Fréttablaðið - 06.09.2014, Page 10
6. september 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
SPRUNGA TVÖ OG ÞRJÚ Minni virkni er á nýju sprungunum tveimur en þeirri fyrstu sem hefur gosið í tæpa viku. Greinileg stigmögnun gossins, segja jarðvísindamenn. MYND/ÞÓRARINN JÓNSSON
NÁTTÚRA Nýju sprungurnar
tvær sem opnuðust í Holuhrauni
í fyrrinótt eru til vitnis um stig-
mögnun í eldgosinu í Holuhrauni.
Gos undir jökli er talið líklegra
nú en áður, en ný sigdæld sést nú
á yfirborði Dyngjujökuls.
„Á nýju sprungunum er miklu
minni virkni en á þeirri eldri,
en þar heldur gosið áfram á full-
um krafti. Þótt sprungurnar séu
minni, og frá þeim komi minna
hraun, þá er þetta greinileg aukn-
ing,“ sagði Magnús Tumi Guð-
mundsson, prófessor í jarðeðlis-
fræði, þegar Fréttablaðið náði
tali af honum í eftirlitsflugi síðla
dags í gær. Hann sagði jafnframt
að við þessu hefði mátt búast,
enda ein af þeim sviðsmyndum
sem hafa verið settar upp.
Jarðvísindamenn hafa auk þess
greint merki um aukna bráðnun
undir Dyngjujökli sem sést á
nýrri sigdæld til viðbótar við sig-
katlana fyrir suðaustan Gríms-
vötn. Magnús Tumi segir hana
hvorki stóra né djúpa.
Nýju gossprung urnar tvær
eru suður af gosstöðinni í Holu-
hrauni, í sigdaln um um tvo kíló-
metra frá sporði Dyngju jökuls.
Í eftirlitsfluginu í gær voru
eng ar breyt ing ar greinanlegar á
Bárðar bungu.
Þóra Árnadóttir, jarðeðlis-
fræðingur hjá Jarðvísindastofn-
un, var í hópi vísindamannanna
sem skoðuðu nýju sprungurnar
úr lofti stuttu eftir að gos byrjaði
á þeim. Við samanburð á mynd-
um sem teknar voru með þriggja
klukkustunda millibili virtist
sem gosvirkni á syðsta hluta nýju
sprungunnar hefði þá minnkað,
en gosvirknin var á þeim tíma
mun meiri á sprungunni sem opn-
aðist 31. ágúst en þeim nýju, og
ekk ert bend ir til þess að gosið sé
í rén un almennt séð.
Mælingar á umbrota svæðinu
sýndu mikla gliðnun eftir að
Holuhraunsgosið hófst að nýju
31. ágúst og dagana á eftir sáust
merki um áframhaldandi gliðn-
un á mælistöðvum norðan Vatna-
jökuls. Þessar mælingar bentu
því til þess að meiri kvika væri að
koma inn í ganginn en fór upp á
yfirborð í gosinu. Nú hefur hægt
mjög á færslum á flestum GPS-
stöðvum á þessu svæði, sem bend-
ir til að ekki bætist við meiri kvika
í ganginn en það sem kemur upp
á yfirborð. Jarðvísindamenn telja
þó of snemmt að segja til um hvort
það fer að draga úr gosi á næst-
unni, og ekki hægt að útiloka að
eldgos verði annars staðar á þessu
sprungusvæði. svavar@frettabladid.is
Stigmögnun
í eldgosinu
Nú gýs á þremur sprungum í Holuhrauni norðan
Dyngjujökuls. Tvær nýjar sprungur sem opnuðust í
fyrrinótt eru til marks um stigmögnun í eldsumbrot-
unum. Nýr sigketill hefur sést á yfirborði Dyngjujökuls.
Þótt
sprungurnar
séu minni, og
frá þeim
komi minna
hraun, þá er
þetta greini-
leg aukning.
Magnús Tumi Guðmundsson,
prófessor í jarðeðlisfræði.
● Skjálfta hrin an fjari út og ekki
komi til ann ars eld goss.
● Gang ur inn nái til yf ir borðs á
fleiri stöðum utan jök uls.
● Gang ur inn nái til yf ir borðs
und ir jökli, sem myndi leiða til
jök ul hlaups í Jök ulsá á Fjöll um
og e.t.v. einnig sprengigoss með
ösku falli.
● Eldgos í Bárðarbungu sem
gæti leitt til jök ul hlaups og e.t.v.
einnig sprengigoss með ösku falli.
Líkleg framvinda
Samfélagsstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Umsóknarfrestur vegna samfélagsstyrkja er til og með mánu-
deginum 6. október 2014. Rafrænar umsóknir og nánari
upplýsingar á landsbankinn.is.
Landsbankinn veitir 20 milljónum króna í samfélagsstyrki
árið 2014 sem úthlutað er í tvennu lagi. Samfélagsstyrkjum
er ætlað að styðja við verkefni á ýmsum sviðum, þar á
meðal í mannúðarmálum, menningu og listum, menntun,
rannsóknum og vísindum, einnig forvarna- og æskulýðs-
starfi og sértækri útgáfustarfsemi.
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til verðugra
verkefna. Árlega eru ferns konar styrkir veittir: Námsstyrkir, nýsköpunarstyrkir,
samfélagsstyrkir og umhverfisstyrkir en afreksstyrkir eru veittir annað hvert ár.
Verkefni sem einkum koma
til greina:
Verkefni mannúðarsamtaka
og góðgerðarfélaga.
Verkefni á sviði menningar
og lista.
Menntamál, rannsóknir
og vísindi.
Forvarna- og æskulýðsstarf.
Sértæk útgáfustarfsemi.
Á hvoru úthlutunartímabili
verða veittir eirtaldir styrkir:
Fimm styrkir að upphæð
1.000.000 krónur hver.
Fimm styrkir að upphæð
500.000 krónur hver.
Tíu styrkir að upphæð
250.000 krónur hver.