Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 41

Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 41
Í Haribos Black & White er girnilegur, mjúkur lakkrís sem hentar stórvel í allan bakstur, enda verður hann ekki harður sem grjót þegar baksturinn kólnar, heldur helst áfram mjúkur og bragðgóður. LAKKRÍSMÚFFUR HRÁEFNI 2 egg 200 g af sykri 2 ½ dl súrmjólk 8 msk olía 2 tsk vanillusykur 2 tsk lyftiduft 250 g hveiti 100 g af Haribo Black & White, skorið í litla bita, nota einungis lakkrísbitana Dugar í u.þ.b. 20 múffur. LEIÐBEININGAR Þeyttu saman egg og sykur og bættu við vanillusykri, olíu og súrmjólk. Bættu næst við hveiti og lyftidufti og hrærðu öllu vel saman. Klipptu lakkrísinn niður í litla bita og settu út í deigið. Blandaðu öllu saman svo að dreifist vel úr lakkrísnum. Fylltu síðan tuttugu múffuform (að ¾ hlutum hvert) með deiginu og bakaðu við 200 gráður í u.þ.b. tíu mínútur. Þegar gyllt og girnileg skorpa tekur að myndast á múffunum og þær klessast ekki lengur við tannstöngul sé honum stungið létt í miðjuna, eru þær mátulega bakaðar. Taktu þær út og leyfðu þeim að kólna í nokkrar mínútur. Ekki spillir fyrir að húða þær með glassúr að eigin vali. UPPSKRIFT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.