Fréttablaðið - 06.09.2014, Page 20
6. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Þrátt fyrir að standa í ströngu þessa dag-ana eru þau Hafsteinn Gunnar og Val gerður ímynd rósemdar og afslappelsis þegar ég
hitti þau á kaffihúsi í miðbænum
daginn eftir forsýningu á París
norðursins. Hún fær sér te og
hann espresso og við setjumst í
rólegasta horn staðarins þar sem
skvaldur annarra gesta og surgið
í kaffivélinni truflar minnst. Ég
byrja á að spyrja þau hvað þau
hafi þekkst lengi.
Valgerður verður fyrir svörum.
„Við höfum þekkst frá því að við
vorum fjögurra ára því mömmur
okkar unnu saman. Síðan vorum
við saman í bekk í Melaskóla og
vissum alltaf hvort af öðru en
vorum samt aldrei nánir vinir,
bara kunningjar.“
Fyrir sex árum hittust þau svo
á bar í Reykjavík, „eins og flest
önnur pör bæjarins“ eins og Haf-
steinn orðar það, og hafa verið
saman síðan. Starfa sinna vegna
hafa þau þó verið langdvölum
aðskilin en hafa nú fest kaup á
íbúð í Vesturbænum og eiga von
á frumburðinum, lítilli prinsessu,
eftir sex vikur. Valgerður lætur
það þó ekki stoppa sig í dansinum
og dansar þessa dagana á sviði
Borgarleikhússins í dansverkinu
Reið, eftir Steinunni Ketilsdóttur
og Sveinbjörgu Þórhallsdóttur,
eins og ekkert sé. „Við dönsum
þar báðar,“ segir hún og strýkur
kúluna.
Lá á að verða dansari
Sumarið hefur verið ansi anna-
samt hjá þeim, mikil vinna hefur
farið í að standsetja nýju íbúðina,
legja lokahönd á París norðursins
og æfa fyrir frumsýningu á Reið.
Nú sjá þau fram á rólegri tíma.
Hafsteinn: „Nú getum við snúið
okkur að því að fara að pæla í því
sem tengist barninu. Ég er ákveð-
inn í því að taka mér frí og fylgja
ekki París norðursins á kvik-
myndahátíðir erlendis. Handrits-
höfundur og leikarar munu sjá
um það. Ég ætla að vera til staðar
þegar dóttir mín kemur í heiminn
og fyrst á eftir. Vera bara pabbi í
fullu starfi um stund.“
Bæði hafa þau Hafsteinn og
Valgerður verið á miklum ferða-
lögum undanfarin ár og segja
hlæjandi að þau séu eiginlega
fyrst núna að kynnast sem sam-
býlisfólk. Valgerður starfaði í
Belgíu þegar þau kynntust þar
sem hún dansaði í dansflokki
hins fræga danshöfundar Sidi
Larbi Cherkaoui. Reyndar hefur
hún verið meira og minna erlendis
frá unglingsaldri. „Ég fór í dans-
nám til Noregs eftir einn bekk
í Kvennó, mér lá svo mikið á að
fara að vinna sem dansari og á
þeim tíma var ekkert framhalds-
nám í dansi hér heima. Ég byrjaði
í ballett þegar ég var mjög ung og
man bara ekki eftir mér öðruvísi
en dansandi. Það kom aldrei neitt
annað til greina. Síðustu árin hef
ég svo verið mikið að túra með
Larbi og það hefur verið dýrmæt
reynsla og frábær tími, en nú er
ég komin heim – í bili allavega.“
Af hjólabrettinu í kvikmyndirnar
Hafsteinn lauk námi í MR og fór
síðan í almenna bókmenntafræði í
HÍ þar sem á þeim tíma var engin
kvikmyndafræði kennd hérlendis.
„Eftir BA-próf í bókmennta-
fræðinni fór ég svo í mastersnám
í kvikmyndagerð í Columbia-
háskólanum í New York. Ég hafði
lengi verið að gera stuttmyndir
og heimildarmyndir sem áhuga-
maður og hafði stefnt á kvik-
myndagerðina. Ég var mikið á
hjólabretti sem unglingur og þá
vorum við oft að gera hjólabretta-
myndir á VHS og klippa saman
á tveimur vídeótækjum. Þegar
ég var kominn í menntaskólann
fór ég svo í kvikmyndaklúbb og
uppgötvaði kvikmyndalistina og
heillaðist af öllum þeim mögu-
leikum sem miðillinn hefur upp á
að bjóða.“
Ég hegg eftir því að bæði tala
þau eins og þau hafi verið ung-
lingar á nánast forsögulegum
tíma þótt þau séu ekki nema 35
ára. Þau hlæja og samþykkja það
en það hafi bara svo margt breyst
á þessum stutta tíma.
Hafsteinn segist ekki hafa haft
áhuga á því að reyna að hasla sér
völl í Bandaríkjunum, þrátt fyrir
að námið hafi auðvitað komið
honum í ýmis tengsl inn í þann
geira. „Það heillaði mig ekki að
reyna að fara þar inn strax eftir
nám. Þá hefði ég bara verið í því
að sækja kaffi fyrir einhvern leik-
stjóra fyrstu tíu árin. Það á líka
eftir að gera svo margt í íslenskri
kvikmyndagerð og mig langar
til að vera hluti af því og taka
þátt í að þróa hana áfram. Ein-
hvern tíma langar mig að gera
myndir á ensku, en það er allt
önnur staða að koma þar inn með
nokkrar myndir í far teskinu.
Stærsta frumsýningin fram undan
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvikmyndaleikstjóri og Valgerður Rúnarsdóttir, dansari og danshöfundur, eru önnum
kafið fólk. Hafsteinn frumsýndi París norðursins í gærkvöldi og Valgerður sýndi tvö frumsamin dansverk á árinu og dansar
nú í því þriðja í Borgarleikhúsinu. Nú bíður þeirra hins vegar nýtt verkefni því eftir sex vikur fæðist þeim dóttir.
Fyrsta myndin mín í fullri lengd,
Á annan veg, var endurgerð í
Bandaríkjunum og það telur
strax. Svo er bara að halda áfram
að byggja upp ferilinn.“
Greiddi lækninum með lakkrís
Fljótlega eftir að Hafsteinn hóf
námið glímdi hann við tvo alvar-
lega sjúkdóma í einu. „Ég fékk
sjálfsofnæmissjúkdóminn lúpus
upp úr tvítugu og að fá einn
sjálfsofnæmissjúkdóm getur oft
leitt af sér fleiri. Smám saman
byrjaði ég að missa allan mátt í
vöðvum og þegar ég var ný fluttur
til New York kom í ljós að ég var
með myasthenia gravis sem á
íslensku heitir vöðvaslensfár.
Aukaverkun af þeim sjúkdómi
er ofvöxtur í hóstar kirtlinum og
þegar hann er fjarlægður hverfa
einkenni sjúkdómsins í helmingi
tilfella. Sú aðgerð hljómaði hins
vegar ekki vel því venjulega er
hún opin skurðaðgerð á brjóst-
kassanum, þannig að ég var ekk-
ert sérlega spenntur fyrir þeirri
hugmynd læknisins míns hér
heima. Góður vinur minn kom
mér í þá samband við íslenskan
lækni á besta sjúkrahúsi í New
York sem kom mér í samband við
lækni sem gerir brjóstholsskurð-
aðgerðir í gegnum skópíu, þannig
að ekki þarf að opna brjóstkass-
ann. Ég var mjög fljótur að jafna
mig eftir aðgerðina og í kjölfarið
kynntist ég einum fremsta sér-
fræðingi BNA í taugalækningum
sem vildi endilega hitta mig því
hann hafði aldrei hitt karlmann
undir þrítugu sem var með þessa
tvo sjúkdóma, það eru yfirleitt
bara konur. Sem segir mjög mikið
um í hversu miklum tengslum ég
er við konuna í mér. Ég var í með-
ferð hjá honum þangað til öll ein-
kenni voru horfin og ég hef ekki
fundið fyrir neinu síðan. Ég var
líka mjög heppinn því sem nem-
andi við Columbia hafði ég fulla
sjúkratryggingu og ég þurfti
ekki að borga krónu fyrir þess-
ar rándýru meðferðir. Reyndar
rann tryggingin út áður en ég
útskrifaðist og læknirinn gerði
mér það tilboð að ég myndi bara
borga honum í íslenskum lakkrís.
Þannig að ég fór til New York á
hálfs árs fresti með kíló af lakkrís
í töskunni sem var öll greiðslan
sem hann fékk fyrir að sinna
mér.“
Finnst gott að slaka á í eldhúsinu
Bæði Valgerður og Hafsteinn hafa
verið mjög upptekin í list sinni
undanfarin ár, Hafsteinn við að
vinna París norðursins og Val-
gerður samdi og sýndi tvö dans-
verk á síðasta leikári, Óróleika
í Þjóðleikhúsinu og Farangur
hjá Íslenska dansflokknum sem
hún hlaut Grímuverðlaunin sem
besti danshöfundur ársins fyrir
í sumar. Eiga þau engin önnur
áhugamál?
„Valgerður: „Í sumar hefur
allur frítími farið í að pússa gólf
og lista en við eigum alveg fullt af
öðrum áhugamálum.“
Hafsteinn: „Við höfum gaman
af því að ferðast, fara í útilegur,
elda mat og bjóða góðum vinum í
heimsókn.“
Valgerður: „Ég er svo heppin
að Haddi er flinkur að elda góðan
mat því mér finnst ekki eins
gaman að elda.“
Hafsteinn: „Ég hef hins vegar
voða gaman af mat og fæ líka
útrás fyrir sköpunargáfuna við
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/STEFÁN
Það verður örugglega
stærsta frumsýningin til
þessa. Og örugglega miklu
meiri vinna á bak við
hana en allt hitt, enda ekk-
ert hægt að æfa sig fyrir
hlutverkið, það verður
bara spunnið á staðnum.
Valgerður.
FRÁBÆR LEIKLISTARNÁMSKEIÐ
FYRIR BÖRN OG UNGLINGA AÐ HEFJAST!
SKÖPUNARKRAFTUR, SJÁLFSTRAUST OG GLEÐI!
LEYNILEIKHÚSIÐ
SKRÁNINGAR Á
WWW.LEYNILEIKHUSID.IS