Fréttablaðið - 06.09.2014, Page 50
| ATVINNA |
Áfengis og vímuefnaráðgjafar
SÁÁ óskar eftir Áfengis og vímuefnaráðgjöfum
til náms eða starfa. Stúdentspróf æskilegt.
Nánari upplýsingar veitir
Hjalti Björnsson dagskrárstjóri í síma 824 7620
Skriflegar umsóknir sendist á Sjúkrahúsið Vog
Stórhöfða 45, 112 Reykjavík, merktar „ráðgjafi“
Sjúkraliði óskast í hlutastarf
við sjúkrahúsið Vog
Um er að ræða vaktavinnu, morgun-kvöld og helgarvaktir.
Upplýsingar veitir
Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri Vogs.
Netfang: thora@saa.is - Sími 8247615
Íslyft ehf er sérhæft fyrirtæki í sölu og þjónustu á
lyfturum og hefur haft mesta markaðshlutdeild í sölu á
lyfturum sl 17 ár.
Steinbock
Þjónustan EHF
Vegna aukinna verkefna óskum við eftir að ráða trausta
og góða viðgerðarmenn til starfa við lyftaraviðgerðir.
Framtíðarstarf.
Einnig manni í málun og frágangi á lyfturum.
Vinsamlegast sendið umsóknir á gisli@islyft.is
Vesturvör - 200 Kópavogur - 564 1600
Laust er til umsóknar starf líftölfræðings (biostatistician). Um er
að ræða nýtt og spennandi starf innan vísindadeildar spítalans
sem er starfrækt innan vísinda- og þróunarsviðs. Starfshlutfall
er 100% og er starfið laust frá 1. október 2014 eða eftir nánara
samkomulagi.
Á Landspítala starfa sérfræðingar og vísindamenn á ýmsum
fagsviðum heilbrigðisvísinda og er spítalinn aðalkennslusjúkrahús
landsins. Þar leggur fjöldi nemenda stund á grunn- og
framhaldsnám í samvinnu við Háskóla Íslands og Háskólann
í Reykjavík. Sérfræðingar og vísindamenn innan spítalans eru
margir í samvinnu við innlenda og erlenda samstarfsaðila
og nýta sér efnivið klínískra rannsókna, heilbrigðisgögn og
framsýnar ferilrannsóknir til þekkingarsköpunar í heilbrigðis- og
lífvísindum.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Tölfræðingurinn mun starfa í nánum tengslum við aðrar
deildir og einingar spítalans sem sinna vísindastörfum
og gagnavinnslu, m.a. með nýtingu vöruhúss gagna sem
hýsir fjölbreytt gögn um þjónustu og rekstur LSH.
» Gert er ráð fyrir möguleikum á samstarfi við vísindamenn
og sérfræðinga innan heilbrigðisvísindasviðs Háskóla
Íslands, m.a. við Miðstöð í lýðheilsuvísindum.
» Tölfræðingurinn taki þátt í uppbyggingu og eflingu
fræðigreinarinnar innan spítalans, m.a. kennsla námskeiða
í líftölfræði fyrir starfsmenn í samstarfi við kennara
Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum ásamt handleiðslu og
ráðgjöf við rannsakendur.
» Hann taki jafnframt virkan þátt í rannsóknaverkefnum
og þróun nýrra tölfræðiaðferða við lausn flókinna
viðfangsefna.
Hæfnikröfur
» Umsækjandi hafi lokið a.m.k. meistaraprófi í tölfræði eða
sýni að hann búi yfir jafngildri þekkingu og reynslu á sviði
líftölfræði.
» Æskilegt er að umsækjandi hafi rannsóknareynslu á sviði
heilbrigðis- og/eða lýðheilsuvísinda og hafi verið virkur á
því sviði.
» Reynsla af kennslu og handleiðslu í líftölfræði fyrir nema
og/eða rannsakendur í heilbrigðisvísindum er kostur.
» Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2014.
» Starfshlutfall er 100%.
» Umsókn fylgi afrit af prófskírteinum ásamt náms- og
starfsferilskrá, gögn um vísindavinnu og ritsmíðar sem og
upplýsingar um meðmælendur og umsagnir um kennslu-
og stjórnunarstörf, eftir því sem við á. Í ritaskrá skal koma
fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi
telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Ef
fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal
umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
» Upplýsingar veitir Magnús Gottfreðsson, yfirlæknir,
magnusgo@landspitali.is, sími 543 1118.
» Starf áður auglýst 28.6.2014, umsóknarfrestur framlengdur
til 22.9.2014
VÍSINDADEILD
Líftölfræðingur (biostatistician)
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Laust er til umsóknar starf yfirlæknis gjörgæslulækninga á
gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut. Starfshlutfall er 100%
og veitist starfið frá 1. janúar 2015 eða eftir nánara samkomulagi,
til 5 ára, sbr. 2.ml., 5.mgr., 9.gr. laga um heilbrigðisþjónustu
nr. 40/2007.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Fagleg ábyrgð, í samráði við framkvæmdastjóra
aðgerðasviðs og einnig framkvæmdastjóra lækninga
» Fjárhagsleg ábyrgð, í samráði við framkvæmdastjóra
aðgerðasviðs
» Starfsmannaábyrgð, í samráði við yfirlækni svæfingalækninga
Áhersla er lögð á áframhaldandi uppbyggingu, skipulag
og þróun gjörgæslulækninga við sjúkrahúsið. Yfirlækni ber
einnig að vinna að frekari uppbyggingu kennslu nemenda í
heilbrigðisvísindagreinum og vísindastarfi á deildinni.
Hæfnikröfur
» Íslensk sérfræðiviðurkenning í svæfinga- og
gjörgæslulækningum
» Viðbótarnám í gjörgæslulækningum
» Reynsla af kennslu og vísindastörfum
» Leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla
» Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
» Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2014.
» Starfshlutfall er 100%.
» Fullt starf (100%) er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr.
yfirlýsingu LSH vegna kjarasamnings sjúkrahúslækna dags.
2 maí 2002, sbr. breytingu 5. mars 2006.
» Umsókn skulu fylgja vottfestar upplýsingar um
nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og
stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af
greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt
skulu berast í tvíriti til Ölmu D. Möller framkvæmdastjóra
aðgerðasviðs, Gjörgæsludeild 12B Hringbraut.
» Allar umsóknir eru sendar til mats hjá stöðunefnd
lækna hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við
umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið
einnig á þeim.
» Fylla þarf út lágmarksupplýsingar á almenna umsókn og
setja viðhengi, en ítarlegri upplýsingar fyllist út í umsókn
fyrir læknastöðu, sjá vef Landlæknis. Óskað er eftir að
umsækjendur skili 1-2 blaðsíðna kynningarbréfi með
framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og deildina auk
rökstuðnings fyrir hæfi.
» Upplýsingar veitir Alma D. Möller, framkvæmdastjóri
aðgerðasviðs, almam@landspitali.is, sími 824 5824.
GJÖRGÆSLUDEILD
Yfirlæknir gjörgæslulækninga
við Landspítala Hringbraut
Starf mannauðráðgjafa á geðsviði er laust til umsóknar.
Mannauðsráðgjafi heyrir undir framkvæmdastjóra geðsviðsins
og starfar í nánu samstarfi við starfsfólk þess og mannauðsdeild
Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Veitir stjórnendum og öðru starfsfólki ráðgjöf og aðstoð
í málefnum er lúta að mannauðsstjórnun
» Stuðlar að samhæfingu í stjórnun mannauðs í samræmi
við mannauðsstefnu
» Starfar samkvæmt stefnu Landspítala, leiðbeiningum og
verklagsreglum mannauðsdeildar og áherslum sviðsins
» Ber ábyrgð gagnvart framkvæmdastjóra á framkvæmd
þeirra verkefna sem honum eru falin
Hæfnikröfur
» Háskólamenntun sem nýtist í starfi
» Menntun og starfsreynsla á sviði mannauðsstjórnunar
er æskileg
» Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
» Sjálfstæði, frumkvæði og ábyrgð í starfi
» Lausnamiðuð nálgun
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2014.
» Starfshlutfall er 80-100%.
» Upplýsingar veitir María Einisdóttir, framkvæmdastjóri
geðsviðs, mariaein@landspitali.is, sími 543 4077.
GEÐSVIÐ
Mannauðsráðgjafi
Atvinnuleitendur
Flest auglýst störf í landsfjölmiðlum má
finna á einum stað í lista á vefsíðu STARFs
www.starfid.is
Starfagátt
STARFs
STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. er fyrirtæki í eigu Alþýðusambands Íslands og Samtaka
atvinnulífsins og var stofnað vorið 2012 til að halda utan um tilraunaverkefni um þjónustu
við fólk án atvinnu, atvinnuleitendur, sem eru félagar í tilteknum stéttarfélögum. Þjónustan
fer fram í fjórum þjónustumiðstöðvum og þar starfa m.a. 14 atvinnuráðgjafar STARFs.
Þungamiðja þjónustunnar er vinnumiðlun og jafnframt er atvinnuleitendum liðsinnt við
margvísleg vinnumarkaðsúrræði – markmiðið er að koma fleiri atvinnuleitendum aftur til starfa.
Nánari upplýsingar um STARF má finna á vefsíðu félagsins: www.starfid.is
6. september 2014 LAUGARDAGUR8