnig tengsl við breiddina í atvinnulífinu í gegnum samvinnu- félögin en þau eru nú einskorðuð við bændur og að einhverju marki útveginn. Þannig hafa hagsmunatengsl allra gömlu flokkanna þrengst án þess að annað hafi komið í staðinn. Nýir flokkar sem sprottið hafa upp síðustu áratugi hafa yfirleitt snúist um einstaklinga eða þröng málefna- svið. Kvennalistinn er þar þó undan- skilinn. Breytt valdakerfi Þeir fjórir flokkar sem í ára-tugi hafa verið hryggjar-stykkið í pólitíkinni eiga hver um sig rætur í hugmynda- fræði sem eðlilega hafði áhrif á hagsmunatengsl þeirra. Og svo þarf að taka með í reikninginn að með vaxandi almennri vel megun er hugmyndabaráttan eðlilega ekki jafn skörp og einu sinni var. Sjálfstæðisflokkurinn er að fest- ast í þeirri stöðu að vera um það bil þriðjungi minni en hann var fyrrum. VG er einnig um þriðj- ungi minni en Alþýðubandalagið var. Samfylkingin er aftur á móti lítið eitt stærri en Alþýðuflokkur- inn. Mesta breytingin er á stöðu Framsóknar. Hún er meir en helm- ingi minni en gamli Framsóknar- flokkurinn. Kosningasigur Framsóknar í alþingiskosningunum fyrir ári gekk mjög hratt til baka í skoð- anakönnunum. Það tap var síðan staðfest í borgarstjórnarkosning- unum þó að samanburður við fyrri borgarstjórnarkosningar gæfi aðra mynd. Þetta eru meiri umskipti en nöfnin á flokkunum fyrr og nú gefa til kynna. Breytingarnar hafa ekki aðeins raskað valdakerf- inu heldur sýnast þær einnig hafa veruleg áhrif á það hvernig flokk- arnir nálgast pólitísk viðfangs- efni. Nýir flokkar hafa svo komið og flestir farið. Breytt flokkakerfi hefur einnig opnað pólitískt tómarúm að því er varðar utanríkisstefnu landsins og hugmyndir um samvinnu og samstarf við aðrar þjóðir. Þar var Sjálfstæðisflokkurinn áður kjöl- festa. Hætt er við að það hafi meiri langtímaáhrif en menn sjá í augna- blikinu þegar kjölfestan hverfur úr utanríkispólitíkinni. Minni fl okkar og fl eiri Ýmsir sjá kosti við marga og smáa flokka. En reynsla ann-arra þjóða bendir ótvírætt til þess að slíku pólitísku mynstri fylgi að jafnaði meiri lausung þó að ekk- ert sé algilt í þessum efnum. Ábyrg langtímasjónarmið víkja þá gjarnan um leið og skammtíma popúlístísk mál verða meira ríkjandi. Pólitíska breytingin á Framsókn samfara minnkun hennar er gott dæmi þar um. Vinstri stjórnin hefði trúlega ekki lent jafn þversum gagnvart verkalýðshreyfingunni og atvinnu- lífinu nema fyrir þá sök að tengslin við gamla baklandið höfðu trosnað. Þá verður að telja ólíklegt að Sjálf- stæðisflokkurinn hefði keypt sam- starfið við Framsókn jafn dýru verði og raun bar vitni í fjár málum og peningamálum ef hann hefði haldið fyrra vægi. Í stórum flokkum hugsa menn frekar til þess að vinna í haginn fyrir næsta kjörtímabil því að þeir hafa meiri möguleika á að halda áfram eða komast að síðar og svo týnast þeir síður í stjórnarandstöðu. Í minni flokkum er meir um að aðild að ríkisstjórn í eitt kjörtímabil sé tækifæri lífsins. Þá freistar popúl- isminn. Flokkakerfi breytast eðlilega með nýjum aðstæðum. Það er jákvætt og stundum nauðsynlegt til þess að komast megi hjá stöðnun. En flokka- kerfið er að því leyti líkt skipum að það þarfnast kjölfestu. Það á líka við á breytingatímum. Hættan við þá gerjun sem nú á sér stað er helst sú að báðir vængir stjórnmálanna verði án kjölfestu. Pólitík án kjölfestu Þú færð iittala í Höllinni! R E Y K J AV Í K | A K U R E Y R I

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.