Fréttablaðið - 06.09.2014, Qupperneq 18
Á SÖNG-
KONUNA
SIU og
lagið Chandelier
sem hefur
farið sigurför í
heiminn.
SÆNSKU
SPENNU-
SÖGUNA
Síðasta hlekk-
inn eftir hinn
sænska rit-
höfund Fredrik
Olson sem hefur
verið efst á
vinsældalistum.
Á WAYNE ROONEY og
félaga hans í Manchester
United taka á móti QPR í
beinni á STÖÐ 2 Sport á morgun
klukkan 14.50.
HÁVAR SIGURJÓNSSON fæddur 1958.
Er stúdent frá MS 1978 og lauk BA-
prófi í leikhúsfræðum frá Leiklistardeild
University of Manchester. MA-gráðu
frá University of Leeds, auk framhalds-
náms í leikstjórn við BBC í London. Var
leikstjóri og leiklistarráðunautur við
Þjóðleikhúsið árin 1992-97 og leikstýrði
þar sýningum á eigin leikgerð eftir
skáldsögunni Ég heiti Ísbjörg, ég er ljón,
Gaukshreiðrinu og Taktu lagið Lóa svo
eitthvað sé nefnt. Hefur skrifað fjölda
leikrita fyrir leiksvið, útvarp og sjónvarp
og hefur Þjóðleikhúsið frumflutt þrjú
leikrita hans. Hávar hefur verið mikil-
virkur í félagsmálum leikhúsfólks, var
formaður Félags leikskálda og handrits-
höfunda í tíu ár, formaður Leiklistarráðs
og sat í stjórn Félags leikstjóra á Íslandi
um árabil. Hann hefur kennt leiklistar-
sögu og leikritun við Háskóla Íslands og
Listaháskóla Íslands auk þess að halda
fyrirlestra um íslenska leiklist við erlenda
háskóla og menningarstofnanir.
HELGIN
6. september 2014 LAUGARDAGUR6. september 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
Á STUÐMANNATÓN-
LEIKANA í Hörpu í kvöld sem
byggjast á hinni goðsagna-
kenndu hljómplötu TÍVOLÍ. Tvennir
tónleikar, kl. 19.30 og 22.30 og fyrir
þá allra hörðustu er Stuðmannaball
í Silfurbergi fram á nótt eftir tón-
leikana.
Gunnlaugur Jónsson, knatt-
spyrnuþjálfari ÍA
Kærkomið frí
„Þessa helgina á ég kærkomið frí
frá boltanum og ég mun reyna að
gera eitthvað skemmtilegt með
börnunum, ég var reyndar búinn
að lofa að hjálpa með málun í
Kaffihúsi Vesturbæjar.“
Ragnheiður Eiríksdóttir
hjúkrunarfræðingur
Safl át og gæðastund
„Á laugardaginn ætla ég að sofa
út eftir snilldarmatarboð sem
ég held á föstudagskvöldinu.
Svo stendur til að taka á móti
nokkrum konum heima hjá mér
til að ræða saflát.“
Logi Gunnarsson, landsliðsmaður í körfubolta
Ljósanótt með fj ölskyldunni
„Það er nóg að gera hérna í Reykjanesbæ, allt að ger-
ast á Ljósanótt. Ég fer væntanlega í bæinn með fjöl-
skylduna og skoða mannlífið. Maður verður á ferðinni
eitthvað fram á kvöld og horfir svo á flugeldasýninguna.
Svo held ég að ég slappi bara af á sunnudaginn.
Edda Hermannsdóttir,
aðstoðarritstjóri Við-
skiptablaðsins
Hreyfi ng og kökuát
„Ég er að kenna morguntíma í
World Class í dag og svo verða
bakaðar ljúffengar bollakökur.
Hápunkturinn er svo að fara í
afmæli og fá gesti í heimsókn.“
Þau sækja um stöðu
ÞJÓÐLEIKHÚSSTJÓRA
MELKORKA TEKLA ÓLAFSDÓTTIR
fædd 5. janúar 1970. Lauk BA-prófi í
íslensku og almennri bókmenntafræði,
með áherslu á leikbókmenntir frá
Háskóla Íslands. Lauk meistaraprófi í
leikhúsfræði frá Université de la Sor-
bonne Nouvelle í París en áður hafði
hún lokið licence-prófi í leikhúsfræði
frá sama skóla. Hefur leikstýrt sýning-
um í Þjóðleikhúsinu, hjá sjálfstæðum
leikhópum og í Útvarpsleikhúsinu.
Meðal leikstjórnar-verkefna hennar
eru Abel Snorko býr einn, Vinnukon-
urnar, Vígaguðinn og fleiri. Hefur verið
leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins frá
árinu 1997, sem aðstoðarmanneskja og
listrænn ráðu-nautur tveggja Þjóðleik-
hússtjóra. Hefur veitt listamönnum
hússins list ræna og fræðilega ráðgjöf,
og miðlað fróðleik um leikhús, meðal
annars með skrifum í leikskrá og stjórn
umræðna um leikhús. Áður var hún
leiklistar ráðunautur hjá RÚV.
HALLDÓR E. LAXNESS Fæddur 18.
september 1959. Lærði látbragðsleik
og leiklist á Ítalíu. Fluttist heim og
var aðstoðarleikhússtjóri Þjóðleik-
hússins um tíma. Nam nútímaóperu-
leikstjórn í Dance Center for the Arts
í Kanada og starfaði þar um tíma.
Þaðan fluttist hann til Los Angeles
þar sem hann tók Master of Fine Art
í kvikmyndaleikstjórn. Hefur síðan
þá leikstýrt hjá Leikfélagi Akureyrar,
Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu.
Síðustu ár hefur hann verið leik-
stjóri í lausamennsku víða um heim.
Síðustu verk hans eru meðal annars
uppsetning Íslensku óperunnar Il
Trovatore og verk nemendaleik-
hússins, Jarðskjálftar í London.
TRAUSTI ÓLAFSSON Fæddur 15. júní
1949. Doktor í leiklistarfræðum frá
University of East Anglia í Bretlandi.
Stundaði nám í leikstjórn við sviðslista-
háskólann í Prag og gegndi embætti
leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar í þrjú
ár. Hefur kennt leiklist bæði hér heima og
við háskóla í Bandaríkjunum og Bretlandi,
þar sem hann hefur einnig starfað við
leikstjórn. Hefur frá árinu 2004 kennt leik-
listarfræði og leikbókmenntir við Háskóla
Íslands. Trausti hefur starfað töluvert með
jaðarhópum og sett upp leiksýningar á
vegum Hlutverkaseturs. Meðal rita hans
eru Leikhús nútímans sem kom út hjá
Háskólaútgáfunni á sl. ári og Ibsen’s
Theatre of Ritualistic Visions, en leiksýning
byggð á þeirri bók var sviðsett í Denver í
Colorado árið 2012 í leikstjórn Trausta og
Lauru Cuetara. Hann vinnur nú að leik-
gerð Keisara og Galilea eftir Henrik Ibsen
ásamt ástralska leikstjóranum Peter King,
áformað er að sýna verkið á leiklistarhá-
tíðinni í Melbourne á næsta ári.
HILMAR JÓNSSON
Fæddur 13. maí
1964. Lærði leiklist
í Leiklistarskóla
Íslands. Hilmar er
einn stofnenda
Hafnarfjarðarleik-
hússins og sá um
rekstur þess í þó
nokkur ár, ásamt
því að leikstýra sýningum þar. Nú síðast
leikstýrði hann uppsetningu Borgarleik-
hússins á Furðulegu háttalagi hunds
um nótt. Hann hefur leikið í þekktum
íslenskum kvikmyndum á borð við
Blóðbönd og Kaldaljós, ásamt því að
hafa unnið með Vesturporti. Hilmar á
að baki fjölda leiksýninga hjá Borgar-
leikhúsinu, Þjóðleikhúsinu, Nemenda-
leikhúsinu og á Norðurlöndunum.
RÚNAR GUÐBRANDSSON Fæddur 24.
maí 1956. Nam leiklist í Danmörku
og á Englandi. Hlaut margvíslega
þjálfun í leiktækni erlendis. Rúnar
hefur lokið MA- og MPhil-gráðum í
leikstjórn og leiklistarfræðum. Sem
leikstjóri á hann að baki fimmtíu
sýningar. Frá árinu 1992 hefur hann
rekið leikhúsið Lab Loka sem sett
hefur upp fjölda sýninga sem hafa
verið tilnefndar til Grímuverðlauna.
Starfaði sem prófessor við Listahá-
skóla Íslands, kenndi þar leiklist og
var stundakennari við Kvikmynda-
skóla Íslands. Hann hefur m.a. átt
sæti í Þjóðleikhúsráði og Listráði
Þjóðleikhússins. Í dag situr hann
meðal annars í stjórn Félags leik-
stjóra á Íslandi og Act Alone-leik-
listarhátíðarinnar.
MARTA NORDAL ,
Fædd 12. mars
1970. Stúdent frá
Mennta skólanum
í Reykjavík, lærði
leiklist hjá Bristol
Old Vic Theatre
School. Lauk
MBA-námi frá
Háskólanum í
Reykjavík 2014. Hefur leikið hjá Leik-
félagi Akureyrar, Borgarleikhúsinu og
Þjóðleikhúsinu, verið í fjölda leikhópa
og útvarpsleikrita. Stofnandi leikhópsins
Aldrei Óstelandi ásamt Eddu Björgu
Eyjólfsdóttur sem hefur meðal annars
sett upp leikritin Fjalla-Eyvind og Lúkas.
Er að setja upp sýninguna Ofsa eftir
Einar Kárason í Þjóðleikhúsinu í vetur
í leikstjórn Brynhildar Guðjónsdóttur.
Situr í stjórn Íslenska dansflokksins og í
stjórn Leikfélags Reykjavíkur.
ARI MATTHÍASSON Fæddur 15. apríl
1964. Lærði leiklist í Leiklistarskóla
Íslands. Stundaði nám í íslensku og bók-
menntum við Háskóla Íslands, en lauk
ekki prófi. Með MBA-gráðu í stjórnun
og viðskiptafræði og mastersgráðu í
hagfræði. Hefur leikið í fjörutíu sýning-
um í leikhúsi og fimmtán bíómyndum,
nú síðast stórmyndinni The Secret Life
of Walter Mitty. Ari hefur leikstýrt bæði
hér heima og í Noregi. Var fram-
kvæmdastjóri SÁÁ og hefur starfað við
gerð markaðsáætlana og stefnumótana
í markaðsmálum hjá fjölda fyrirtækja.
Síðan 2010 hefur Ari starfað sem
framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins.
RAGNHEIÐUR SKÚLADÓTTIR Fædd
7. júlí 1966. BA-gráða í leiklist frá
University of Iowa, Iowa City og
MFA-gráða í leiklist frá University of
Minnesota, Minneapolis. Bjó í Banda-
ríkjunum í 13 ár, síðustu fjögur árin
í New York. Var fyrsti deildarforseti
leiklistardeildar Listaháskóla Íslands
(2000-2011) sem undir hennar stjórn
varð leiklistar- og dansdeild. Stofnaði
þar brautina Fræði og framkvæmd og
samtímadansbraut ásamt sínu starfs-
fólki. Stofnaði ásamt öðru góðu fólki
alþjóðlegu leiklistarhátíðina LÓKAL
sem nýverið var haldin í sjöunda
sinn. Er leikhússtjóri Leikfélags
Akureyrar til 31. desember (2012-
2014). Var í stjórn Leiklistarsam-
bands Íslands og formaður NORTEAS,
samtaka norrænna sviðslistaskóla.
Hefur komið að sköpun fjölmargra
sviðsverka í nemendaleikhúsi, hjá
sjálfstæðum leikhópum og sem leik-
hússtjóri.
REYNIR FREYR
REYNISSON
fæddur 16. ágúst
1979. Menntaður
leikstjóri. vann
meðal annars að
myndinni Me and
Bobby Fischer.