Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 12
6. september 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
FJÁRMÁL Bjarni Bjarnason, forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur, segist ekki
vita hver noti sumarhús við Þing-
vallavatn sem upplýsingafulltrúi
fyrirtækisins segir forstjórann
hafa ráðstöfunarrétt yfir.
Bjarni neitar því að hafa ráð-
stöfunarrétt yfir bústaðnum og
kveðst ekki fylgjast með notkun
á honum. „Ritarinn minn er með
lykilinn. Sennilegast eru þetta
framkvæmdastjórar hjá fyrirtæk-
inu sem hafa notað húsið,“ segir
Bjarni sem sjálfur kveðst ekki
hafa notað bústaðinn í yfir tvö ár.
„Ég var þarna nokkrar nætur
eftir að ég tók við forstjórastarfinu
til að setja mig inn í málefni Orku-
veitunnar í ró og næði,“ segir Bjarni
sem varð forstjóri á árinu 2011.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu ákvað stjórn Orku-
veitunnar á árinu 2012 að selja
lóðir sem einstaklingar hafa leigt
undir sumarhús við Þingvallavatn
í landi Nesjavalla allt frá því fyrir-
tækið eignaðist jörðina fyrir hálfri
öld. Um er að ræða níu sumarhús.
Eigendur sex þeirra höfðu lóðar-
leigusamninga til 50 ára og eig-
endur þriggja bústaða eru með
leigusamninga til 99 ára.
Bjarni segir enn unnið að því
að ná samkomulagi við eigendur
bústaðanna. Allt eins geti farið
svo að lóðarleigan verði fram-
lengd um einhvern tiltekinn tíma
að uppfylltum skilyrðum. Mikil-
vægt sé fyrir Orkuveituna að hafa
full umráð yfir landinu, meðal ann-
ars vegna þess að þar sé vatnstöku-
svæði fyrir Nesjavallavirkjun.
Að sögn Bjarna munu örlög
sumar bústaðar Orkuveitunnar
meðal annars ráðast af því hver
verður niðurstaða með hin sumar-
húsin. „Reyndar er þessi svokall-
aði forstjórabústaður á viðkvæm-
asta staðnum þannig að mér finnst
nú líklegt að hann verði fyrstur til
að fara.“
Eigendur hinna sumarhúsanna
hafa sameinast í málinu og fer
einn þeirra, Tómas Þorvaldsson
héraðsdómslögmaður, fyrir hópn-
um. Ekki hefur náðst tal af Tómasi
undanfarna daga. Annar eigandi
sem rætt var við kvaðst ekki skilja
hvaða sjónarmið lægju að baki hjá
Orkuveitunni. „Ég get ekki séð að
við séum fyrir nokkrum manni,“
sagði þessi eigandi sem ekk-
ert vildi láta hafa eftir sér undir
nafni. gar@frettabladid.is
Segir ritarann með lykilinn
Forstjóri Orkuveitunnar segir hugsanlegt að lóðaleigusamningar sumarhúsa á Nesjavöllum verði endur nýjaðir.
Hann kveðst sjálfur ekki hafa notað forstjórabústaðinn við Þingvallavatn í tvö ár og ekki vita hverjir noti hann.
BÚSTAÐUR ORKUVEITUNNAR Forstjórinn segist ekki ráða yfir sumarhúsi OR við Þingvallavatn. Íveruhúsið er til vinstri og bátaskýlið til hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ég var
þarna
nokkrar
nætur eftir að
ég tók við
forstjóra-
starfinu.
Bjarni Bjarnason,
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
MENNTUN Einungis 45 prósent
þeirra sem hefja nám í fram-
haldsskóla á Íslandi ná að ljúka
námi á fjórum árum. Miðað er
við nemendur sem innrituðust í
skóla haustið 2004 og hver staða
þeirra er fjórum, sex og sjö árum
síðar. Í frétt Hagstofunnar kemur
fram að haustið 2004 hófu 4.830
nemar nám í dagskóla á fram-
haldsskólastigi á Íslandi. Fjórum
árum síðar, árið 2008, höfðu 45
prósent nýnemanna verið braut-
skráðir úr námi á framhalds-
skólastigi sem var að minnsta
kosti tvö ár að lengd. Þá höfðu
tæp 28 prósent nýnemanna hætt
námi eða tekið sér tímabundið hlé
og sama hlutfall var enn í námi
án þess að hafa brautskráðst. - jhh
Innan við helmingur klárar:
Fjórðungur
hættir námi
FJÖLBRAUT Í ÁRMÚLA Um 45 prósent
ljúka námi á fjórum árum eða minna sam-
kvæmt nýjum tölum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL
Fíkniefni í Hafnarfirði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði
hald á um 350 grömm af marijúana,
tæplega hundrað e-töflur og lítilræði
af amfetamíni við húsleit í þremur fjöl-
býlishúsum og einni bifreið í Hafnar-
firði á fimmtudag. Fjórir karlmenn á
þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir
í tengslum við þessar húsleitir.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
0
4
6