Fréttablaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 51
Smiðir óskast
Óskum eftir að ráða vana trésmiði í fjölbreytt verkefni, framtíðarstörf.
Vinsamlegast sendið upplýsingar á netfangið eggert@tharfathing.is
Sérfræðingur í tæknideild
Staða sérfræðings í upplýsingatæknideild Tollstjóra
er laus til umsóknar
Hjá Tollstjóra starfar hópur hæfileikaríks starfsfólks sem
hefur það að markmiði að veita góða og skilvirka þjónustu
og standa vörð um hagsmuni almennings og atvinnulífs.
Lögð er áhersla á símenntun starfsmanna, heilsueflingu og
góðan aðbúnað.
Starf sérfræðings felur m.a. í sér:
• Eftirlit og umsjón með netkerfi, tölvum, tækjum,
símkerfi og öðrum tæknibúnaði embættisins.
• Almenn þjónusta við starfsmenn embættisins, bregðast
við beiðnum um aðstoð og finna lausn á tæknilegum
vandamálum.
• Afgreiðsla aðgangsumsókna að ýmsum kerfum.
• Þátttaka og aðstoð við undirbúning og gerð ársáætlana
á innkaupum tækjabúnaðar.
• Önnur verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun á sviði
kerfisstjórnunar og/eða mikla reynslu á því sviði.
• Góð þekking og þjálfun á sviði tæknimála er æskileg, s.s.
þekking á Microsoft Exchange Server, Active Directory,
Windows Server og Windows 7 og 8.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði í starfi og hæfni til að vinna sjálfstætt.
• Gott vald á íslensku og ensku og geta til að tjá sig
skipulega, bæði í ræðu og riti.
• Kurteisi og þjónustulund.
• Nákvæmni og traust vinnubrögð.
Um er að ræða fjölbreytt verkefni sem hæfa jafnt konum
sem körlum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur
gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðni Ólafsson,
fjármálastjóri/deildarstjóri upplýsingatæknideildar,
í síma 560-0300.
Umsóknarfrestur er til 19. september nk.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir merktar „sérfræðingur tæknideild“ ásamt
ferilskrá skal skila til mannauðssviðs embættisins að
Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík eða í gegnum tölvupóst:
starf@tollur.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir gilda
í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
ÞJÓNUSTULIÐI
RÆSTING
í Menntaskólanum í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða þjónustuliða
til ræstinga og umsjónar með umgengni í skólanum á
dagvinnu tíma. Möguleiki á hlutastörfum.
Laun eru skv. sérstökum samningi Eflingar og
fjármálaráðuneytis.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma
594 4000 hjá skrifstofustjóra eða ræstingastjóra.
Skólameistari
Spennandi tækifæri
hjá Marorku!
FORRITARAR
Við leitum að forriturum í þróunarteymi okkar.
Bjóðum upp á spennandi og fjölbreytileg verkefni
í kviku og skemmtilegu umhverfi. Notumst við
VisualStudio og C#. Keyrsluumhverfi okkar er
Windows, SQL Server og IIS. Við fylgjum Agile
hugmyndafræði við stýringu verkefna.
Á öllum stigum forritunarferlisins hvetur Marorka
til sjálfstæðra vinnubragða og virkrar þáttöku
forritara.
Hæfniskröfur:
• Háskólagráða í tölvunarfræði eða
sambærileg menntun sem nýtist í starfi
• Nákvæm og öguð vinnubrögð
• Minnst 5 ára reynsla við forritun
• Brennandi áhugi á tækni
PRÓFANASTJÓRI
Við leitum að prófanastjóra sem hefur yfir-
umsjón með ferlum sem lúta að gæðum
hugbúnaðarafurða Marorku. Prófanastjóri
er samskiptaaðili þvert á fyrirtækið: Á dagleg
samskipti við forritara vegna sjálvirkra próf-
ana, náin samskipti við vörustjóra vegna
nýjunga og virkni breytinga, við framleiðslu-
deild varðandi afhendingu hugbúnaðarins
og við þjónustudeild til að fylgjast með hvernig
útgefnum hugbúnaði reiðir af.
Hæfniskröfur:
• Háskólagráða í tölvunarfræði
eða sambærileg gráða
• Nákvæmni og samskiptahæfni
• Reynsla af lífsferli hugbúnaðar
VERKEFNASTJÓRI
Við leitum að verkefnastjóra sem mun stýra
verkefnum hjá Marorku sem lúta að innleiðingu
orkustjórnunar hjá skipafyrirtækjum.
Verkefnin eru tæknilega flókin og þarf ein-
staklingurinn að hafa tök á tæknihugtökum
ásamt því að vera mjög skipulagður. Mikil-
vægt er að sýna frumkvæði og vera jákvæður
og drífandi. Samskipti við viðskiptavini er stór
þáttur af starfinu. Starfinu fylgja ferðalög.
Hæfniskröfur:
• Verkfræðingur eða tæknifræðingur
• Mikil reynsla af verkefnastjórnun
• Leiðtoga- og stjórnunarhæfni
• Próf í verkefnastjórnun kostur
• Reynsla úr skiparekstri kostur
ÞJÓNUSTUSTJÓRI
þjónustudeild fyrirtækisins. Þjónustustjóri
stýrir sérfræðingum í þjónustudeildinni
og skipuleggur starfsemi deildarinnar á
heimsvísu. Þjónustustjóri ber ábyrgð á rekstri
deildarinnar og innkomu ásamt því að tryggja
að þjónusta Marorku sé fyrsta flokks. Mikil-
vægt er að sýna frumkvæði og vera jákvæður
og drífandi. Samskipti við viðskiptavini er stór
þáttur af starfinu. Starfinu fylgja ferðalög.
Hæfniskröfur:
• Háskólagráða sem nýtist í starfi
• Góð tækniþekking
• Leiðtogahæfileikar og hæfni í mann-
legum samskiptum
• Reynsla úr skiparekstri æskileg
SÉRFRÆÐINGUR Í
ÞJÓNUSTUDEILD
Marorku til að leysa tilfallandi verkefni sem
koma upp hjá viðskiptavinum ásamt því að
setja upp orkustjórnunarkerfi Marorku um
borð í skipum. Við leitum að einstaklingi með
einstaka þjónustulund, þarf að vera skipu-
lagður og nákvæmur í starfi. Mikilvægt er að
sýna frumkvæði, vera jákvæður og drífandi.
Samskipti við viðskiptavini er stór þáttur af
starfinu. Starfinu fylgja ferðalög.
Hæfniskröfur:
• Tæknifræðingur með vélstjórabakgrunn
eða annar bakgrunnur úr skiparekstri
• Siglingareynsla kostur
Marorka var stofnað árið 2002 og er leiðandi fyrirtæki í lausnum fyrir orkustjórnun skipa.
Hjá Marorku starfar öflugur hópur starfsmanna sem daglega leggja sitt af mörkum til
bættrar orkunýtingar og minni mengunar á heimsvísu.
Starfstöðvar Marorku eru í Reykjavík, Kaupmannahöfn, Singapore, Dubai og Aþenu.
Við bjóðum starfsmönnum okkar krefjandi og spennandi verkefni í alþjóðlegu fyrirtæki,
sveigjanlegan vinnutíma, fjölskylduvænt starfsumhverfi og þátttöku í áframhaldandi
uppbyggingu hátæknifyrirtækis í örum vexti.
Umsóknarfrestur er til 12. september 2014. Vinsamlegast sendið umsóknir á careers@marorka.com
Borgartún 20 105 Reykjavík Iceland Tel. (+354) 582 8000www.marorka.com
Marorka er alþjóðlegt fyrirtæki með
höfuðstöðvar í Reykjavík.
Mikilvægt er að allir umsækjendur séu
mjög hæfir í ræðu og riti á enskri tungu.