Fréttablaðið - 06.09.2014, Qupperneq 38
FÓLK|HELGIN
Desloratadine ratiopharm er ofnæmislyf sem veldur ekki syfju. Það hjálpar til við að hafa hemil á ofnæmis-viðbrögðum og einkennum þeirra með því að hindra
verkun ofnæmisvakans histamíns. Desloratadine ratiopharm
er fljótt að virka og verkun þess varir allan sólarhringinn,
svo eingöngu er þörf á að taka það einu sinni á dag.
Lyf sem innihalda virka efnið desloratadin, eins og Des-
loratadine ratiopharm, hafa eingöngu verið fáanleg gegn
lyfseðli hingað til. Mismunandi er milli einstaklinga hvaða
ofnæmislyf hentar hverjum og því geta einstaklingar
þurft að prófa sig áfram með hvað hentar þeim.
Desloratadine ratiopharm er nú nýr valkostur í
lausasölu fyrir fólk sem hingað til hefur þurft að fá
lyfinu ávísað af lækni.
Eins og nafnið gefur til kynna er virka efnið
desloratadin talsvert skylt efninu loratadini (inni-
haldsefni í m.a. loratadin LYFIS), en loratadin er
óvirkt efni sem umbreytist í líkamanum í virka
efnið desloratadin. Með desloratadini er búið að
taka út umbreytingarskrefið úr óvirku efni í virka
efnið. Desloratadine ratiopharm munndreifitöflur leys-
ast hratt upp í munni eða maga.
Desloratadine ratiopharm er fáanlegt án lyfseðils í 10 stk.
og 30 stk. pakkningum og er ætlað fullorðnum og unglingum
eldri en 12 ára. Mikilvægt er að lesa fylgiseðil lyfsins fyrir
notkun og kynna sér helstu varúðarreglur. Stutta samantekt
um lyfið má sjá hér á eftir.
NÝTT OFNÆMISLYF
Í LAUSASÖLU
LYFIS KYNNIR LYFIS heldur áfram að auka úrval lausasölulyfja á Íslandi.
Nýjasta lyfið í lausasölu er ofnæmislyfið Desloratadine ratiopharm og er það
eina ofnæmislyfið sinnar tegundar á Íslandi sem selt er án lyfseðils.
MEÐ TUTTI FRUTTI-BRAGÐI Desloratadine ratio-
pharm eru litlar munndreifitöflur sem leysast hratt upp í
munni eða maga og má taka inn án þess að drekka með
vökva, þó það henti engu að síður líka. Munndreifitöflurn-
ar eru með tutti frutti-bragði og innihalda ekki laktósa.
Tinna Alavis hefur starfað við fyrirsætustörf í áravís, meðal annars í París, Þýskalandi,
Indlandi og í Los Angeles. Nú er
Tinna önnum kafin í nýju hlut-
verki sem hún segist kunna mjög
vel við. „Ég veit ekkert yndislegra
en að eiga þessa litlu stelpu. Hún
er svo sannarlega búin að veita
mér mikla hamingju. Að vakna
á morgnana og sjá litla andlitið
hennar er það besta sem ég veit,“
segir hin nýbakaða móðir. Þegar
hún er spurð hvað sé á dagskrá
hjá þeim um helgina, svarar hún.
„Ég ætla að hafa það notalegt með
fjölskyldunni, borða góðan mat
og fara í göngutúra með Ísabellu í
vagninum.“
Fyrir utan að sinna móðurhlut-
verkinu skrifar Tinna fyrir Home
Magazine og heldur úti bloggi á
alavis.is. Þar segir hún frá ýmsu
sem gerist í lífi hennar og bendir
á fallega og nytsama hluti. Tinna
hefur mikla ánægju af að gera
heimili sitt í Garðabænum fallegt.
Hún er iðin við að breyta og bæta
auk þess sem hún hefur gaman af
því að elda góðan mat og er dugleg
að bjóða vinafólki heim.
„Mér finnst skemmtilegt að
gera fínt í kringum mig. Ég ætla að
breyta hjónaherberginu á næstu
dögum, mála það í hlýjum lit og
setja nýjar gardínur sem tóna vel
við. Einnig ætla ég að lífga upp á
eldhúsið með því að setja ljóst upp-
lýst gler á milli innréttinganna. Mér
finnst það gefa hlýleika og er þægi-
legra í þrifum,“ segir hún.
Tinna hefur alltaf verið mikill fag-
urkeri og segist hafa gaman af vel
hönnuðum hlutum. „Ég er nýbúin
að eignast fallegan Kahler-vasa sem
var ofarlega á óskalistanum. Núna
langar mig ótrúlega mikið í allar
stærðirnar af Festivo-kertastjökun-
um frá Iittala. Ég er ástfangin af vör-
unum frá Iittala og safna þeim. Mér
finnst fátt skemmtilegra en að fegra
heimilið og breyti reglulega um stíl.
Núna er ég mest fyrir rómantískan
stíl og pastelliti. Uppáhaldshönnuð-
urinn minn er Anne Sophie Goneau.
Ég elska falleg smáatriði og er
einnig sérstaklega hrifin af hönnun
Iittala og Kahler en bæði merkin
höfða ákaflega vel til mín. Ég vil
hafa allt ljóst og bjart í kringum
mig. Allt sem er í rómantískum stíl
heillar mig mikið. Ég hef líka mikinn
áhuga á gömlum hlutum og finnst
virkilega skemmtilegt að láta gamla
hluti fá nýtt líf,“ segir hún.
NÝTUR MÖMMUHLUTVERKSINS
UMSKIPTI Líf Tinnu Alavis fyrirsætu breyttist þegar dóttir hennar, Ísabella Birta, kom í heiminn í apríl. Tinna er þessa dagana í
fæðingarorlofi og nýtur þess að vera í móðurhlutverkinu.
DREGUR ÚR EINKENNUM
Desloratadine ratiopharm er ætlað
til að draga úr einkennum ofnæm-
iskvefs og einkennum ofsakláða
OFNÆMISKVEF, EINKENNI:
■ Hnerri
■ Nefrennsli og kláði í nefi
■ Kláði í efri gómi
■ Kláði í augum
■ Rauð eða tárvot augu
OFSAKLÁÐI, EINKENNI
■ Kláði
■ Ofsakláði
■ Léttir þessara einkenna varir
allan sólarhringinn.
OFNÆMISKVEF
OFSAKLÁÐI
24 KLST VIRKNI
SMEKKLEGT Tinna hefur mikla
ánægju af því að hafa stílhreint
og fínt í kringum sig.
NÓG AÐ GERA Fyrir utan að sinna
dóttur sinni, Ísabellu Birtu, skrifar
Tinna fyrir Home Magazine þar sem
hún gefur góð ráð fyrir heimilið.
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Haustgöngur FÍ
Haustlitir og haustlægð
ir - alla leið 2
Ferðafélag Íslands býður nú upp á haustgöngur fyrir
félagsmenn. Nú þegar göngusumrinu er að ljúka er um
að gera að finna ný verkefni fyrir gönguskó og stafi og
ótimabært að leggja þeim þegar upp í hillu. Haustið er
framundan i allri sinni dýrð með tilheyrandi haustlitum,
djúpri kyrrð og fegurð í bland við blessaðar haustlægð-
irnar sem við heilsum með virðingu.
Þessu öllu fáum við að kynnast í haustgöngum FÍ,
3 mánaða gönguverkefni FÍ þar sem bæði verður
gengið á fjöll um helgar sem og arkað um göngustíga-
kerfi borgarinnar á virkum dögum.
Kynningarfundur verður haldinn mánudaginn
8. september kl. 20 í sal FÍ Mörkinni 6
Fararstjóri í gönguferðunum verður Hjalti Björnsson
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533
eða í netpóst fi@fi.is