Fréttablaðið - 06.09.2014, Page 21

Fréttablaðið - 06.09.2014, Page 21
LAUGARDAGUR 6. september 2014 | HELGIN | 21 Hann hafði aldrei hitt karlmann undir þrítugu sem var með þessa tvo sjúkdóma, það eru yfirleitt bara konur. Sem segir mjög mikið um í hversu miklum tengslum ég er við konuna í mér. Hafsteinn. eldamennskuna. Þetta er strúkt- úr og samsetning og tónar og bragð, eiginlega bara eins og að gera bíómynd.“ Valgerður: „Þér líður líka svo vel í eldhúsinu, slakar algjörlega á. Mér hins vegar finnst voða gott og gaman að borða góðan mat en er ekki hrifin af stússinu sem fylgir því að búa hann til. Við skiptum með okkur verkum.“ Hafsteinn (glottandi): „Þú ert til dæmis betri í að þrífa. En varðandi spurninguna þá getum við auðvitað ekkert neitað því að vinnan er aðaláhugamálið og áhugamálið vinnan þannig að skilin eru mjög óskýr.“ Tvær myndir á teikniborðinu Stundum tekst þeim meira að segja að sameina vinnu/áhuga- mál beggja eins og sést á því að Valgerður er skráð danshöfundur bæði í Á annan veg og París norð- ursins. Hvað þýðir það? Hafsteinn „Það var eitt dans- atriði í Á annan veg sem Vala samdi og í París norðursins er sundleikfimihópur frá Vestfjörðum sem hún sá um að kóreógrafera.“ Valgerður: „Þetta eru óskaplega hressar konur frá Bolungarvík, Ísafirði og Flateyri sem hittast einu sinni í viku í sundleikfimi. Það var ótrúlega gaman að vinna með þeim.“ Hér fá þau bæði glampa í augu og samtalið færist yfir á Flateyri þar sem París norðursins var tekin. Á annan veg var líka tekin á Vestfjörðum og þau eiga vart orð til að lýsa hrifningu sinni á fólk- inu og umhverfinu fyrir vestan, enda segjast þau fara þangað eins oft og þau geta. Hafsteinn undirstrikar þó að París norð- ursins gerist alls ekki á Flateyri frekar en í einhverju öðru þorpi á landsbyggðinni, sögusviðið sé bara óskilgreint þorp enda hafi sá heimur lengi heillað hann. „Ég hugsa samt að ég fari eitt- hvert annað í næstu mynd, hver sem hún verður. Ég er sjálfur að þróa handrit og er að vinna annað sem er mjög spennandi. Ég myndi helst vilja gera nýja mynd strax á næsta ári en eftir þessi skelfi- legu mistök ríkisstjórnarinnar að skera niður framlög til skap- andi greina þá er róðurinn aðeins þyngri. Það þýðir hins vegar ekk- ert annað en að halda dampi og koma verkefnunum áfram.“ Fimm stjörnu sýning Næsta mál á dagskrá er hins vegar auðvitað fæðing frum- burðarins og að takast á við nýtt hlutverk sem foreldrar. Hvernig leggst það í þau? „Það verður örugglega stærsta frumsýningin til þessa,“ segir Valgerður hlæj- andi. „Og örugglega miklu meiri vinna á bak við hana en allt hitt, enda ekkert hægt að æfa sig fyrir hlutverkið, það verður bara spunnið á staðnum.“ Hafsteinn: „En kannski á bak- grunnurinn úr kvikmyndagerð- inni eftir að koma sér vel, þar sem maður þarf að vera fljótur að hugsa og taka á málum eins skjótt og þau koma upp. “ Valgerður: „Annars erum við mjög spennt að takast á við þessi nýju hlutverk. Svo eigum við líka bæði stórar og hjálpsamar fjöl- skyldur þannig að það er nóg af fólki til að létta undir með okkur. En þetta verður alveg pottþétt fimm stjörnu sýning.“ ÚR PARÍS NORÐURSINS ÚR GRÍMUVERÐLAUNAVERKI VALGERÐAR, FARANGRI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.