Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 70
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50 SUMARDRYKKURINN „Þetta er skemmtilegt grínlag á þýsku sem er eigin- lega nettur einkahúmor,“ segir Egill Ploder Ott- ósson, einn umsjónarmanna sjónvarpsþáttarins Áttunnar á Bravó, en hann, ásamt Nökkva Fjalari Orrasyni og Róberti Úlfarssyni, er að senda frá sér sitt fyrsta lag. Lagið er eins og fyrr segir á þýsku en tveir af umsjónarmönnum þáttarins eru miklir þýskuunnendur. „Við kunnum ekki mikið í þýsku en ég og Nökkvi tölum mikið saman á þýsku, sem er rosa fyndið því að Róbert skilur ekki orð í þýsku og verður oft pirraður þegar við tölum of mikla þýsku,“ segir Egill og hlær. Þýski textinn er í raun um þessa þýskustríðni Egils og Nökkva í garð Róberts og mikill einka- húmor. Lagið er nánast tilbúið og fengu þeir félagar strákana í StopWaitGo til þess að hljóðblanda lagið. Til þess að fullkomna þýskublæinn eru piltarnir á leið til Þýskalands til þess að drekka í sig þýska menningu og taka upp myndband. „Við fengum Ice- landair í lið með okkur og erum að fara til Münch- en um helgina og verðum þar í tvo daga að taka upp myndbönd, meðal annars tónlistarmyndband við þýska lagið,“ bætir Egill við. Gert er ráð fyrir að lagið og myndbandið verið fullklárað undir lok mánaðarins. „Við hlökkum til þess að sjá hvað fólki finnst, þetta verður hressandi lag.“ - glp Þýskur einkahúmor opinberaður Strákarnir úr sjónvarpsþættinum Áttunni eru að senda frá sér lag sem er á þýsku. Þeir eru einnig á leið til Þýskalands til að taka upp myndband við lagið. GAMAN SAMAN Hér eru drengirnir úr Áttunni, þeir Egill Ploder Ottóson, Nökkvi Fjalar Orrason og Róbert Úlfarsson, ásamt Lárusi Erni Arnarsyni taktasmið og Inga Þór Garðars- syni framleiðanda. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Það er heiður að vera í hópi þess- ara kvikmyndagerðarmanna og að vera nefndur í þessu samhengi,“ segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, en samkvæmt grein Davids Gord- ons Green í vefriti Dazed & Con- fused er Hafsteinn einn tíu kvikmyndagerðarmanna í heiminum sem vert er að fylgjast með. Hafsteinn er ánægður með hversu hrifinn Gordon Green var af kvikmynd hans París norðursins sem frumsýnd var í júlí á kvikmyndahátíð í Tékklandi. „Það er alltaf gaman þegar fólk upplifir myndina manns svona vel og á svona sterkan hátt.“ Green segir í greininni: „Þetta er ein af þessum myndum sem þú sérð og hún hrífur þig með sér og þú ert alveg læstur við skjáinn og fullur eftirtektar.“ Þar að auki lofar hann auga Hafsteins fyrir kvik- myndagerð. David Gordon Green endurgerði mynd Hafsteins Á annan veg undir nafninu Prince Avalanche. Hafsteinn segir erfitt að meta hvort umfjöllun Gordons í Dazed hafi áhrif á kynningu myndarinnar. „Hún er byrjuð að fá töluvert af boðum á kvik- myndahátíðir og byrjuð að eiga sér líf í raun og veru. Þetta hjálpar vonandi til. Og hjálpar kannski útlendingum að muna nafnið mitt,“ segir Hafsteinn og hlær. París norðursins verður frumsýnd hér á landi í byrjun september. - nej Einn af tíu sem fylgjast ætti með Hafsteinn Gunnar lofaður í tímaritinu Dazed Digital af David Gordon Green. „Allar þessar nýju íslensku teg- undir af bjór sem er svo gaman að smakka þar sem ég bý erlendis. Það er gaman að prófa þetta allt og þeir eru svo margir ótrúlega góðir.“ Dóra Jóhannsdóttir leikkona ÚTSALA Í FULLU FJÖRI ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR! Ö ll ve rð e ru b irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r o g m yn d- b l ld ð l d b ð d REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is Faxafeni 5, Reykjavík, Sími 588 8477 Dalsbraut 1, Akureyri, Sími: 558 1100 • Skeiði 1, Ísafirði, Sími 456 4566 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-16 Frábært verð! Dýna og Tegund Stærð Classic-botn Útsala C&J Gold 120x200 119.900 kr. 89.925 kr. C&J Gold 140x200 139.900 kr. 104.925 kr. C&J Gold 160x200 152.900 kr. 114.675 kr. C&J Gold 180x200 164.900 kr. 123.675 kr. AÐEINS KRÓNUR 89.925 ÚTSÖLUVERÐ GOLD120X200 AÐEINS KRÓNUR 114.675 ÚTSÖLUVERÐ GOLD160X200 C&J GOLD heilsurúm 25% afsláttur 5 svæða skipt yfirdýna. Laserskorið Conforma Foam heilsu- og hæg- inda lag tryggir réttan stuðning við neðra mjóbak og mýkir axlasvæði. Vandaðar kantstyrkingar. Vandað pokagormakerfi. Minni hreyfing betri aðlögun. Slitsterkt og mjúkt bómullaráklæði. Þykkt 29 cm. „Ég nýt þess að vera í sveitinni og hef verið hér í Bárðardal í nokkra daga að æfa með hrútunum. Bónda- hlutverkið fer mér vel, það er í raun mínar ær og kýr,“ segir leikarinn Sigurður Sigurjónsson, en hann leikur eitt aðalhlutverkanna í nýrri íslenskri kvikmynd sem ber nafn- ið Hrútar. „Það fyrsta sem ég sagði þegar ég fann fjósalyktina í sveit- inni var „I love it“ eins og ég hef nokkrum sinnum sagt áður þegar ég finn þessa æðislegu lykt,“ bætir Siggi við. Tökur á myndinni hefjast á mánu- dag í Bárðardal fyrir norðan og leik- ur Siggi þar á móti Theódóri Júlíus- syni. „Við leikum bræður sem hafa ekki talað saman í einhver fjörutíu ár en það er þó ekki þannig í raun- veruleikanum því við Teddi erum góðir vinir,“ bætir Siggi við léttur í lundu. Grímur Hákonarson er leikstjóri og höfundur myndarinnar. „Myndin gengur í raun út á samband bónd- ans við sauðkindina og það er ekki mikið talað í myndinni þar sem bræðurnir tala ekki saman,“ segir Grímur. „Það kemur upp ákveð- ið vandamál í sveitinni og mynd- in fjallar um viðbrögð bræðranna við þessu ástandi. Þessi saga gæti höfðað til fólks, þetta er mjög gott handrit og ég hlakka mikið til þess að takast á við verkefnið,“ bætir Siggi við. Hann segir það mjög mikilvægt að kynnast dýrunum í sveitinni vel áður en tökur hefjast. „Dýrin leika stórt hlutverk og það þarf að kynnast þeim. Ég er búinn að vera að klappa þeim og kynnast undan- farna daga og við erum orðin vinir. Ég kann vel við hrútinn þó hann hafi stangað mig aðeins fyrst,“ segir Siggi, sem er mikill dýravinur. Framleiðandinn, Grímar Jónsson hjá Netop Films, segir að undirbún- ingur gangi mjög vel og það sé frá- bær andi í Bárðardal. Eins og fyrr segir hefjast tökur á mánudag og standa þær yfir þangað til í byrjun september og verður þá gert smáhlé á tökum. „Tökur hefjast svo aftur í nóvember því myndin gerist einnig að vetri til og við verðum að hafa snjó,“ bætir Grímur við. gunnarleo@frettabladid.is Nýtur sín í sveitinni Sigurður Sigurjónsson leikur eitt aðalhlutverkanna í nýrri íslenskri kvikmynd Prince Avalanche er 83% fersk samkvæmt Rotten Tomatoes. Það fyrsta sem ég sagði þegar ég fann fjósa- lyktina í sveitinni var „I love it“ eins og ég hef nokkrum sinnum sagt áður þegar ég finn þessa æðislegu lykt SÆLL Í SVEITINNI Sigurður Sigurjónsson hefur nýtt undanfarna daga til þess að kynnast hrútunum. MYND/STURLA BRANDTH GROVLEN Aðrir leikara í kvikmyndinni eru Charlotte Böving, Pétur Einarsson, Gunnar Jónsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sigríður Hafstað, Viktor Már Bjarnason, Ingrid Jóns- dóttir, Jörundur Ragnarsson, Þor- leifur Einarsson, Þorsteinn Gunnar Bjarnason, Ásgrímur Guðnason, Jónas Sen, Ólafur Ólafsson og Jenný Lára Arnórsdóttir. ➜ Aðrir leikarar í kvikmyndinni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.