Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 67
FIMMTUDAGUR 14. ágúst 2014 | SPORT | 47 Ber er hver að baki … nema sér bakpoka eigi Úrval skólabakpoka frá Under Armour, Adidas og Nike Komdu og kíktu á úrvalið Á R N A S Y N IR GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is ELIAQUIM MANGALA ➜ Kom frá Porto BACARY SAGNA ➜ Kom frá Arsenal FERN ANDO ➜ Kom frá Porto WILLY CA BALLERO ➜ Kom frá Málaga FRANK LAMPARD ➜ Kom frá NYCFC YAYA TOURÉ Þessi ótrúlegi miðjumaður frá Fílabeinsströndinni átti hreint út sagt magnað tímabil í fyrra og verður fróðlegt að sjá hvernig honum tekst upp í ár. Hann hefur verið lykilleikmaður Manchester City í bæði skiptin sem félagið hefur unnið ensku úrvalsdeildina og mun eflaust mikið mæða á honum í sóknarleik liðsins í ár. Toure blómstraði við hlið Fernandinhos á síðasta tímabili og gæti koma landa hans, Fernandos, aukið mikilvægi Toure í sóknar- leik liðsins þar sem honum líður best. Það vakti mikla athygli þegar Toure fór í fýlu fyrr í sumar og vildi fara frá félaginu en hann virðist hafa litið framhjá því og er tilbúinn að leiða lið City á nýju tímabili. Fréttablaðið hefur að undanförnu birt spá sína fyrir ensku úrvalsdeildina í fótbolta og nú er komið að liðinu sem lendir í öðru sæti. Þrátt fyrir að hafa tapað illa fyrir Arsenal í Sam- félagsskildinum á dögunum skyldi enginn afskrifa lærisveina Manuels Pellegrini í ár. Það mun mikið mæða á hryggjarsúlu liðsins, þeim Joe Hart, Vicent Kompany, Yaya Toure og Sergio Agüero. Ef þessir menn haldast heilir og spila á pari skyldi enginn útiloka Manchester City í baráttunni um enska meistaratitilinn í þriðja sinn á fjórum árum. Þá verður fróðlegt að fylgjast með framgöngu Stevans Jovetic en Svartfellingurinn hefur slegið í gegn á undirbúningstímabilinu. Þá verður gaman að fylgjast með miðverðinum Mangala í vetur en City hefur verið á höttunum eftir honum í langan tíma. Í öðru sætinu í deildinni verður Man. City ENSKA ÚRVALS- DEILDIN HEFST EFTIR 3 DAGA SPÁ FRÉTTABLAÐSINS Englandsmeistari ??? 2. Man. City 3. Arsenal 4. Man. United 5. Liverpool 6. Everton 7. Tottenham 8. Stoke 9. Swansea 10. Newcastle 11.Southampton 12. Aston Villa 13. C. Palace 14. Sunderland 15. West Ham 16. Hull 17. QPR Þessi lið falla 18. WBA 19. Leicester 20. Burnley Stjörnuleikmaðurinn Finna má meira um Ensku úrvalsdeildina á Vísi visir.is NÝJU ANDLITIN FRJÁLSAR Hlaupadrottningin Aníta Hinriksdóttir keppir í undanúrslitum í 800 metra hlaupi kvenna í dag. Aníta tekur þessa dagana þátt í Evrópumótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í Zürich. Aníta komst naumlega í undanúrslitin í gær er hún kom í mark á 2:02,12 mínútum. Í heildina var Aníta með tíunda besta tímann af öllum í gær en þetta var besti tími Anítu í ár. Aníta byrjaði hlaupið vel og var í forystu eftir fyrri hringinn í gær sem hún hljóp á 1:00,71 mínútu. Hún hélt forskotinu allt til loka þegar fjórar konur tóku fram úr henni á lokasprettinum. Áætlað er að undanúrslitin hefjist klukkan 16.38 í dag en ásamt Anítu keppir Hafdís Sig- urðardóttir í riðlakeppninni í 200 metra hlaupi og Guðmundur Sverrisson í undankeppni spjót- kastsins í dag. - kpt Aníta skrefi frá úrslitunum EINBEITT Aníta náði sínum besta tíma á árinu á EM í Zürich. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY KÖRFUBOLTI Körfuknattleiksdeild Keflavíkur samdi við Banda- ríkjamanninn Titus Rubles í gær um að leika með liðinu á kom- andi tímabili í Dominos-deild- inni í körfubolta. Rubles er öfl- ugur framherji sem kemur úr hinum sterka Cincinnati-háskóla í Bandaríkjunum en hann er upp- haflega frá Dallas í Texas. Rubles er 204 sentímetrar á hæð og er framherji að upplagi. Í háskólaboltanum í fyrra var hann með að meðaltali 7,4 stig, 6,8 fráköst og 2 stoðsendingar í leik ásamt því að verja 0,8 skot að meðaltali í leik. - kpt Frá Dallas til Kefl avíkur NÝLIÐI Rubles leikur með Keflavík á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.