Fréttablaðið - 06.09.2014, Síða 6
6. september 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
KJARAMÁL „Íslenska námslána-
kerfið þarfnast heildstæðrar
endurskoðunar. Nú er svo komið
að námsskuldir fylgja fólki
inn í ellina.“ Þetta segir Guð-
laug Kristjánsdóttir, formaður
BHM, Bandalags háskólamanna,
um niður stöður kjarakönnunar
bandalagsins sem gerð var í vor.
Svör úr könnuninni benda til
að 22 prósent svarenda verði enn
að greiða af námslánum þegar
eftir launaaldri er náð. Konur eru
lengur að greiða af námslánum en
karlar en endurgreiðslur náms-
lána eru tekjutengdar. Rúmlega
helmingi svarenda með náms-
lán finnst endurgreiðsla þeirra
íþyngjandi eða verulega íþyngj-
andi.
„Laun háskólamenntaðra eru
of lág til að vega upp kostnað við
öflun þekkingar eins og staðan
er núna. Við getum ekki unað við
það,“ segir Guðlaug.
Meirihluti svarenda kjara-
könnunarinnar er með meistara-
eða doktorsgráðu. Á árinu 2013
voru launatekjur og starfstengd-
ar greiðslur félagsmanna BHM
að meðaltali 548 þúsund krónur á
mánuði og hækkuðu þær að nafn-
virði um 4,2 prósent milli ára.
Guðlaug bendir á að á sama tíma
hafi launavísitalan hækkað um 5,7
prósent sem þýði að launahækk-
anir á íslenskum vinnumarkaði
hafi verið umfram þær hækkanir
sem félagsmenn BHM fengu. „Það
er áhyggjuefni að hópur sem að
meirihlutanum til er með meist-
aragráðu eða lengra nám fylgir
ekki almennri launaþróun í landi
sem þarf að reiða sig á eflingu
þekkingargeirans til að tryggja
hagvöxt.“
Formaðurinn fagnar því að leið-
réttur kynbundinn launamunur
dregst saman en hann minnkaði
um rúm þrjú prósentustig milli
2013 og 2012. „Við hljótum að
fagna jákvæðri þróun hvað varðar
kynbundinn launamun. Þetta er
skref í rétta átt þótt við vildum
að sjálfsögðu sjá muninn minnka
hraðar.“
Minnstur var launamunurinn
hjá starfsfólki félagasamtaka og
sjálfseignarstofnana, eða 12 pró-
sent, en mestur hjá sveitarfé-
lögum utan Reykjavíkur þar sem
hann er 22 prósent. Hjá Reykjavík
var munurinn 13 prósent í fyrra
miðað við 24 prósent 2012. Munur-
inn á launum kvenna og karla hjá
ríkinu var 15 prósent en 16 pró-
sent 2012. ibs@frettabladid.is
Námsskuldir fylgja
fólki inn í ellina
Rúmlega helmingi þátttakenda í kjarakönnun BHM með námslán finnst endur-
greiðsla þeirra íþyngjandi eða verulega íþyngjandi. Guðlaug Kristjánsdóttir, for-
maður BHM, segir námslánakerfið þarfnast heildstæðrar endurskoðunar.
172
816
663
663
298,7%
41,1%
33,4%
15,3%
1,5%
Ég finn lítið eða ekkert fyrir greiðslubyrði náms-
lánanna í útgjöldum.
Ég finn nokkuð fyrir greiðslubyrði námslán-
anna í útgjöldum.
Ég finn mikið fyrir greiðslubyrði námslán-
anna í útgjöldum.
Greiðslubyrði námslán-anna er verulega íþyngj-
andi í útgjöldum.
Ég ræð ekki við greiðslur af námslánunum mínum.
GREIÐSLUBYRÐI NÁMSLÁNA
Heimild: BHM
FORMAÐURINN
„Laun háskóla-
menntaðra eru of
lág til að vega upp
kostnað við öflun
þekkingar eins og
staðan er núna.
Við getum ekki
unað við það,“
segir Guðlaug
Kristjánsdóttir, for-
maður BHM.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VERSLUN „Við erum búin að fjár-
festa í nýju húsnæði og vonumst til
að geta opnað þar í byrjun desem-
ber,“ segir Ari Guðmundsson, eig-
andi og framkvæmdastjóri Fannar.
Öll starfsemi fatahreinsun-
arinnar, skrifstofur og þvottahús,
verður flutt í 1.700 fermetra hús-
næði að Kletthálsi 13. Þvottahús
fyrirtækisins hefur verið ónothæft
síðan stórbruninn varð í Skeifunni
í byrjun júlí síðastliðins.
„Nýja húsnæðið er aðeins minna
en það sem við vorum með í Skeif-
unni en það var um tvö þúsund fer-
metrar,“ segir Ari.
Hann segir aðstoð góðra manna
hafa gert fyrirtækinu kleift að
halda rekstrinum gangandi eftir
brunann.
„Það er með ólíkindum. Við
höfum fengið hjálp góðra aðila
eins og Þvottahúss ríkisspítalanna
og svo erum við búin að safna
að okkur þvottavélum héðan og
þaðan. Við erum á þremur stöðum
í bænum að reyna að vinna þetta
með hjálp góðra manna.“ - hg
Fatahreinsunin Fönn flytur í nýtt húsnæði að Kletthálsi í byrjun desember:
Úr brunarústunum í Árbæinn
NÝJA HÚSNÆÐIÐ Fönn hefur verið í
Skeifunni síðan 1982. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SLYS Einar Ásgeir Sæmundsson,
fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á
Þingvöllum, býst við því að merk-
ingar verði bættar í kjölfar þess
að hann kom að banda rískum
dreng í sjálfheldu í Flosagjá.
Drengur hafði stokkið nakinn út
í jökulkalt vatnið eftir hvatningu
frá fjölskyldu sinni.
„Hann fékk strax algert kulda-
sjokk og synti beint að kletta-
veggnum og prílaði úr vatninu og
var í sjokki og sjálfheldu á lítilli
syllu,“ segir Einar. Betur fór þó en
á horfðist og náði drengurinn að
klifra af sjálfsdáðum upp kletta-
vegginn og komast upp úr gjánni.
Einar segir að í kjölfar atviksins
muni þurfa að vara betur við sundi
í Flosagjá og Peningagjá sem er
næsta gjá austan við Flosagjá.
„Það á að fara að laga aðstöð-
una vestan við Flosagjá þar sem
gengið er yfir. Þar á að setja
niður skilti og það er alveg ljóst
að við munum minnast á það að
gjáin er ekki ætluð til sunds,“
segir Einar. - ih, ktd
Ungur piltur komst í hættu þegar hann hoppaði nakinn í gjá á Þingvöllum:
Munu vara við sundi í Flosagjá
Í HÆTTU Drengurinn var í sjálfheldu á
lítilli syllu eftir sund í gjánni.
MYND/EINAR ÁSGEIR SÆMUNDSSON
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
11. september
í 11 nætur
Verð fyrir flug og gistingu á Okaliptus
kr. 99.500 með hálfu fæði
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í herbergi.
Verð fyrir flug og gistingu á Risa hotel
kr.109.900 með allt innifalið
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í herbergi.
Tyrkland
44.950
Flugsæti frá kr.
Síðastu sætin í síðustu ferðina til Tyrklands
Flugsæti 11.-22. september
kr. 44.950 – 2 fyrir 1 tilboð
Almennt verð kr. 89.900
Ennþá laus pláss á námskeið fyrir
þá sem vilja losna við nikótínfíkn.
Skráning í síma 780 7911 eða valliskag@gmail.com
Valgeir Skagfjörð heldur námskeið
í Húsinu v/Staðarberg í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 28. janúar kl 17.00.
Allir geta hætt að reykja og það þarf ekki að vera erfitt. Valgeir er brautryðjandi í jákvæðri nálgun
á því að hætta að reykja. ( Ásgeir Rúnar Helgason, dósent í sálfræði )
þ i 16. september nk. kl. 17.00
HEF FLUTT MIG UM SET
Býð alla gamla og nýja viðskiptavini
velkomna
Gerður Sævarsdóttir hársnyrtimeistari
GREIÐAN
Háaleitisbraut 58-60
sími 5813090 / 8621323
HÁRNÝ
hársnyrtistofa
Nýbýlavegi 28, 200 Kópavogur
sími: 554 6422
Sigríður D. Benediktsdóttir Sóley D. Davíðsdóttir
• Átt þú erfitt með að einbeita þér?
• Ertu gleyminn og utan við þig?
• Eru áhyggjur að plaga þig?
• Átt þú erfitt með að halda utan um allt
sem þú þarft að gera?
• Gætir þú gert svo miklu betur?
Á þessu námskeiði lærir fólk aðferðir til að
einfalda lífið, bæta einbeitingu, draga úr
frestun, óskipulagi og öðrum afleiðingum
athyglisbrests. Jafnframt lærir fólk leiðir
til að bæta líðan sína með aðferðum hug-
rænnar atferlismeðferðar. Stjórnendur
námskeiðs eru Sigríður D. Benediktsdóttir
og Sóley D. Davíðsdóttir sálfræðingar.
TÖK Á TILVERUNNI
- námskeið við athyglisbresti
Námskeiðið hefst
18. september og verður á
fimmtudögum frá 15-17, alls
7 skipti. Skráning fer fram á
kms@kms.is og nánari upp-
lýsingar á www.kms.is.