Fréttablaðið - 14.08.2014, Qupperneq 32
KYNNING − AUGLÝSINGSkólablaðið FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 20142
„Þetta er tilraunaverkefni sem er
þó búið að slíta barnsskónum og
hefur gefist afar vel. Við erum því
að hefja þriðja veturinn,“ segir
skólastjórinn Helgi Arnarson. Upp-
haflega kom bekkurinn til vegna
húsnæðisskorts í leikskólanum.
„Þá var pláss í skólanum og í stað
þess að byggja nýjan leikskóla var
ákveðið að fara þessa leið. Nú er
hins vegar pláss í leikskólanum en
við ætlum að halda þessu áfram og
erum mjög áhugasöm um að þróa
starfið enn frekar.“
Í upphafi var ráðinn deildar-
stjóri til að hafa umsjón með starf-
seminni. „Hún heitir Regína Rósa
Harðardóttir og er bæði grunn-
og leikskólakennari. Það er mik-
ill kostur og er það ekki síst henni
að þakka hvað þetta hefur gengið
vel. Við vinnum bæði eftir náms-
skrá leikskólans og yngstu barna
grunnskólans og reynum þannig
að draga sem mest úr skólaskilun-
um,“ útskýrir Helgi.
Foreldrar hafa val um hvort þeir
setja börn sín í fimm ára bekk eða
láta þau byrja ári síðar eins og venja
er. „Þeir eru eðlilega tvístígandi og
mörgum finnst erfitt að taka börn-
in úr litlum leikskóla og setja þau í
svona stóran skóla. Þeir sem hafa
slegið til hafa þó undantekninga-
laust verið ánægðir,“ segir Helgi.
Hann segist frekar hafa átt von á
því að fá börn sem hefðu þörf fyrir
krefjandi verkefni. „Það er þó allur
gangur á því og við mætum börn-
unum þar sem þau eru stödd. Jafn-
framt höfum við verið með börn af
erlendu bergi brotin svo þetta hafa
verið fjölbreyttir hópar sem er mik-
ill kostur.“
Nýverið var samþykkt í Fræðslu-
ráði Hafnarfjarðar að laga starf-
ið meira að starfi grunnskólans
og að fimm ára bekkur fylgi skóla-
dagatali hans. Nafninu var sömu-
leiðis breytt úr fimm ára deild
í fimm ára bekk. Nú fara börn-
in eftir stundaskrá líkt og sex ára
börnin en í henni er að finna bæði
bók-, verk- og listgreinar. „Eftir sem
áður leggjum við mjög ríka áherslu
á leikinn og fléttum hann inn í
kennsluna, en það er sú þróun sem
hefur orðið í kennslu yngri barna í
grunnskólum almennt. Við höfum
því lært heilmikið af leikskólanum
svo þetta er í báðar áttir.“
Helgi segir töluverða gerjun
í þessum efnum. „Eins og f lest-
ir vita hafa Ísaksskóli og Landa-
kotsskóli boðið upp á fimm ára
bekk í áraraðir. Síðustu ár hefur
þó bæst í hópinn og býður Flata-
skóli í Garðabæ líka upp á fimm
ára bekk og er jafnframt að byrja
með fjögurra ára deild í haust. Þá
er Krikaskóli í Mosfellsbæ með
grunnskóla fyrir tveggja til níu
ára. Umræðan er að opnast en
hingað til hefur þetta verið svo-
lítið klippt og skorið og talan sex
til sextán nánast heilög.“ Helgi
á von á því að sjá fjölbreyttari
skólagerðir á næstu árum. „Sjálf-
um finnst mér skólagerð sem
væri byggð upp á aldurshópun-
um fimm til tólf ára og svo þrett-
án til átján ára áhugaverð.“
Við vinnum bæði
eftir námsskrá
leikskólans og yngstu
barna grunnskólans og
reynum þannig að draga
sem mest úr
skólaskilunum.
Fleiri börn byrja fyrr í skóla
Í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði hefur síðastliðin tvö ár verið boðið upp á fimm ára bekk. Um tólf nemendur luku honum fyrsta
árið og álíka fjöldi í fyrra. Svipaður fjöldi fimm ára barna hefur nú þegar hafið nám. Fyrirkomulagið hefur gefist afar vel.
Fimm ára bekkur í Hvaleyrarskóla hefur þegar verið settur. Hér eru nokkur barnanna ásamt starfsmönnum. Skólastjórinn Helgi
Arnarson og deildarstjórinn Regína Rósa Harðardóttir eru fyrir miðju.
MYND/GVA
Lestrarkassinn er nýjung sem Skólavefurinn kynnti til leiks í vor og hefur fengið
mjög góðar viðtökur að sögn Jök-
uls Sigurðssonar, framkvæmda-
stjóra Skólavefsins. Hann segir
fyrirtækið binda miklar vonir við
verkefnið sem gengur út á að efla
lesskilning barna þannig að þau
nái betri tökum á þeirri list að
lesa sér til bæði gagns og gamans.
„Lestrarkennsla og lestrarþjálf-
un hefur lengi verið með nokkuð
hefðbundnu sniði en ekki hefur
verið lögð mikil áhersla á mark-
vissa lestrarþjálfun í eldri bekkj-
ardeildum. Lestur verður fyrir sí-
fellt aukinni samkeppni og því er
afar mikilvægt að taka lesturinn
föstum tökum enda skiptir hann
miklu máli í nútímasamfélagi. Það
er með lesturinn eins og nær allt
annað, maður þarf að þjálfa sig svo
árangur náist.“
Jökull segir lestrarkassann ein-
blína á að þjálfa lestur og lesskiln-
ing. Boðið er upp á stigskipta les-
texta úr ýmsum áttum og verkefni
fylgja með sem ætluð eru til að
efla skilninginn. „Í þessum fyrsta
lestrarkassa eru fimmtíu textar
en flokkun textanna miðast fyrst
og fremst við lengd, orðaforða og
misþung verkefni. Álfhólsskóli í
Kópavogi var fyrsti skólinn til að
nýta þetta verkefni og var það gert
á miðstiginu. Efnið er hægt að fá á
pappír en líka rafrænt fyrir spjald-
tölvur og snjallsíma. Lestrarkass-
inn er síðan partur af bekkjarkerf-
inu þannig að kennarinn nær allt-
af að fylgjast með framvindu mála
hjá nemendum sínum.“
Stærðfræðin útskýrð
Í haust mun Skólavefurinn bjóða
skólum, foreldrum og nemend-
um upp á Stærðfræðikennarann.
Um er að ræða einfaldan vef þar
sem öll helstu atriði stærðfræð-
innar eru skýrð út á einfaldan
og aðgengilegan máta með hjálp
myndbanda. Fjalar Freyr Einars-
son, raungreinakennari í Varmárs-
kóla í Mosfellsbæ, samdi allt efnið
sem hann hefur prófað á nemend-
um sínum. „Stærðfræðikennarinn
er hugsaður sem stuðningur við
nemendur í stærðfræði þar sem
öll helstu atriðin eru tekin fyrir.
Efnið miðast að mestu við nem-
endur 8.–10. bekkjar en þó er einn-
ig farið niður í grunn atriði sem
henta yngri nemendum.“ Stærð-
fræðikennarinn er byggður á stutt-
um myndböndum þar sem afmark-
að viðfangsefni er útskýrt í hverju
myndbandi. „Síðan fylgja í kjöl-
farið fjögur til fimm myndbönd úr
sama viðfangsefni sem eru hugsuð
sem þjálfunardæmi. Allt í allt eru
þetta um 500 myndbönd í ýmsum
efnisflokkum. Stærstu efnisflokk-
arnir eru almennu brotin og al-
gebra auk samlagningar og frá-
dráttar. Þannig eru þetta í raun öll
grunnatriði stærðfræðinnar og við
byggjum ofan á það sem reynist
nemendum erfiðast. Efnið hef ég
byggt á reynslu minni með nem-
endum mínum undanfarin ár.“
Auk þess geta nemendur prentað
út eða pantað dæmablöð og dæma-
hefti sem innihalda fleiri dæmi og
útreiknuð svör.
„Núna erum við líka búin að
setja inn kennsluskýringar á sam-
ræmdu prófunum í stærðfræði.
Þar geta nemendur prentað þau út
og reiknað þar til þeir sigla í strand
en þá leita þeir skýringa og lausna
á vefnum. Kennsluskýringarnar
ná til samræmdra prófa í 4., 7. og
10. bekk.“
Allar nánari upplýsingar um
Lestrarkassann og Stærðfræði-
kennarann má finna á www.skola-
vefurinn.is.
Gagnlegar og einfaldar lausnir
Skólavefurinn býður upp á fjölbreytta þjónustu til skóla, nemenda og foreldra. Lestrarkassanum er ætlað að efla lesskilning
barna og Stærðfræðikennarinn útskýrir ólíka þætti stærðfræðinnar á einföldu máli. Viðtökurnar hafa verið mjög góðar.
Lestrarkassinn og Stærðfræðikennarinn
eru frábær hjálpartæki fyrir börn og
unglinga. MYND/GVA
Jökull Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skólavefsins, og Ingólfur B. Kristjánsson, ritstjóri
Skólavefsins.
MYND/GVA