Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 2

Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 2
6. september 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | Ég svo sannarlega vona að þeir sýni mér þá miskunn að reka mig. Reynir Traustason, ritstjóri DV. 2 FRÉTTIR FIMM Í FRÉTTUM SIGURSÆLL RITHÖFUNDUR OG ÓSÁTTUR BORGARFULLTRÚIGLEÐIFRÉTTIN VIKAN 29.8.➜5.9.2014 Drífa Snædal, framkvæmda- stjóri Starfsgreinasambands ins, segir að kvörtunum hafi fj ölgað vegna vangoldinna launa í ferðaþjónustu í sumar. Suma segir hún vangreiða laun af vankunnáttu en aðra af ásetningi. Sigurjón Jónsson, varabæjarfulltrúi í Kópavogi, var í fyrstu til í að mæta með maka á tónleika Justins Timberlake. Miðar voru hins vegar eingöngu í boði fyrir aðalfulltrúa. Sigurjón hefur gagnrýnt bæjarstjórn Kópavogs opinberlega og fór fram á að leiguverð Kórsins til Senu væri opinberað. ➜ Halldór Auðar Svansson, borgar- fulltrúi Pírata, hefur heitið að greiða 100 þúsund krónur til góðgerðarmála í hverjum mánuði næstu 12 mánuði ef höfundur Stak- steina í Morgun- blaðinu gefur sig fram og greiðir sömu upphæð mánaðarlega. Inga Hlín Pálsdóttir hjá Íslands- stofu vill ekki að fj ölmiðlar fl ytji hræðsluáróður af eldgosinu. Mikil- vægt sé að fæla ekki ferðamenn frá landinu. Hún bendir á að „Ísland hefði ekki þetta fallega landslag og náttúru nema af því að við erum á eldgosaeyju“. Andri Snær fékk Vest- norrænu barna- og ung- lingaverðlaunin fyrir bók sína Tímakistuna. Hann er fyrsti rithöf- undurinn til að hreppa verðlaunin í tvígang. VITA er lífið VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 Verð frá 149.900 kr.* og 12.500 Vildarpunktar ÍS LE N SK A SI A .I S V IT 7 04 75 0 9/ 20 14 Ný ferð hjá VITA í vetur Kanarí og Brighton 26. nóv. til 7. des. á mann m.v. 2 í íbúð m/1 svefnh. á Kanarí og tvíbýli með morgunverð í Brighton. *Verð án Vildarpunkta 159.900 kr. Sjá nánar á vita.is Slakaðu á í sólinni og kláraðu jóla- innkaupin Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is SUNNUDAGUR Hraungos hófst Hraungos hófst í Holuhrauni á sama stað og gaus tveimur dögum áður en var margfalt stærra. Sprungan var um einn og hálfur kílómetri að lengd. Hægt var að fylgjast með gosinu í beinni útsendingu í gegnum vefmyndavél Mílu á Bárðarbungu. Margir líktu gosinu við Kröfluelda. MÁNUDAGUR Ein og hálf milljón safnast Í tilkynn- ingu frá MND-félaginu á Íslandi sagði að rúmlega ein og hálf milljón hefði safnast vegna ísfötuáskorunar- innar hér á landi. Áskorunin gengur út á að taka upp myndband af sér að hella yfir sig fötu af ísköldu vatni og í leiðinni styrkja MND-samtök eða rannsóknir. ÞRIÐJUDAGUR Sjálfstæðisflokkur stærstur Skoðanakönnun Fréttablaðsins sýndi að Sjálfstæðis- flokkurinn mælist stærstur með 31 prósents fylgi. Sam- fylkingin er næststærsti flokkurinn með 20 prósent. Björt framtíð kemur þar á eftir með 14,1 prósent. Framsóknarflokkurinn og Vinstri hreyfingin– grænt framboð eru bæði með tæplega tólf prósenta fylgi. MIÐVIKUDAGUR Hraunið stækkar óðum Hraunið sem hefur runnið í eldgosinu í Holuhrauni var orðið rúmlega 6 ferkílómetrar að stærð, samkvæmt upp- lýsingum frá starfsmönnum Háskóla Íslands á svæðinu. Þetta jafngildir 868 knattspyrnuvöllum í fullri stærð. FIMMTUDAGUR Engin úrræði í ofbeldismálum Fréttablaðið greindi frá því að engin samræmd stefna væri til um hvernig eigi að bregðast við ofbeldismálum hér á landi. Engin samræmd tölfræði er jafnframt til um fjölda ofbeldisverka. FÖSTUDAGUR Álag vegna leiðréttingar Álag á starfsfólk Ríkisskattstjóra vegna skuldaleiðréttingar- innar hefur verið margfalt meira en búist var við. Vinna þarf úr 69 þúsund umsóknum. Ríkisskattstjóri segir verkefnið flókið og mikið en stofnunin hefur getað tekist á við aukið álag. LAUGARDAGUR „Ég var þarna nokkrar nætur eftir að ég tók við forstjóra- starfinu til að setja mig inn í málefni Orkuveitunnar í ró og næði.“ SÍÐA 12. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar. VELFERÐARMÁL Sjálfsvígstíðni á Íslandi er með því hærra í heiminum eða 15 á hverja hundrað þúsund íbúa árið 2012. Alls frömdu 49 sjálfsvíg á Íslandi þetta ár, 12 konur og 37 karlar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðismála- stofnuninni (WHO). Í skýrslunni eru lönd flokkuð eftir sjálfsvígstíðni og í all- flestum vestrænum ríkjum er tíðnin tíu eða færri sjálfsvíg á hverja hundrað þúsund íbúa. Ísland er aftur á móti ofarlega í flokknum með 10-15 á hverja hundrað þúsund íbúa ásamt Finn- landi, Írlandi, Frakklandi og Noregi. Sjálfsvígstíðnin hefur þó lækkað töluvert á Íslandi frá árinu 2000, en árin 1999 og 2000 varð mikil sjálfsvígsbylgja á land- inu og sérstaklega á meðal ungra karlmanna. Flestir þeirra sem frömdu sjálfsvíg á Íslandi árið 2012 voru á aldrinum 30 til 49 ára og næststærsti hópurinn var á aldrinum 50 til 69 ára. Aftur á móti eru sjálfsvíg talin vera önnur helsta dánarorsök ungs fólks á aldrinum 15-29 ára. Árið 2012 frömdu 0,8 prósent ungmenna á aldrinum 15-29 ára sjálfsvíg á Íslandi. Í skýrslunni kemur fram að um 804 þúsund sjálfsvíg hafi verið skráð í heiminum árið 2012, en að öllum líkindum séu þau fleiri vegna vanskráningar, og talið er að fyrir hvern einstak- ling sem fellur fyrir eigin hendi geri tuttugu aðrir tilraun til slíks. - ebg Skýrsla Alþjóðaheilbrigðisstofnunar sýnir að 49 Íslendingar fyrirfóru sér 2012: Há tíðni sjálfsvíga hér á landi Jón fær friðarverðlaun Yoko Ono tilkynnti að Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, væri einn fjögurra sem hljóta Lennon Ono-friðarverðlaunin árið 2014. Afhending fer fram í Reykjavík þann 9. október næstkomandi. Í tilkynningu á Facebook-síðu Ono segir að Jón hafi sýnt fram á að stjórnmál séu í þágu fólks og í höndum þess. Jón hlýtur verðlaunin ásamt Jann Wenner, einum stofnanda og útgefanda tímaritsins Rolling Stone, Jeremy Gilley, upphafsmanni Peace One Day-samtakanna, og þeim Doreen Remen og Yvonne Force Villareal, stofnenda Art Production-sjóðsins. DAUÐSFALL Sjálfsvíg eru önnur helsta dánar- orsök fólks á aldrinum 15-29 ára í heiminum. NORDICPHOTOS/GETTY FJÖLMIÐLAR Ný stjórn var kjörin á hlut- hafafundi útgáfufélags DV sem lauk á tíunda tímanum í gærkvöldi. Þorsteinn Guðnason var kjörinn stjórnarfor maður. Með honum í stjórn sitja Lilja Skafta- dóttir, Jón Þorsteinn Gunnarsson, Ólafur Magnússon og Björgvin Þorsteinsson. Þeir stjórnarmenn sem Fréttablaðið ræddi við í gær segja að ekki sé búið að taka ákvörðun um ráðningu nýs ritstjóra. Fundurinn í gær var framhald fundar sem hófst á föstudaginn í síðustu viku en var frestað um viku vegna deilna um árs- reikning félagsins. Deilt var um fjölmörg efnisatriði á fundinum sem hófst klukkan fimm. Umboð fundarmanna sem á fundinum sátu voru grandskoðuð til að ganga úr skugga um að einungis eigendur hlutafjár í DV sætu fundinn. Reynir Traustason rit- stjóri sagði eftir fundinn við Fréttablaðið að það væri léttir að komin væri niður- staða í málið. „Ég svo sannarlega vona að þeir sýni mér þá miskunn að reka mig,“ sagði Reynir. Hann segir að ný stjórn hafi verið kjörin með mjög naumum meiri- hluta, einungis einu prósenti. Blaðamenn á DV eru uggandi yfir niður- stöðunni. „Við höfum áhyggjur því að við vitum ekki hvaða aðilar eru að taka blaðið yfir eða af hverju. Þeir tala um að þeir ætli ekki að hafa áhrif á ritstjórnarstefn- una en Björn Leifsson var í þessum hópi og hann hefur gefið út að hann hafi keypt hluti í félaginu með það að markmiði að skipta ritstjóranum út,“ segir Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, aðstoðarritstjóri blaðsins. Reynir hefur notið mikils stuðnings starfsmanna á blaðinu og starfsmenn DV sem Fréttablaðið ræddi við segja óvissuna erfiða. Þeir vilja hins vegar ekki gefa upp hvort þeir hyggist segja upp störfum hætti Reynir sem ritstjóri. „Reynir hefur reynst okkur vel,“ segir Jóhann Páll Jóhannesson, blaðamaður á DV, og bætir við að „það er svo sannar- lega ekki á færi hvers sem er að rit- stýra blaðinu jafn vel og hann hefur gert.“ Jón Bjarki Magnússon, sem einnig er blaðamaður á DV, segir óvissu um framtíð blaðsins vera óþægilega. „Vikan er búin að vera erfið eins og gefur að skilja. Það er svolítið furðulegt að bíða bara og sjá hvað gerist.“ ingvar@frettabladid.is Hallarbylting var gerð á hluthafafundi DV í gær Ný stjórn útgáfufélags DV var kjörin með naumum meirihluta á hluthafafundi sem lauk á tíunda tímanum í gærkvöldi. Reynir Traustason ritstjóri vonast til þess að hann verði rekinn, en engar ákvarðanir hafa verið teknar um ritstjóraskipti. Starfsmenn blaðsins eru uggandi. HLUTHAFAFUNDUR DV Reynir Traustason, ritstjóri DV, heilsar Sigurði G. Guð- jónssyni, lögmanni Björns Leifssonar í World Class. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.