Fréttablaðið - 06.09.2014, Qupperneq 24
6. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Þetta eru öfgamenn. En það hefur nákvæmlega ekk-ert með trúarbrögð að gera,“ segir Madsjíd Nili, sendiherra Írans á Íslandi. „Það sem þarf að gera er
að spyrja hvaðan þeir fá fjármagnið
og vopnin.“
Nili var staddur hér á landi í
lok síðustu viku. Hann ræddi við
Gunnar Braga Sveinsson utanríkis-
ráðherra og nokkra embættismenn
um að styrkja samstarf Írana og
Íslendinga á ýmsum sviðum.
Hann tók á móti blaðamanni í
anddyri Grand Hotel í Reykjavík.
Eins og Írana er siður lagði hann
sig fram um að sýna af sér gestrisni
og almennilegheit. Jafnvel þótt hann
væri staddur á hóteli í útlöndum kom
hann sér fyrir ásamt aðstoðarmanni
sínum í þægilegu sófahorni, dálítið
afsíðis frá mesta erli hótelheimsins,
og bauð bæði blaðamanni og ljós-
myndara upp á kaffisopa. Rétt eins
og hann væri heima hjá sér að taka
á móti gestum.
Sjálfur fékk hann sér te og byrj-
aði viðtalið á því að færa íslensku
þjóðinni kærar kveðjur frá írönsku
þjóðinni.
Veita hjálp ef um er beðið
Blaðamanni lék meðal annars for-
vitni á að vita hvað írönsk stjórnvöld
gætu hugsað sér að gera til þess að
aðstoða nágrannaríkið Írak í baráttu
þarlendra gegn vígasveitum her-
skárra íslamista, sem farið hafa þar
fram af mikilli grimmd.
Hann svaraði því til að ráðamenn í
Írak hefðu fulla getu til þess að ráða
við þennan erfiða vanda sem þeir
standa nú frammi fyrir.
„Þeir eiga að sinna sínu starfi.
Ef þeir þurfa hjálp þá erum við öll
reiðubúin til að veita hana. Sagan
sýnir hins vegar að hernaðar íhlutun
að utan getur ekki leyst vanda af
þessu tagi. Ef einhver ætlar að bjóða
upp á hjálp eingöngu á sínum eigin
forsendum, þá eru það mistök.“
Hann er að sjálfsögðu að vísa
þarna til hernaðarafskipta Banda-
ríkjanna og annarra Vesturlanda af
átökum í Mið-Austurlöndum, sem
oftar en ekki hafa magnað upp and-
stöðu og illdeilur í staðinn fyrir að
koma á varanlegum friði.
Hætta þarf stuðningi
„Stærsta vandamálið sem við
stöndum frammi fyrir í mínum
heimshluta eru öfgamenn. Öfga-
stefna er helsta ástæða styrjalda og
ofbeldis, og því miður vaxa hryðju-
verkamenn upp úr andrúmslofti
öfga og ofbeldis. Þetta er megin-
ástæða vandans,“ segir Nili.
„En þá þarf að spyrja hverjir
styðja hópa á borð við öfgafólkið í
Írak. Hvers vegna eru þeir svona
virkir núna og hvernig er hægt að
ná tökum á þeim?“
Hann segir nauðsynlegt að
spyrja hvaðan ofbeldis- og öfga-
hópar á borð við Íslamska ríkið fái
fjármagn og háþróuð vopn. „Þetta
er hópur sem var harla fábrotinn
til að byrja með en nú hafa þeir allt
sem þeir þurfa. Hver lét þá fá svona
mikið af peningum og svona mikið
af vopnum? Og þá komum við að
síðustu spurningunni: Hvernig er
hægt að ná tökum á þessu? Það er
með því einu að hætta fjárstuðn-
ingi við þá og hætta að útvega þeim
vopn.“
Þekkja ekki íslam
Sendiherrann segir öfgastefnu ekk-
ert snúast um trúarbrögð. Þar sé
eitthvað allt annað á ferðinni.
„Sjáðu bara það sem gerðist á
Balkanskaga. Þar voru öfgamenn
á ferðinni en það hafði ekkert með
trúarbrögð að gera. Og það sem
er að gerast í Ísrael. Þar eru öfga-
menn á ferðinni en það hefur ekk-
ert með gyðingdóm að gera. Og
það sem er að gerast í Írak og Sýr-
landi. Þar eru öfgamenn á ferðinni,
en það snýst ekkert um íslam. Það
snýst ekkert um trúarbrögð,“ segir
Nili sendiherra.
„En svo er auðvitað fólk sem mis-
notar trúarbrögðin. Liðsmenn Ísl-
amska ríkisins þekkja ekki íslam
heldur eru þeir að misnota íslam.
Við eigum ekki að leggja öfgastefnu
og trúarbrögð að jöfnu, því trúar-
brögðin hafa hemil á öfgastefnunni.
Öll trúarbrögðin, hvort sem það er
gyðingdómur, kristni eða íslam, eru
uppspretta friðar.“
Stirð samskipti
Á ýmsu hefur gengið í samskiptum
Írans og Vesturlanda, einkum þó
Bandaríkjanna, undanfarna ára-
tugi. Nú síðast var sambandið harla
stirt á valdatíð Mahmúds Ahmad-
ínedjads, sem var forseti á árunum
2005 til 2013. Ágreiningurinn sner-
ist þá einkum um kjarnorku áætlun
Írans en Ahmadínedjad virtist að
auki hreinlega hafa gaman af
því að atast í bandarískum ráða-
mönnum.
Nili segir íranska ráðamenn ekki
hafa neinn áhuga á að koma sér upp
kjarnorkuvopnum.
„Til þess liggja nokkrar ástæður.
Ein af þeim er trúarleg. Við viljum
ekki valda neinum tjóni. Önnur er
að kjarnorka gefur ekki raunveru-
leg völd. Ef svo væri þá væru Sov-
étríkin enn þá á landakortinu. En
hins vegar þurfum við kjarnorku
því innan skamms verður jarðefna-
eldsneyti uppurið. Næsta kynslóð
þarf kjarnorku.“
Breytt viðmót
Samskiptin við Vesturlönd breytt-
ust nokkuð snarlega eftir að Hass-
an Rúhaní tók við forsetaembætt-
inu fyrir rúmu ári, og hefur hann
reynst heldur hófsamari í mál-
flutningi. Samningaviðræður
fóru í gang um erfiðasta ágrein-
ingsmál ríkjanna, sem er kjarn-
orkuáætlun Írans. Jafnframt var
refsiaðgerðum að hluta létt af
Íran og loforð gefin um að aflétta
þeim með öllu þegar samningar
tækjust.
Nili stendur fast á því að refsi-
aðgerðir Vesturlanda hafi ekki
átt neinn hlut í því að Íranar tóku
annan pól í hæðina gagnvart
Bandaríkjunum.
„Það er reyndar spurning hvort
það varð einhver stefnubreyting
hjá okkur eftir að nýr forseti tók
við. Svarið er að eftir að Rúhaní var
kosinn forseti Írans þá fundum við
að hann naut virðingar á Vestur-
löndum. Áður var tónninn gagnvart
okkur allt annar. Það skiptust á hót-
anir og loforð um umbun. En þegar
viðmótið varð betra þá auðvitað
brugðumst við jákvætt við. Þetta
er meginástæðan. Refsiaðgerð irnar
höfðu þar ekkert að segja. Það hafa
verið ólögmætar refsiaðgerðir í
gildi í 35 ár. Það hafði engin áhrif
á okkur.“
Betra viðmót bætir samskiptin
Öfgafólk og hryðjuverkamenn eru stærsta vandamál Mið-Austurlanda. Það hefur þó ekkert með trúarbrögð að gera.
Þetta fullyrðir Madsjíd Nili, sendiherra Írans á Íslandi, sem var í stuttri heimsókn hér á landi undir lok síðustu viku.
MADSJÍD NILI Sendiherra Írans er með aðsetur í Ósló en var í heimsókn hér í lok síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ
FORSETINN Hassan Rúhaní Íransforseti tók þátt í fundi til stuðnings Palestínu-
mönnum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRÁ TEHERAN Sælgæti útdeilt til vegfarenda í tilefni þess að vopnahlé hófst á Gasa.
Höfuðborg
Teheran
Mannfjöldi
78 milljónir
Stjórnskipan
Íslamskt lýðveldi, sem er
flókin blanda klerkaveldis og
lýðræðis: Klerkaveldið setur
lýðræðinu skorður, en um leið
setur lýðræðið klerkaveldinu
vissar skorður.
Trúarbrögð
Íranar eru langflestir sjía-mús-
limar, en einnig er að finna
þar gyðinga, kristna menn og
fylgismenn saraþústratrúar.
Tungumál
Persneska, rituð með arabísku
letri, er það mál sem flestir
íbúanna tala. Einnig búa þar
Aserar, Kúrdar og fleiri minni-
hlutahópar sem tala eigin
tungumál.
Íran– helstu staðreyndir
FRÁ ÍRANSKA ÞINGINU Þingið setur lög, en
hefur ekki úrslitavald um þau. NORDICPHOTOS/AFP
Öfgastefna er helsta
ástæða styrjalda og
ofbeldis, og því miður
vaxa hryðjuverkamenn
upp úr andrúmslofti öfga
og ofbeldis.
© GRAPHIC NEWS
P e r s a fl ó i
Ó m a n h a f
Í R A N
TÚRKMENISTAN
AFGANISTAN
PA
KI
ST
AN
ÓMAN
SÁDI-ARABÍA
ÍRAK
TY
RK
LA
N
D
KÚVEIT
S.A.F.BAREIN
250km
Teheran
K a s p í a h a f
ÍRAN OG AÐLIGGJANDI LÖND
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is