Fréttablaðið - 06.09.2014, Qupperneq 39
| FÓLK | 3
Erla lifir krefjandi og skemmti-legu lífi. Hún starfar sem íþróttakennari við Hamra-
skóla í Grafarvogi og hefur þjálfað
hlaupahóp Grafarvogs í 22 ár. Hún
hefur hlaupið fjölda maraþona um
allan heim, til dæmis Two Oceans-
maraþonið í Suður-Afríku. Fyrir
utan þetta er Erla virk í félagslífinu,
er í Oddfellow, Delta Kappa Gamma
og þegar tækifæri gefst gengur hún
á fjöll. Til þess að viðhalda orkunni
borðar Erla hollan mat og drekkur
auk þess vatn blandað Berocca-
freyðitöflum.
KOM Á ÓVART
„Ég tek öllum vítamínum með fyrir-
vara en þegar ég kynntist Berocca
snemma í fyrravor kom það mér
skemmtilega á óvart,“ segir Erla
sem finnst Berocca henta vel lífsstíl
sínum og starfi.
„Þegar maður er á fótunum allan
daginn og hefur ekki alltaf kost á að
fá sér eitthvað að borða er hætt við
að orkan þverri. Ég geymi töflurnar
í töskunni minni og þegar mig
vantar orku blanda ég hálfri töflu
út í vatn og finn hvernig ég verð
frískari,“ segir Erla sem getur vart
hugsað sér að vera án Berocca.
Erla segist nota freyðitöflurnar
líkt og orkudrykk en fá auk þess
öll nauðsynleg vítamín og stein-
efni í kaupbæti. „Ég byrja daginn á
góðum morgunverði en þegar fer
að nálgast hádegi kemur
Berocca sterkt inn til
að viðhalda þrekinu
fram að hádegismat.“
Erla fær sér hálfa töflu
fyrir hlaupaæfingu og
aðra slíka áður en hún
fer í sund og heldur
þannig orkunni fram að
kvöldmat. Hún segir drykkinn alveg
koma í staðinn fyrir súkkulaðistykk-
ið sem margir grípi með sér þegar
blóðsykurinn lækki.
HENTAR VEL Í FJALLGÖNGUR
Þegar færi gefst finnst
Erlu gaman að fara í lengri
göngur. „Berocca hentar
mjög vel sem orkudrykkur á
slíkum göngum. Það munar
um hvert gramm þegar
gengið er með allt á bakinu
og því vont að burðast með
orkudrykki í flöskum. Berocca-töfl-
urnar taka ekkert pláss og svo má
blanda hálfri töflu út í lækjarvatn
og drekka í nestispásum,“ segir
Erla og finnst ekki skemma fyrir
hve góður drykkurinn er á bragðið.
„Þarna er maður bara
kominn með frískandi
gosdrykk og orkan
rýkur upp.“
ORKA FRÁ MORGNI TIL
KVÖLDS
Dagur Erlu er oft langur
því á kvöldin sinnir hún
félagsstörfum og öðrum
áhugamálum. „Það er
gott að geta notið þeirra
stunda óþreyttur og glað-
ur eftir verkefni dagsins
og Berocca hjálpar mikið
við það,“ segir þessi dríf-
andi kona.
VIÐHELDUR ORKU
ALLAN DAGINN
ICEPHARMA KYNNIR Erla Gunnarsdóttir er íþróttakennari og þjálfar hlaupa-
hóp Grafarvogs. Hún notar Berocca Performance-freyðitöflurnar sem frískandi
orkudrykk. Hún segir Berocca-drykkinn afar þægilegan í notkun enda lítið
mál að kippa töflunum með sér hvort sem er í vinnu eða á fjöll.
Á HORN-
STRÖNDUM
Erla hefur hlaupið
ófá maraþon
um allan heim.
Hún hefur einnig
gaman af því að
ganga um nátt-
úru Íslands. Hér
er hún á Horn-
ströndum en
þar þótti henni
gott að drekka
Berocca í nestis-
pásum til að hafa
næga orku fyrir
næsta legg.
BEROCCA PERFORMANCE
■ Freyðitöflurnar Berocca Perform-
ance innihalda einstaka sam-
setningu af B- og C-vítamínum
í stórum skömmtum auk þess
að innihalda bæði magnesíum
og sink. Þessi bætiefni eiga það
flest sameiginlegt að vera mjög
mikilvæg fyrir starfsemi heilans
og taugakerfisins en skortur á
þeim getur meðal annars valdið
depurð, þreytu og pirringi.
■ Töflurnar eru leystar upp í vatni
og henta vel fólki sem er önnum
kafið eða undir miklu álagi.
■ Berocca er framleitt með það í
huga að bæta frammistöðu lík-
ama og hugar. Varan er klínískt
prófuð og rannsóknir sýna að
Berocca Performance dregur úr
þreytu og þróttleysi og bætir
frammistöðu.
■ Berocca er án sykurs og rotvarn-
arefna.
■ Ráðlagt er að drekka Berocca
daglega til að ná sem bestum
árangri.
■ Berocca er framleitt af hinu virta
fyrirtæki Bayer Healthcare og
hefur verið á markaði í yfir 19 ár.
■ Berocca-vörurnar fást í öllum
helstu apótekum landsins sem
og í Krónunni, Hagkaupi, Heim-
kaupum, Nettó og Víði.
www.vitex.is
Eitt skot = 6 rauðrófur
eða 1 líter af rauðrófusafa
Orkuskot fyrir æfingarf rir r
WE BEET THE COMPETITION I I
Laugavegi 63 • S: 551 4422
laxdal.is
Vertu vinur á
Facebook
Skoðið
Yfirhafnir
GLÆSILEGAR HAUSTYFIRHAFNIR
NÝTT
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Öll kínversk
leikfimi
• Heilsu Qi Gong 5000 ára tækni
• Heilsubætandi Tai chi
• Hugræn teigjuleikfimi
• Kung Fu fyrir 4 ára og eldri
Í samstafi við Kínverskan
íþrótta háskóla
Einkatímarog
hópatímar
Opið hús
kl. 10-15
Fyrir alla
aldurshópa
Jafnvægi líkama og sál!
Fullt af
tilboðum
í gangi
Ferðamálaskóli Íslands www.menntun.is Sími 567 1466
Meðal námsefnis:
Mannleg samskipti.
Helstu áfangastaðir
erlendis í máli og
myndum.
Mismunandi
trúarbrögð.
Saga landsins,
menning og listir.
Frumbyggjar og saga
staðarins.
Þjóðlegir siðir og hefðir.
Leiðsögutækni og ræðumennska.
Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan.
Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra
í leiðsögn á erlendri grund.
Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson,
Jóhanna Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Magnús Björnsson,
Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Sr. Bragi Skúlason.
Fararstjórn erlendis
Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson fararstjóri, Pétur Björnsson konsúll Ítalíu á Íslandi,
Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður og fararstjóri, Höskuldur Frímannsson viðskiptafræðingur,
Ómar Valdimarsson blaðamaður, Magnús Björnsson fararstjóri í Kína, Pétur Óli Pétursso fararstjóri í
Rússlandi, Bjarni Randver Sigurvinsson kennari við Guðfræðideild H.Í. , Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur.