Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 26.07.2014, Page 21

Fréttablaðið - 26.07.2014, Page 21
LAUGARDAGUR 26. júlí 2014 | HELGIN | 21 hljómsveitum, Sykurmolunum, Unun, dúettinum Hinu afleita þríhjóli og fleirum. Hann vill lítið tala um tímabilið með Sykurmol- unum og þá undarlegu stöðu að ferðast með barnsmóður sinni og fyrrverandi kærustu, Björk Guð- mundsdóttur, á tónleikaferða- lögum ásamt þáverandi kærustu sinni, Margréti Örnólfsdóttur. „Það var ekkert drama. Við Björk vorum alltaf vinir og svona staða kemur oft upp í vinahópum. Ég nenni alls ekki að fara út í það núna. Verð að fá að geyma eitt- hvað fyrir ævisöguna.“ Tal um ævisöguskrif leiðir eðli- lega af sér þá spurningu hvort hann sé enn að skrifa. „Já, já, ég geri það, en ekki lengur af sömu ástríðu. Ég er yfirleitt alltaf með penna og blokk á mér og alltaf öðru hvoru þá grípur mann eitt- hvað sem maður þarf að festa á blað. En ég er ekkert að hugsa um útgáfu á því sem ég skrifa. Allavega ekki eins og er. Mér finnst bara skipta máli að skrifa niður það sem hefur áhrif á mig.“ Þór er enn þá einn af eig endum Smekkleysu og sér þar meðal annars um upptökustjórn á plöt- um. Þessa dagana er hann að ljúka við nýja plötu Sindra Eldon, sonar hans og Bjarkar, sem kemur út í næsta mánuði. „Ég er mjög ánægður með hana. Öll lög og textar eru eftir Sindra og hann syngur og spilar á gítar með hljómsveit sinni The Ways. Það var gaman að vinna með honum, en það var enginn afsláttur gefinn af upptökunum þótt pabbi væri að stjórna.“ Ekki stórskaðað okkur Spurður hvort hann hafi ekkert varað soninn við músík bransanum segist Þór aldrei hafa gert það. „Allir verða að finna sín takmörk og ég styð hann bara í því sem hann vill gera. Ég trúi því enn þá að til þess að breyta heiminum þá verði maður að skapa eitthvað. Ég er ekkert hrifinn af samtím- anum eða vestrænni menningu en ef maður vill hafa áhrif á það hvernig hún þróast verður maður að taka þátt í að breyta henni.“ Þegar Þór er spurður hvort hann aðhyllist þá ákveðna stefnu til dæmis í umhverfismálum neitar hann því. „Ég er bara í mínu eigin liði, en ég styð alla baráttu fyrir betri og náttúru- vænni heimi. Ég get samt ekki gengið í skrúðgöngu undir ein- hverjum merkjum, það er ekki minn stíll.“ Hefur það að hafa dottið í súrrealískar pælingar strax á unglingsárum haft áhrif á það hvernig þú sérð heiminn? „Já, auðvitað hefur það gert það. Ég vil nú ekki segja að þetta hafi stór skaðað okkur, en það mótaði okkur sem einstaklinga, á því er enginn vafi. Án þess að ég ætli að hella mér út í predikun, sem mér hættir reyndar til, þá verður það aldrei endurtekið of oft að það skiptir máli hvað unglingarnir eru að gera. Það er ekkert eðli- legt við það að þau séu að senda hvert öðru klámmyndir af sér til dæmis. Þau gætu verið að gera svo margt annað uppbyggilegra, það þarf bara að benda þeim á aðrar leiðir til að tjá sig. Ég bý alltaf að þessum árum og ég held að þetta stúss hafi gert mig að betri manni.“ Medúsa var hópur lista- manna sem rakti rætur sínar til Breiðholtsins. Stofnaður árið 1979. Starfaði til um 1986 þegar flestir meðlimir voru farnir að sinna öðrum málum. Hópurinn gaf út mikið af bókum og hljómsnældum þar sem höfundar sáu sjálfir um alla þætti útgáfunnar. Hópurinn kenndi sig við súrrealisma, hreyfingu upp- runna í Frakklandi sem gaf frá sér sína fyrstu stefnu- yfirlýsingu 1924 undir for- ystu skáldsins André Breton (1896-1966). Meðlimir Medúsu fengust við myndlist, ljóðlist og tónlist og skipulögðu uppákomur þar sem ljóð voru lesin upp við undir- leik hljómsveitarinnar Fan Houtens Kókó þar sem Matthías Magnússon var aðalsöngvari, Ólafur Jóhann Engilbertsson spilaði á bassa, Einar Melax á hljóm- borð og Þór Eldon á gítar. HVER VAR ÞESSI MEDÚSA? ÚTSÖLU MARKAÐUR í kjallara evu laugavegi 26 markaður OPIÐ í DAG 11-18 Við erum í sumarskapi og bjóðum... 26. júlí - 29. júlí af öllum vörum afsl70% sunnudaginn 27. júlí... opið 13-17 Opið hjá okkur allan ársins hring www.facebook.com/fatomarkadur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.