Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 33

Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 33
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 FRÆÐSLUSTJÓRI Capacent Ráðningar Capacent Ráðningar Ármúla 13 // Hvannavöllum 14 Sími 540 1000 Staða fræðslustjóra á Akureyri er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum. Starfssvið: Fræðslustjóri er deildarstjóri skóladeildar og hefur yfirumsjón með framkvæmd laga og samþykkta um fræðslumál, s.s. um rekstur leik-, grunn-, og tónlistarskóla á vegum Akureyrarbæjar og hefur forgöngu um mótun faglegrar skólastefnu. Fræðslustjóri er framkvæmdastjóri skólanefndar, undirbýr fundi hennar og fylgir ákvörðunum hennar eftir. Fræðslustjóri er næsti yfirmaður skólastjóra. Hæfniskröfur: • Reynsla og þekking af stjórnun og rekstri • Góð þekking af málefnum grunn-, leik- og tónlistarskóla nauðsynleg • Frumkvæði og samstarfsvilji • Góðir skipulagshæfileikar • Hæfni í mannlegum samskiptum • Áhugi og reynsla til að leiða þróunarstarf og leita nýrra leiða • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum Akureyri er stærsti bær landsins utan höfuðborgarsvæðisins og eru íbúar um 18.000 talsins. Akureyri er mikill menningar- og skólabær. Bærinn er miðstöð athafnalífs og þjónustu fyrir allt Norðurland og iðar af mannlífi allan ársins hring. Fyrir utan hið eiginlega bæjarland Akureyrar í botni Eyjafjarðar eru eyjarnar Grímsey og Hrísey einnig innan vébanda sveitarfélagsins. Bæjarstjórn leggur áherslu á að veita íbúum bæjarfélagsins góða þjónustu á öllum sviðum og hlúa þannig að samfélagi sem er gott til búsetu. Menntunarkröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi Viðkomandi þarf að hafa sterka sýn á skólastefnu Akureyrarbæjar og vera tilbúinn til að leggja hana fram í viðtali. Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi fræðslustjóra. Ráðið er til fimm ára með möguleika á framlengingu. Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í starfið. Laun eru samkvæmt reglum um laun embættismanna Akureyrarbæjar. Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst nk. ATH: Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur frá áður birtri auglýsingu. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Frekari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Þóra Pétursdóttir (thora.petursdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.