Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 42
KYNNING − AUGLÝSINGSkólablaðið FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 201412 MEÐ LÍN Í SÍMANUM Margir námsmenn fá lán frá Lánasjóði íslenskra námsmanna, LÍN, á skólaárunum. Þeir treysta á þessa peninga til að framfleyta sér og sínum og því mikilvægt fyrir þá að vera með allt á hreinu í þessu samhengi. Til að auðvelda námsmönnum að fylgjast með öllu sem viðkemur lánamálunum geta þeir fengið sér nýtt app í símann frá Lánasjóðnum. Með LÍN-appinu geta náms- menn fylgst með skilaboðum frá LÍN og stöðu námslána. Appið móttekur almenn skilaboð til námsmanna frá LÍN, lætur vita ef eitthvað stoppar afgreiðslu hjá LÍN og birtir lánsáætlanir. Appið virkar í Android-tækjum með stýrikerfi 2.2 og nýrra, iPhone með útgáfu iOS 5.0 og upp úr og Windows 8 mobile. Námsmenn geta nú fylgst með sínum málum hjá LÍN í gegnum app. LÉTTAR OG GÓÐAR FYRIR BAKIÐ Tinna Pétursdóttir, eigandi netverslunarinnar Liggalá sem selur ýmiss konar vörur fyrir börn, leitast við að bjóða vörur sem ekki fást hér á landi. Nýlega fékk hún skólatöskur frá Bixbee en þær hafa ekki verið fáanlegar hérlendis fyrr. „Töskurnar eru framleiddar í tveimur stærðum. Sú minni hentar börnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í skóla. Sú stærri er fyrir börn sem þurfa meira pláss. Töskurnar eru hannaðar með það í huga að þær reyni ekki of mikið á bakið á börnum. Þær eru vel bólstraðar í bakið og mjög léttar,“ segir Tinna. „Eins má geta þess að fyrir hverja tösku sem keypt er gefur framleið- andinn einn bakpoka til þróunar- landa. Ég er mjög ánægð með að hafa fundið fyrirtæki sem framleiðir töskur á góðu verði og gefur með,“ segir Tinna og bendir áhugasömum á www.liggala.is. ÍÞRÓTTAFÉLAG STÚDENTA Íþróttafélag stúdenta, skammstafað ÍS, skipar sérstakan sess í háskóla- og íþróttasögu landsins. Félagið var stofnað árið 1928 af hópi nemenda við Háskóla Íslands og er eina há- skólalið landsins sem hefur sent lið til leiks á Íslandsmótum nokkurra íþróttagreina. Félagið var til dæmis um margra ára skeið með sterka meistaraflokka í blaki og körfuknattleik. Um miðja síðustu öld ræddu skólayfirvöld þá hugmynd að auka vægi íþrótta við skólann og að hann myndi jafnvel hlúa að afreksíþróttamönnum líkt og gert hefur verið lengi í banda- rískum háskólum. Í kjölfarið voru meðal annars unnar teikningar að glæsilegu íþróttahúsi með innbyggðri sundlaug en þær hugmyndir urðu þó aldrei að veruleika. Bæði karla- og kvennalið ÍS í blaki unnu hvort um sig 20 Íslands- og bikarmeistaratitla á árunum 1970-2002, þar af vann karlaliðið tíu Íslandsmeistaratitla og kvennaliðið átta titla. Körfuknattleikslið kvenna hjá ÍS var lengi meðal bestu liða landsins og urðu konurnar meðal annars þrisvar sinnum Íslandsmeistarar, síðast árið 1991. Karlalið ÍS varð bikarmeistari árið 1978 og Íslandsmeistaratitil hlaut það árið 1959. Karlalið ÍS lék lengst af í 1. deild en undir lokin var það oft stutt frá því að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni. Skóla- og frístundasvið FRÍSTUNDAHEIMILI GRUNNSKÓLAR LEIKSKÓLAR VILTU MÓTA FRAMTÍÐINA MEÐ OKKUR? SKÓLA- OG FRÍSTUNDASVIÐ REYKJAVÍKURBORGAR óskar eftir fólki til starfa við fjölbreytt störf með börnum og unglingum. Undir sviðið heyrir meðal annars rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar. Hlutverk skóla- og frístundasviðs er að veita börnum og ungmennum í Reykjavík bestu mögulegu tækifæri til leiks, menntunar og frístundastarfs í samvinnu við fjölskyldur og nærsamfélagið. Í boði eru bæði heilsdagsstörf og hlutastörf. Nánari upplýsingar á www.reykjavik.is/storf Við leitum að fólki á öllum aldri af báðum kynjum, með margs konar menntun og reynslu. MYND/GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.