Fréttablaðið - 06.09.2014, Síða 43
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Fjármálastjóri Hafnarfjarðarbæjar
Umsóknarfrestur er til og með 22. september nk. Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Gauja
Hálfdanardóttir (gauja@intellecta.is) hjá Intellecta í síma 511 1225. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja
ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Í miðju hrauni stendur mannlíf og menning
í blóma. Hafnarfjörður er einstakur bær
með sérstæða sögu. Þegar bærinn fékk
kaupstaðarréttindi árið 1908 bjuggu þar
1400 manns. Nú er Hafnarfjörður þriðji
stærsti bær landsins með um 27.600 íbúa.
Bærinn hefur vaxið hratt og nýju hverfin
hafa laðað að sér fjölbreytt og skemmtilegt
mannlíf. Hafnarfjörður er framsækið
sveitarfélag sem byggir á fjölskylduvænu
umhverfi, fyrirmyndarþjónustu og öflugu
atvinnulífi.
Nánari upplýsingar um bæjarfélagið
má finna á heimasíðu þess
www.hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða fjármálastjóra. Leitað er að öflugum einstaklingi til að hafa
yfirumsjón með fjármálum bæjarfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf í viðskiptafræði eða skyldum
greinum, framhaldsmenntun er æskileg
Haldgóð reynsla í reikningshaldi, áætlanagerð og
fjármálastjórnun
Þekking og reynsla af opinberu rekstrarumhverfi
er æskileg
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og leiðtogahæfni
ráðgjöf ráðningar rannsóknir
Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225
Helstu verkefni:
Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn
Fjárstýring
Yfirmaður fjárreiðu, reikningshalds og innkaupa
Undirbúningur, gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana
Ábyrgð og umsjón með uppgjörum, árshluta-
reikningum og ársreikningi
Stefnumótun í fjármálum í samræmi við markmið
bæjarstjórnar
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar og viðkomandi
stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Hafnarfjarðarbæjar eru konur jafnt sem karlar hvött til að sækja um starfið.
Ert þú framúrskarandi?
Creditinfo leitar að öflugu fólki til að vinna að spennandi verk-
efnum sem verða grunnurinn að framtíðarvexti fyrirtækisins.
Við erum leiðandi fyrirtæki í traustri miðlun fjárhags- og
fjölmiðlaupplýsinga og starfrækjum einn stærsta gagnabanka
landsins. Við leggjum metnað okkar í að vinna með viðskiptavinum
okkar til að hjálpa þeim að ná enn betri árangri.
Við bjóðum vinnu í skemmtilegum og faglega sterkum hópi þar
sem tækifærin eru mikil.
Nánari upplýsingar um starf vörustjóra og greiningarsérfræðings veitir
Brynja Baldursdóttir, forstöðumaður viðskiptastýringar og þróunar,
brynja@creditinfo.is.
Nánari upplýsingar um starf gagnagrunnssérfræðings veitir Bjarki
Jóhannsson, forstöðumaður upplýsingatækni, bjarki@creditinfo.is.
Umsókn ásamt ferilsskrá skal senda á atvinna@creditinfo.is
Heiti pósts skal vísa til starfs sem sótt er um:
Vörustjóri – Greiningasérfræðingur - Gagnagrunnssérfræðingur
Umsóknarfrestur er til og með 15. september
Creditinfo var stofnað á Íslandi árið 1997. Við erum í dag hluti af
Creditinfo Group sem er með 250 starfsmenn í 17 löndum, þar af 47
snillinga á Íslandi.
www.creditinfo.is
Vörustjóri
Vörustjóri vinnur í tveggja manna teymi sem ber ábyrgð á allri vöruþróun
Creditinfo. Hann ber ábyrgð á framtíðarsýn, kröfugerð og gæðum og heldur utan
um og forgangsraðar verkefnalista UT í samvinnu við Scrum master. Við vinnum
samkvæmt Agile-aðferðafræði og leitum að aðila með mikla reynslu sem Product
Owner sem mun jafnframt hafa áhrif á mótun vinnubragða og ferla fyrirtækisins.
Við leitum að aðila með:
Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði eða tölvunarfræði.
Reynslu af því að vinna sem vörustjóri eða verkefnastjóri í upplýsingatækni.
Mjög góða samskiptahæfileika, sjálfstraust og frumkvæði. Viðkomandi þarf að
vera tæknilega sterkur og skilja viðskiptahliðina vel.
Greiningasérfræðingur
Greiningasérfræðingur vinnur í þriggja manna teymi og mun taka þátt í því að
byggja upp greiningareiningu hjá Creditinfo. Einingin ber ábyrgð á vöruþróun fyrir
tölfræðilegar vörur Creditinfo s.s. lánshæfis- og áhættumat ásamt skýrslum og
greiningum. Einingin mun einnig sjá um að þróa skýrslur fyrir innra eftirlit og vinna
náið með viðskiptastjórum við þróun viðskiptasambanda.
Við leitum að aðila með:
Háskólapróf í verkfræði eða stærðfræði, gjarnan með tölfræðiáherslu. Aðrar
gráður koma til greina ef þær eru bættar upp með reynslu af sambæri-
legum störfum.
Reynslu af áhættustýringu og/eða greiningum. Reynsla úr bankageiranum er
kostur.
Mjög góða samskiptahæfileika, sjálfstraust og frumkvæði. Viðkomandi þarf að
vera tæknilega sterkur og skilja viðskiptahliðina vel.
Þekkingu á gagnagrunnum og vöruhúsum gagna. Reynsla af einu eða fleiri
tölfræðiforritum er kostur.
Gagnagrunnssérfræðingur
Gagnagrunnssérfræðingur mun vinna náið með greiningateymi að uppbyggingu
vöruhúss gagna. Hann mun leiða uppbygginguna og bera ábyrgð á réttmæti upp-
setningar og áreiðanleika. Hann mun tilheyra 13 manna sérfræðiteymi á
upplýsingatæknisviði.
Við leitum að aðila með:
Háskólapróf í tölvunarfræði eða sambærilegri menntun sem nýtist í starfi.
Mikla þekkingu á Microsoft SQL, SQL málinu og TSQL málinu sérstaklega.
Reynslu af uppsetningu vöruhúss gagna (skilyrði) og þekkingu á OLAP.
Hæfni til að starfa sjálfstætt sem og í hópi.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.