Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 56
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
31 árs Mila Kunis leikkona
Þekkt fyrir: Black Swan, Ted og
Forgetting Sarah Marshall.
Sá orðrómur hefur sprottið upp í
Hollywood að hin unga
leikkona Léa Seydoux
komi til með að leika í
næstu mynd um starfs-
mann leyniþjónustu
hennar hátignar, James
Bond. Myndin verður
jafnframt hin 24. um
Bond en talað er um
að Seydoux muni
fara með hlutverk
svokallaðrar Bond-
stúlku. Tökur á
myndinni hefjast
í nóvember.
Næsta Bond-
stúlka fundin Í þriðju myndinni um hóp
hinna fórnanlegu, Expendables,
standa Barney og Christmas
andspænis Conrad Stonebanks,
en hann átti hlut í að
setja hópinn á laggirnar
mörgum árum áður. Í
kjölfarið gerðist hann
óvæginn vopnasali
sem Barney neyddist
til að útrýma, eða
svo hélt hann. Barney
ákveður að það þurfi nýtt
blóð í bland við það gamla
til að berjast við Stonebanks
en myndin verður frumsýnd
annað kvöld í Smárabíói.
Harðjaxlar
um helgina
Leikarinn Vin Diesel sló í gegn
sem Groot í ofurhetjumyndinni
Guardians of the Galaxy en
hann ýjaði nýlega að því að
hann yrði með í nýrri mynd
ofurhetjurisans Marvel,
The Inhumans. Þetta gerði
hann með stöðuupp-
færslu á Facebook þar
sem hann skrifaði
„Vin og Marvel, þið öll
létuð það gerast. Mér
líður smá eins og
Marvel haldi að ég sé
Ómannlegur,“ en þar
vitnar í hann í nafn
nýju myndarinnar.
Vin Diesel verður
ofurhetja
BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS
John Turturro hefur vermt hjörtu
margra kvikmyndaáhugamanna
í gegnum tíðina með hjartnæm-
um myndum sem hann skrif-
ar, leikstýrir og leikur aðalhlut-
verkið í. Nýjasta mynd hans,
Fading Gigolo, er þar engin undan -
tekning.
Myndin skartar úrvalsleikur-
um á borð við John Turturro sjálf-
an, Woody Allen, Sharon Stone,
Vanessu Paradis, Sofíu Vergara og
Liev Schreiber en Turturro leikur
hér hinn lítilláta og tiltölulega hlé-
dræga blómasala Fioravante í New
York.
Dag einn kemur til hans góður
vinur, hinn síblanki Murray, og
segir honum að hann hafi hitt
konu sem sé tilbúin að greiða þús-
und Bandaríkjadali fyrir nótt með
manni sem er fær um að uppfylla
kynlífsdrauma hennar.
Murray, sem bráðvantar pen-
inginn, ákveður að biðja Fiora-
vante um að taka að sér verkefnið,
fullviss um að hann valdi því auð-
veldlega. Sjálfur er blómasalinn þó
efins um að hann sé rétti maðurinn
til að sinna konunni en ákveður að
lokum að láta á það reyna, aðallega
samt til að hjálpa Murray að rétta
úr kútnum fjárhagslega.
Í ljós kemur að Fioravante
leynir á sér í rekkjubrögðunum
og reynist hinn fullkomni elsk-
hugi og opnar það um leið mögu-
leika Murrays á að næla sér í meiri
peninga og drífur hann til að afla
þeim félögum frekari viðskipta á
sama sviði.
Athæfið reynist tiltölulega auð-
velt og vindur fljótt upp á sig.
Málin byrja hins vegar að flækj-
ast þegar Fioravante verður ást-
fanginn af einum viðskiptavinin-
um, hinni einmana ekkju Avigal.
Rómantíska gamanmyndin
hefur þegar fengið misjafna dóma
gagnrýnenda en hún verður frum-
sýnd í Sambíóunum 29. ágúst.
Selur bæði blóm og sjálfan sig
Nýjasta mynd Johns Turturro er á leið í kvikmyndahús á Íslandi. Kvikmyndin fj allar um blómasalann Fioravante í New
York sem er plataður út í vændi af síblönkum vini sínum, Murray, til þess að koma honum úr fj árhagsvandræðum.
EFINS ELSKHUGI Blómasalinn þurfti að hugsa sig um áður en hann tók ákvörðunina um að selja líkama sinn.
Upp kom ansi leiðinlegt mál á tökustað
nýjustu myndar Woodys Allen í
Rhode Island en þar mætti mað-
ur í annarlegu ástandi og fór
að kasta húsgögnum og ráðast
á öryggisverði. Maðurinn var
tæklaður af lögregluþjónum
þegar hann reyndi að flýja
vettvang en hann hefur
núna verið handtekinn.
Vitni á staðnum segja
að maðurinn hafi mætt
á tökustað og farið
að spyrja öryggisverði
skrítinna spurninga um
leikara myndarinnar og
þegar þeir svöruðu honum
ekki fór hann að láta illa.
Lét illa á tökustað
Tökur á nýjustu mynd leikarans Brad-
leys Cooper, Adam Jones, hafa valdið
umferðaröngþveiti í London. Leikstjóri
myndarinnar er John Wells en íbúar
London hafa verið að pirra sig á um-
fangi tökuliðsins. „Fólk sem vinnur í
nágrenni við tökustaðinn hefur kvartað
yfir því að framleiðendur hafa bannað
umferð á ákveðnum götum. Margir
hafa misst stjórn á skapi sínu þar sem
þetta getur orsakað að fólk mæti seint
í vinnu,“ segir heimildarmaður The
Daily Mirror.
Myndin verður frumsýnd 2015.
Veldur öngþveiti
Tökur hefjast aftur á Star Wars,
Episode VII í lok mánaðarins en tökur
voru stöðvaðar í júní þegar aðal-
leikarinn, Harrison Ford ,fótbrotnaði á
tökustað. Ford, sem ætlar að stökkva
aftur í hlutverk Hans Solo í nýju
myndinni, er á góðum batavegi og
getur núna gengið án hjálpar.
Leikstjórinn J.J. Abrams er æstur í að
halda tökum áfram til að komast hjá
því að fresta fyrirhuguðum frumsýn-
ingardegi sem er 18. desember 2015.
Auk Fords leika þau Mark Hamill, Carr-
ie Fisher, Oscar Isaac, Lupita Nyong’o
og Christina Chong í myndinni.
Í tökur á ný
MÆTTUR AFTUR Harrison Ford er á
batavegi eftir fótbrot. NORDICPHOTOS/GETTY
Í LONDON Bradley Cooper er nú í
London við tökur. NORDICPHOTOS/GETTY
6,3/10
58%
54%