Fréttablaðið - 06.09.2014, Page 51

Fréttablaðið - 06.09.2014, Page 51
Smiðir óskast Óskum eftir að ráða vana trésmiði í fjölbreytt verkefni, framtíðarstörf. Vinsamlegast sendið upplýsingar á netfangið eggert@tharfathing.is Sérfræðingur í tæknideild Staða sérfræðings í upplýsingatæknideild Tollstjóra er laus til umsóknar Hjá Tollstjóra starfar hópur hæfileikaríks starfsfólks sem hefur það að markmiði að veita góða og skilvirka þjónustu og standa vörð um hagsmuni almennings og atvinnulífs. Lögð er áhersla á símenntun starfsmanna, heilsueflingu og góðan aðbúnað. Starf sérfræðings felur m.a. í sér: • Eftirlit og umsjón með netkerfi, tölvum, tækjum, símkerfi og öðrum tæknibúnaði embættisins. • Almenn þjónusta við starfsmenn embættisins, bregðast við beiðnum um aðstoð og finna lausn á tæknilegum vandamálum. • Afgreiðsla aðgangsumsókna að ýmsum kerfum. • Þátttaka og aðstoð við undirbúning og gerð ársáætlana á innkaupum tækjabúnaðar. • Önnur verkefni. Menntunar- og hæfniskröfur: • Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun á sviði kerfisstjórnunar og/eða mikla reynslu á því sviði. • Góð þekking og þjálfun á sviði tæknimála er æskileg, s.s. þekking á Microsoft Exchange Server, Active Directory, Windows Server og Windows 7 og 8. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði í starfi og hæfni til að vinna sjálfstætt. • Gott vald á íslensku og ensku og geta til að tjá sig skipulega, bæði í ræðu og riti. • Kurteisi og þjónustulund. • Nákvæmni og traust vinnubrögð. Um er að ræða fjölbreytt verkefni sem hæfa jafnt konum sem körlum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðni Ólafsson, fjármálastjóri/deildarstjóri upplýsingatæknideildar, í síma 560-0300. Umsóknarfrestur er til 19. september nk. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir merktar „sérfræðingur tæknideild“ ásamt ferilskrá skal skila til mannauðssviðs embættisins að Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík eða í gegnum tölvupóst: starf@tollur.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. ÞJÓNUSTULIÐI RÆSTING í Menntaskólanum í Kópavogi Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða þjónustuliða til ræstinga og umsjónar með umgengni í skólanum á dagvinnu tíma. Möguleiki á hlutastörfum. Laun eru skv. sérstökum samningi Eflingar og fjármálaráðuneytis. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma 594 4000 hjá skrifstofustjóra eða ræstingastjóra. Skólameistari Spennandi tækifæri hjá Marorku! FORRITARAR Við leitum að forriturum í þróunarteymi okkar. Bjóðum upp á spennandi og fjölbreytileg verkefni í kviku og skemmtilegu umhverfi. Notumst við VisualStudio og C#. Keyrsluumhverfi okkar er Windows, SQL Server og IIS. Við fylgjum Agile hugmyndafræði við stýringu verkefna. Á öllum stigum forritunarferlisins hvetur Marorka til sjálfstæðra vinnubragða og virkrar þáttöku forritara. Hæfniskröfur: • Háskólagráða í tölvunarfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi • Nákvæm og öguð vinnubrögð • Minnst 5 ára reynsla við forritun • Brennandi áhugi á tækni PRÓFANASTJÓRI Við leitum að prófanastjóra sem hefur yfir- umsjón með ferlum sem lúta að gæðum hugbúnaðarafurða Marorku. Prófanastjóri er samskiptaaðili þvert á fyrirtækið: Á dagleg samskipti við forritara vegna sjálvirkra próf- ana, náin samskipti við vörustjóra vegna nýjunga og virkni breytinga, við framleiðslu- deild varðandi afhendingu hugbúnaðarins og við þjónustudeild til að fylgjast með hvernig útgefnum hugbúnaði reiðir af. Hæfniskröfur: • Háskólagráða í tölvunarfræði eða sambærileg gráða • Nákvæmni og samskiptahæfni • Reynsla af lífsferli hugbúnaðar VERKEFNASTJÓRI Við leitum að verkefnastjóra sem mun stýra verkefnum hjá Marorku sem lúta að innleiðingu orkustjórnunar hjá skipafyrirtækjum. Verkefnin eru tæknilega flókin og þarf ein- staklingurinn að hafa tök á tæknihugtökum ásamt því að vera mjög skipulagður. Mikil- vægt er að sýna frumkvæði og vera jákvæður og drífandi. Samskipti við viðskiptavini er stór þáttur af starfinu. Starfinu fylgja ferðalög. Hæfniskröfur: • Verkfræðingur eða tæknifræðingur • Mikil reynsla af verkefnastjórnun • Leiðtoga- og stjórnunarhæfni • Próf í verkefnastjórnun kostur • Reynsla úr skiparekstri kostur ÞJÓNUSTUSTJÓRI þjónustudeild fyrirtækisins. Þjónustustjóri stýrir sérfræðingum í þjónustudeildinni og skipuleggur starfsemi deildarinnar á heimsvísu. Þjónustustjóri ber ábyrgð á rekstri deildarinnar og innkomu ásamt því að tryggja að þjónusta Marorku sé fyrsta flokks. Mikil- vægt er að sýna frumkvæði og vera jákvæður og drífandi. Samskipti við viðskiptavini er stór þáttur af starfinu. Starfinu fylgja ferðalög. Hæfniskröfur: • Háskólagráða sem nýtist í starfi • Góð tækniþekking • Leiðtogahæfileikar og hæfni í mann- legum samskiptum • Reynsla úr skiparekstri æskileg SÉRFRÆÐINGUR Í ÞJÓNUSTUDEILD Marorku til að leysa tilfallandi verkefni sem koma upp hjá viðskiptavinum ásamt því að setja upp orkustjórnunarkerfi Marorku um borð í skipum. Við leitum að einstaklingi með einstaka þjónustulund, þarf að vera skipu- lagður og nákvæmur í starfi. Mikilvægt er að sýna frumkvæði, vera jákvæður og drífandi. Samskipti við viðskiptavini er stór þáttur af starfinu. Starfinu fylgja ferðalög. Hæfniskröfur: • Tæknifræðingur með vélstjórabakgrunn eða annar bakgrunnur úr skiparekstri • Siglingareynsla kostur Marorka var stofnað árið 2002 og er leiðandi fyrirtæki í lausnum fyrir orkustjórnun skipa. Hjá Marorku starfar öflugur hópur starfsmanna sem daglega leggja sitt af mörkum til bættrar orkunýtingar og minni mengunar á heimsvísu. Starfstöðvar Marorku eru í Reykjavík, Kaupmannahöfn, Singapore, Dubai og Aþenu. Við bjóðum starfsmönnum okkar krefjandi og spennandi verkefni í alþjóðlegu fyrirtæki, sveigjanlegan vinnutíma, fjölskylduvænt starfsumhverfi og þátttöku í áframhaldandi uppbyggingu hátæknifyrirtækis í örum vexti. Umsóknarfrestur er til 12. september 2014. Vinsamlegast sendið umsóknir á careers@marorka.com Borgartún 20 105 Reykjavík Iceland Tel. (+354) 582 8000www.marorka.com Marorka er alþjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík. Mikilvægt er að allir umsækjendur séu mjög hæfir í ræðu og riti á enskri tungu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.