Fréttablaðið - 06.09.2014, Síða 42
FÓLK|HELGIN
Augnbotnahrörnun er algengasta or-sök lögblindu á Íslandi hjá fólki eldra en 50 ára. Sjúkdómurinn leggst á
miðgróf sjónhimnu í augnbotnum og skerðir
lestrarsjón og sjónskerpu. Vitað er að elli-
hrörnun í augnbotnum er algengari með
hækkandi aldri og að reykingar ýta undir
þróun votrar hrörnunar. Ættarsaga og hár
blóðþrýstingur eru einnig áhættuþættir.
NÝ SAMSETNING VITEYES
„Unnt er að hægja á sjúkdómnum og
draga úr líkum á votri hrörnun með
inntöku ákveðinna vítam-
ína,“ segir Guðný R.
Hannesdóttir, sölu-
og markaðsfulltrúi
Provision. Hún
bendir á að hægt
sé að fá í apótek-
um sérþróað vít-
amín – VITEYES
sem er samsetn-
ing með tilliti til
augnbotnahrörn-
unar.
Í janúar síðast-
liðnum byrjaði
Provision að
selja til apó-
tekanna nýtt
og endurbætt Viteyes – AREDS2 í nýjum
umbúðum. „AREDS2-rannsóknin mælir með
þessari nýju efnablöndu, Viteyes AREDS2.
Hún inniheldur upprunalegu AREDS-
efnablönduna en í nýju blöndunni hefur
beta-karótín (A vítamín) verið fjarlægt og
6 mg af lúteini og 2 mg af
zeaxantíni verið bætt við,“
upplýsir Guðný en lútein
og zeaxantín eru andox-
unarefni sem fyrirfinn-
ast í augnbotninum.
„Við rannsókn kom
í ljós að þeir þátt-
takendur sem hófu
rannsóknina með
litlu magni af lúteini
og zeaxantíni í sínu
mataræði og fengu
viðbætt lútein og
zeaxantín meðan á
rannsókninni stóð,
voru 25 prósent
ólíklegri til að þróa
með sér ellihrörnun
í augnbotnum á efri
stigum samanborið
við þátttakendur með
svipað mataræði og
tóku ekki inn lútein og
zeaxantín.“
VÍTAMÍN VIÐ AUGNBOTNAHRÖRNUN
PROVISION KYNNIR Augnbotnahrörnun er algengasta orsök lögblindu á Íslandi hjá fólki eldra en 50 ára. Unnt er að hægja á sjúk-
dómnum og draga úr líkum á votri hrörnun með inntöku ákveðinna vítamína á borð við Viteyes AREDS2.
VITEYES AREDS2
Viteyes – AREDS2 fæst í
apótekum um allt land.
Provision var stofnað árið 2007 og hefur
fyrirtækið það hlutverk að opna augu al-
mennings fyrir augnheilbrigði. Með það
að leiðarljósi flytur það inn vörur sem ekki
bara stuðla að augnheilbrigði, heldur er
einnig markmið fyrirtækisins að létta fólki
lífið sem haldið er augnsjúkdómum. Því
er leitast við að finna vörur sem hafa eitt-
hvað meira fram að færa en það sem til er
fyrir og/eða vantar upp á fyrir ákveðinn
hóp fólks með augnsjúkdóma.
Nánari upplýsingar má finna á
www.provision.is
LÉTTIR FÓLKI LÍFIÐ
AUGA Unnt er að
hægja á sjúkdómnum
og draga úr líkum á
votri hrörnun með
inntöku ákveðinna
vítamína.
Það er fallegt á Flúðum og þar
verður mikið um að vera í dag
þegar fram fer uppskeruhátíð
bænda í sveitinni. Matarmark-
aðir og heimasölur verða áber-
andi og hægt að gera góð kaup.
Nýupptekið grænmeti í bland
við ýmis matvæli frá fjölmörgum
bæjum, til dæmis kjöt, mjöl og
hunang. Þá verður fallegt hand-
verk í boði.
Matarkistan verður í Félags-
heimilinu á Flúðum frá kl. 12-17.
Í grænmetisstöðinni að Varma-
læk er hægt að kynna sér fram-
leiðslu á íslenskri tómatsósu
og á Laugarlandi verður boðið
upp á smakk af grænmetisfram-
leiðslu. Að Laugarlandi er jafn-
framt sýning á yfir 700 dúkkum.
Í Birtingaholti er hægt að kaupa
heimabakað brauð úr íslensku
mjöli auk þess sem kaffihúsið er
opið. Bændamarkaður verður
opinn í Efra-Seli. Hægt er að
kynna sér dagskrána á heimasíð-
unni fludir.is.
Auk alls þessa verða ýmsir
leikir í boði, grænmetismótið,
fótboltagolf á Markavelli auk
þess sem Uppsveitahringurinn
er haldinn í dag. Þá er hlaupið
og hjólað um uppsveitir Árnes-
sýslu.
FLÚÐIR BREYTAST Í
MATARKISTU