Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 64
26. júlí 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 36
BAKÞANKAR
Nönnu Elísu
Jakobsdóttur
„Við erum búnir að vera saman í
hljómsveitum í mörg ár,“ segir Berg-
ur Þórisson en hann gaf ný verið út
plötuna Hugar ásamt vini sínum
Pétri Jónssyni. „Við komum úr mjög
mismunandi áttum,“ segir hann. „Ég
er mikill djassari en Pétur er meira
í rokkinu þannig að þetta er smá
„fusion“ tónlist.“
Félagarnir eru ekki óvanir tónlistar-
starfi en þeir hafa spilað saman með
allt frá fönkhljómsveitum upp í ball-
hljómsveitir auk þess sem Bergur
hefur unnið með Ólafi Arnalds
undan farin tvö ár. „Svo langaði
okkur að fara að taka upp og gera
eitthvað af viti. Við fórum eitthvað
að fikta og vorum smá tíma að finna
okkar leið.“ Þegar allt fór að smella
ákváðu þeir að gefa út plötu. „Við
erum mjög sáttir við lokaútkomuna,“
segir Bergur. „Það er alltaf flókið
að vita hvenær eitthvað er tilbúið,
manni finnst það aldrei nógu full-
komið en ef maður gerir það enda-
laust þá gefur maður aldrei neitt út.“
Plötuna er hægt að nálgast á
hugar.is, ókeypis. - bþ
Gefa út plötu ókeypis á netinu
Bergur Þórisson og Pétur Jónsson mynda hljómsveitina Hugar.
SÁTTIR MEÐ PLÖTUNA Félagarnir voru
smá tíma að finna sinn hljóm saman.
Ég myndi ráðleggja konum frá því að kæra kynferðisbrot, hlutfallslega fara
svo fá mál alla leið og þetta er svo langt
og erfitt ferli. Svo ekki sé minnst á hvað
þetta er dýrt fyrir ríkið. Þetta sagði kenn-
ari í refsirétti fyrir framan hóp af tæplega
hundrað nemendum í lögfræði. Hann horfði
yfir hópinn sem gapti af undrun. Og hann
glotti.
ÞETTA er sönn saga. Þetta var ekki grín.
Og orðin voru ekki sett fram til að vekja
málefnalega umræðu um stöðu kyn-
ferðisbrotamála á Íslandi – það hefði
getað verið ágætur leikur. Ég sat sjálf
í þessum tíma, síðastliðið haust, og sá
sem lét orðin falla var kennarinn í
fyrsta tímanum mínum í Refsirétti I
í Háskóla Íslands; ungur, tiltölulega
nýútskrifaður lögfræðingur sem
greinilega var talinn hæfur til að
leiða lögfræðinema í sannleikann
um refsivörslukerfi lýð veldisins
Íslands. Bekkurinn minn er
ekki þekktur fyrir að tjá sig
mikið í kennslustundum en í
þetta skipti tóku nokkrir nem-
endur sig til og andæfðu.
Í fyrsta lagi eru það ekki aðeins konur sem
verða fyrir kynferðisofbeldi. Í öðru lagi
er þetta, jú vissulega, langt og erfitt ferli,
en eina leiðin út er í gegn og það á alltaf að
segja frá. Þolendur kynferðisofbeldis eiga
margir hverjir langan veg fyrir höndum
en skömmin er ekki þeirra og það er alltaf
von um betra líf og líðan. Það er hrikaleg
staðreynd að aðeins 10 prósent þolenda
skuli kæra og aðeins 30 prósent þeirra mála
verði að ákærum. Í ljósi þess, og í þriðja
lagi, er óásættanlegt að þau skilaboð séu
send út í samfélagið að það sé gagnslaust að
kæra svo alvarlegan glæp. Og það af því að
það er svo dýrt fyrir ríkið? Allir í samfé-
laginu verða að geta treyst því að hægt sé
að leita réttar síns sé brotið á þeim, ekki
síst í þessum málaflokki.
ÞVÍ langar mig að biðja þig, kæri lesandi
og þjóðfélagsþegn, að standa upp í dag, eins
og krakkarnir í bekknum mínum, mótmæla
kennaranum og fara fram á betra samfé-
lag. Samfélag þar sem þolendur standa ekki
einir með glæpinn og upplifa skömm sem
er ekki þeirra. Druslugangan verður farin
frá Hallgrímskirkju klukkan 14.00 í dag og
þín skref skipta máli.
Ekki kæra– það er svo dýrt fyrir ríkið
Allir borga barnaverð
„EIPSJIT GEÐVEIK EF EKKI
BESTA MYNDIN Í SUMAR“
- T.V. BIOFIKILL.COM
SEX TAPE KL. 1 - 3:30 - 5.45 - 8 - 10.10
SEX TAPE LÚXUS KL. 1 - 3:30 - 5.45 - 8 - 10.10
DAWN . . . PLANET OF THE APES 3D KL.- 5 - 8 - 10.45
THE PURGE: ANARCHY KL. 8 - 10.20
DELIVER US FROM EVIL KL. 8
EARTH TO ECHO KL. 1 - 3
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 1 - 3.15 - 5.30
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 3D KL. 1 - 3.15
22 JUMP STREET KL. 10.40
VONARSTRÆTI KL. 5.20
SEX TAPE KL. 3 - 5.40 - 8 - 10.10
DAWN . . . PLANET OF THE APES 3D KL. 3 - 6 - 9
THE PURGE: ANARCHY KL. 10.40
DELIVER US FROM EVIL KL. 10.40
EARTH TO ECHO KL. 3
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 3.30 - 5.45
FAULT IN OUR STARS KL. 8
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI KL. 5.20
VONARSTRÆTI KL. 8
Miðasala á:
-T.V., BIOVEFURINN.IS-H.S.S., MBL
SEX TAPE 2, 5:50, 8, 10:10
HERCULES 8, 10:10(P)
PLANET OF THE APES 3D 7:30, 10:10
TEMJA DREKANN SINN 2D 2, 5
TÖFRALANDIÐ OZ 2D 2, 4
22 JUMP STREET 5ÍSL TAL
ÍSL TAL
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
ANDRI & EDDA VERÐA BESTU VINIR
LAU & SUN: 16.00
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRIKEFLAVÍK
NEW YORK DAILY NEWS
LOS ANGELES TIMES
SAN FRANCISCO CHRONICLE ROLLING STONE
BOSTON GLOBE