Fréttablaðið - 06.09.2014, Síða 8
6. september 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
RÉTTUR TIL VERNDAR,
VIRKNI OG VELFERÐAR
BARNAVERNDARÞING 2014
Hilton Reykjavík Nordica 25. og 26. september.
Dagskrá:
25. september
09:00 Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra setur þingið.
Aðalfyrirlesarar:
Trond Waage, sérfræðingur um réttindi barna og fyrrum
Umboðsmaður barna í Noregi.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu
og formaður Lanzarote nefndar Evrópuráðsins.
12:45 Sameiginleg málstofa.
Eru reglur um málsmeðferð mikilvægar?
14:45 Samhliða málstofur.
Kynferðislegt ofbeldi - forvarnir og verklag.
Það skiptir máli að byrja snemma.
Hvernig innleiðum við PMTO með árangursríkum hætti?
26. september
09:00 Aðalfyrirlesari:
Bernadette Christensen sálfræðingur og fagstjóri
við Atferdssenteret í Noregi.
10:30 Samhliða málstofur.
Meðferð hegðunar- og vímuefnavanda.
Heimilisofbeldi – barnvæn nálgun, verklag og framtíðarsýn.
Undirbúningur og framkvæmd fósturs.
13:00 Aðalfyrirlesari:
Henrik Andershed, prófessor í sálfræði og dósent í afbrotafræði
við Háskólann í Örebro í Svíþjóð.
14:30 Samhliða málstofur.
Hlutverk og samvinna í greiningu og meðferð.
Meðferð í kjölfar áfalla og ofbeldis.
16:00 Ráðstefnuslit.
Nánari upplýsingar og skráning á www.bvs.is.
Ráðstefnan er opin öllum.
HAVAÍ Neyðarástandi hefur verið
lýst yfir á Havaí vegna þess að
hraun úr eldfjallinu Kilaeuea nálg-
ast bæ í nágrenninu. Nú eru ein-
ungis 1,6 kílómetrar frá hrauninu
að þorpinu. Jarðvísindastofnunin á
Havaí telur að hraunið muni ná að
bænum Kaohe innan viku.
Kilaeuea hefur stanslaust gosið
frá árinu 1983, en þar opnaðist ný
sprunga þann 27. júní þaðan sem
hraunið rennur nú. Á vef breska
ríkisútvarpsins, BBC, kemur fram
að hraun úr þessu sama gosi hafi
gereyðilagt íbúabyggðir upp úr
1990. Viðbragðsaðilar hafa nú
fengið heimild til þess að tak-
marka umferð á nokkrum vegum
nálægt fjallinu til þess að auðvelda
rýmingu. - jhh
Neyðarástand ríkir á Havaí:
Eldfjall stefnir
byggð í hættu
HRAUN Talið er að hraunið nái að þorp-
inu á innan við viku. NORDICPHOTOS/AFP
DANMÖRK
Varð syni sínum að bana
Fjörutíu og sjö ára gamall danskur karl-
maður var dæmdur í tólf ára fangelsi
í Landsrétti í gær. Hann varð tvítugum
syni sínum að bana í bænum Bramm-
ing í desember 2012.
Réttarkrufning sýndi að sonurinn var
stunginn tvisvar í brjóstið. Faðirinn bar
við minnisleysi fyrir dómi.
Blóð var á höndum föðurins og blóð
undir nöglunum á höndum hans.
Algengast er að refsingin við mann-
drápi sé tólf ár í Danmörku.
BRETLAND Leiðtogar Atlantshafs-
bandalagsins samþykktu í gær að
stofna nokkur þúsund manna við-
bragðssveitir sem hafi höfuðstöðvar
í Austur-Evrópu. Þessar sveitir verði
hægt að senda með stuttum fyrirvara
til átakasvæða fari svo að eitthvert
aðildarríkjanna verði fyrir árás.
„Með þessu eru send skýr skilaboð
til allra sem gætu orðið líklegir til að
gera árás: Þótt þið gerið ekki annað
en að íhuga árás á eitt aðildarríkj-
anna, þá þurfið þið að fást við banda-
lagið allt,“ sagði Anders Fogh Rasm-
ussen, framkvæmdastjóri NATO, á
leiðtogafundinum í Wales í gær.
Þessi skilaboð eru ekki síst ætluð
Rússum, sem hafa leynt og ljóst
stutt uppreisnarmenn í austanverðri
Úkraínu í átökum sem kostað hafa
meira en 2.500 manns lífið.
Ekki hefur enn verið ákveðið hvar
höfuðstöðvar viðbragðshersins verða,
en Pólland, Rúmenía og Eystrasalts-
löndin þrjú hafa lýst yfir áhuga á að
hýsa þær.
Tveggja daga fundarhöldum NATO
í Wales lauk í gær, en ákveðið var að
næsti leiðtogafundur yrði haldinn í
Varsjá í Póllandi árið 2016. Sú stað-
setning er einnig hugsuð sem skýr
skilaboð til rússneskra stjórnvalda,
sem jafnan hafa kvartað hástöfum
undan nærveru NATO í nágranna-
ríkjum Rússlands.
Leiðtogarnir hvöttu einnig til þess
að framlög aðildarríkjanna til varnar-
mála yrðu tvö prósent af þjóðar-
framleiðslu. Einungis fjögur aðildar-
ríkjanna standa undir þeirri kröfu
nú, Bandaríkin, Bretland, Grikkland
og Eistland. Pólverjar lýstu því yfir
að þeir ætli sér að ná þessu markmiði
árið 2016. gudsteinn@frettabladid.is
Viðbragðsher til A-Evrópu
Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, segir að með ákvörðun leiðtogafundarins í gær séu
rússneskum stjórnvöldum send skýr skilaboð. Hugsanlegri árás á eitt ríkjanna verði svarað af fullri hörku.
Á fundum aðildarríkja NATO í gær skýrði Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra frá því að
íslensk stjórnvöld ætli að efla þátttöku sína og fram-
lög í þágu eigin varna og Atlantshafsbandalagsins.
Ætlunin er að fjölga borgaralegum sérfræðingum
í störfum bandalagsins og auka fjárframlög í ein-
stök verkefni þess, þar á meðal í Úkraínu. Einnig
munu stjórnvöld auka stuðning við loftrýmisgæslu
hér á landi, meðal annars við þyrlubjörgunar-
þjónustu.
➜ Þátttaka Íslands efld
Vopnahlé hófst í Úkraínu í gær eftir nærri fimm
mánaða löng átök stjórnarhersins við uppreisnar-
menn í austanverðu landinu.
Petró Porosjenkó forseti undirritaði sam-
komulag um vopnahlé í Minsk í Hvíta-Rússlandi
ásamt leiðtogum uppreisnarmanna, sem hafa haft
stuðning Rússa. Fulltrúar Rússlands undirrituðu
einnig samkomulagið, og það gerði einnig fulltrúi
Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu sem haft
hefur milligöngu um viðræðurnar í Hvíta-Rússlandi.
➜ Vopnahlé hafið í Úkraínu
HORFT TIL HIMINS Leiðtogar NATO-ríkjanna fylgjast með herþotum fljúga yfir. NORDICPHOTOS/AFP