Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2014, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 06.09.2014, Qupperneq 50
| ATVINNA | Áfengis og vímuefnaráðgjafar SÁÁ óskar eftir Áfengis og vímuefnaráðgjöfum til náms eða starfa. Stúdentspróf æskilegt. Nánari upplýsingar veitir Hjalti Björnsson dagskrárstjóri í síma 824 7620 Skriflegar umsóknir sendist á Sjúkrahúsið Vog Stórhöfða 45, 112 Reykjavík, merktar „ráðgjafi“ Sjúkraliði óskast í hlutastarf við sjúkrahúsið Vog Um er að ræða vaktavinnu, morgun-kvöld og helgarvaktir. Upplýsingar veitir Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri Vogs. Netfang: thora@saa.is - Sími 8247615 Íslyft ehf er sérhæft fyrirtæki í sölu og þjónustu á lyfturum og hefur haft mesta markaðshlutdeild í sölu á lyfturum sl 17 ár. Steinbock Þjónustan EHF Vegna aukinna verkefna óskum við eftir að ráða trausta og góða viðgerðarmenn til starfa við lyftaraviðgerðir. Framtíðarstarf. Einnig manni í málun og frágangi á lyfturum. Vinsamlegast sendið umsóknir á gisli@islyft.is Vesturvör - 200 Kópavogur - 564 1600 Laust er til umsóknar starf líftölfræðings (biostatistician). Um er að ræða nýtt og spennandi starf innan vísindadeildar spítalans sem er starfrækt innan vísinda- og þróunarsviðs. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. október 2014 eða eftir nánara samkomulagi. Á Landspítala starfa sérfræðingar og vísindamenn á ýmsum fagsviðum heilbrigðisvísinda og er spítalinn aðalkennslusjúkrahús landsins. Þar leggur fjöldi nemenda stund á grunn- og framhaldsnám í samvinnu við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Sérfræðingar og vísindamenn innan spítalans eru margir í samvinnu við innlenda og erlenda samstarfsaðila og nýta sér efnivið klínískra rannsókna, heilbrigðisgögn og framsýnar ferilrannsóknir til þekkingarsköpunar í heilbrigðis- og lífvísindum. Helstu verkefni og ábyrgð » Tölfræðingurinn mun starfa í nánum tengslum við aðrar deildir og einingar spítalans sem sinna vísindastörfum og gagnavinnslu, m.a. með nýtingu vöruhúss gagna sem hýsir fjölbreytt gögn um þjónustu og rekstur LSH. » Gert er ráð fyrir möguleikum á samstarfi við vísindamenn og sérfræðinga innan heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, m.a. við Miðstöð í lýðheilsuvísindum. » Tölfræðingurinn taki þátt í uppbyggingu og eflingu fræðigreinarinnar innan spítalans, m.a. kennsla námskeiða í líftölfræði fyrir starfsmenn í samstarfi við kennara Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum ásamt handleiðslu og ráðgjöf við rannsakendur. » Hann taki jafnframt virkan þátt í rannsóknaverkefnum og þróun nýrra tölfræðiaðferða við lausn flókinna viðfangsefna. Hæfnikröfur » Umsækjandi hafi lokið a.m.k. meistaraprófi í tölfræði eða sýni að hann búi yfir jafngildri þekkingu og reynslu á sviði líftölfræði. » Æskilegt er að umsækjandi hafi rannsóknareynslu á sviði heilbrigðis- og/eða lýðheilsuvísinda og hafi verið virkur á því sviði. » Reynsla af kennslu og handleiðslu í líftölfræði fyrir nema og/eða rannsakendur í heilbrigðisvísindum er kostur. » Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum. Nánari upplýsingar » Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2014. » Starfshlutfall er 100%. » Umsókn fylgi afrit af prófskírteinum ásamt náms- og starfsferilskrá, gögn um vísindavinnu og ritsmíðar sem og upplýsingar um meðmælendur og umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf, eftir því sem við á. Í ritaskrá skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Ef fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. » Upplýsingar veitir Magnús Gottfreðsson, yfirlæknir, magnusgo@landspitali.is, sími 543 1118. » Starf áður auglýst 28.6.2014, umsóknarfrestur framlengdur til 22.9.2014 VÍSINDADEILD Líftölfræðingur (biostatistician) Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Laust er til umsóknar starf yfirlæknis gjörgæslulækninga á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. janúar 2015 eða eftir nánara samkomulagi, til 5 ára, sbr. 2.ml., 5.mgr., 9.gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Helstu verkefni og ábyrgð » Fagleg ábyrgð, í samráði við framkvæmdastjóra aðgerðasviðs og einnig framkvæmdastjóra lækninga » Fjárhagsleg ábyrgð, í samráði við framkvæmdastjóra aðgerðasviðs » Starfsmannaábyrgð, í samráði við yfirlækni svæfingalækninga Áhersla er lögð á áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun gjörgæslulækninga við sjúkrahúsið. Yfirlækni ber einnig að vinna að frekari uppbyggingu kennslu nemenda í heilbrigðisvísindagreinum og vísindastarfi á deildinni. Hæfnikröfur » Íslensk sérfræðiviðurkenning í svæfinga- og gjörgæslulækningum » Viðbótarnám í gjörgæslulækningum » Reynsla af kennslu og vísindastörfum » Leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla » Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum » Frumkvæði og metnaður til að ná árangri Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Nánari upplýsingar » Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2014. » Starfshlutfall er 100%. » Fullt starf (100%) er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. yfirlýsingu LSH vegna kjarasamnings sjúkrahúslækna dags. 2 maí 2002, sbr. breytingu 5. mars 2006. » Umsókn skulu fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. » Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast í tvíriti til Ölmu D. Möller framkvæmdastjóra aðgerðasviðs, Gjörgæsludeild 12B Hringbraut. » Allar umsóknir eru sendar til mats hjá stöðunefnd lækna hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. » Fylla þarf út lágmarksupplýsingar á almenna umsókn og setja viðhengi, en ítarlegri upplýsingar fyllist út í umsókn fyrir læknastöðu, sjá vef Landlæknis. Óskað er eftir að umsækjendur skili 1-2 blaðsíðna kynningarbréfi með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og deildina auk rökstuðnings fyrir hæfi. » Upplýsingar veitir Alma D. Möller, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, almam@landspitali.is, sími 824 5824. GJÖRGÆSLUDEILD Yfirlæknir gjörgæslulækninga við Landspítala Hringbraut Starf mannauðráðgjafa á geðsviði er laust til umsóknar. Mannauðsráðgjafi heyrir undir framkvæmdastjóra geðsviðsins og starfar í nánu samstarfi við starfsfólk þess og mannauðsdeild Landspítala. Helstu verkefni og ábyrgð » Veitir stjórnendum og öðru starfsfólki ráðgjöf og aðstoð í málefnum er lúta að mannauðsstjórnun » Stuðlar að samhæfingu í stjórnun mannauðs í samræmi við mannauðsstefnu » Starfar samkvæmt stefnu Landspítala, leiðbeiningum og verklagsreglum mannauðsdeildar og áherslum sviðsins » Ber ábyrgð gagnvart framkvæmdastjóra á framkvæmd þeirra verkefna sem honum eru falin Hæfnikröfur » Háskólamenntun sem nýtist í starfi » Menntun og starfsreynsla á sviði mannauðsstjórnunar er æskileg » Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar » Sjálfstæði, frumkvæði og ábyrgð í starfi » Lausnamiðuð nálgun Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Nánari upplýsingar » Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2014. » Starfshlutfall er 80-100%. » Upplýsingar veitir María Einisdóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs, mariaein@landspitali.is, sími 543 4077. GEÐSVIÐ Mannauðsráðgjafi Atvinnuleitendur Flest auglýst störf í landsfjölmiðlum má finna á einum stað í lista á vefsíðu STARFs www.starfid.is Starfagátt STARFs STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. er fyrirtæki í eigu Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins og var stofnað vorið 2012 til að halda utan um tilraunaverkefni um þjónustu við fólk án atvinnu, atvinnuleitendur, sem eru félagar í tilteknum stéttarfélögum. Þjónustan fer fram í fjórum þjónustumiðstöðvum og þar starfa m.a. 14 atvinnuráðgjafar STARFs. Þungamiðja þjónustunnar er vinnumiðlun og jafnframt er atvinnuleitendum liðsinnt við margvísleg vinnumarkaðsúrræði – markmiðið er að koma fleiri atvinnuleitendum aftur til starfa. Nánari upplýsingar um STARF má finna á vefsíðu félagsins: www.starfid.is 6. september 2014 LAUGARDAGUR8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.